Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 11

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 11
byggðu sér hús en þau voru Páll Guðmundsson verkstjóri hjá Vita- og hafnarmálastofnun og Huldís Ingadóttir. Páll var verkstjóri hjá stofnuninni og fór um landið á sumrin með flokk manna og byggði m.a. vitann á Öndverðarnesi og útihúsin á Malarrifi. Einnig má segja frá því að hann gerði veginn niður að Öndverðarnesvita og þá fann hann beinagrind sem var talin mjög merkileg en hún var af ungum manni frá víkingaöld. Móðir Sannýjar var ráðskona hjá vinnuflokknum sem Páll var með. Sanný gekk í barnaskólann í Hafnarfirði og fór síðan í Flensborg. Systkinin voru fjögur og þar af einn hálfbróðir. „Ég fermdist í Hafnarfjarðarkirkju kl. tvö, ég man það svo vel, og prestur var sr Garðar Þorsteinsson og við vorum 52 í mínu holli sem fermdist eftir hádegið og annar eins hópur fermdist fyrir hádegið," segir Sanný. Þar sem móðir mín var ekki heima á sumrin var ég send frá sex ára aldri út á land. Fyrst var ég í Stykkishólmi en þar átti ég skyldfólk. Það varð að koma börnunum af mölinni," segir Sanný og brosir. Hífð í land í neti „Frá tíu til tólf ára aldurs var ég send á Stöðvarförð fyrir austan og var þar hjá fólki sem var með búskap. Ég fór alein með strandferðaskipinu Esju og ein í klefa tíu ára og ferðin tók tvo til þrjá daga. Esjan komst ekki upp að bryggju og því var ég látin síga í uppskipunarneti frá borði í lítinn léttbát ásamt fleirum. Þegar ég kom að landi sagði maðurinn í léttbátnum að ég skyldi bara bíða þar til ég yrði sótt en við komum þangað um kl. tvö að nóttu. Ég Netaróður á Geysi SH 66. Þeir sem þekkjast eru Hermann, Dóri á Búðum og Páll Sigurvinsson. man að það var mikil þoka þessa nótt. Ég settist á ferðatöskuna mína og beið og allirfóru í burtu. Eftir langan tíma kom maður til mín og spurði hvort ég væri Svanhildur. Já, ég hélt það nú og þá fór ég með honum heim á bæinn. Ég var mest að hjálpa húsmóðurinni, sendast og gera það sem til féll og ég gat gert. Á bænum var engin sláttuvél allt slegið með orfi og Ijá, rakað og rifjað með hrífum og heyið bundið í bagga og sett á hesta og reitt heim. Þannig var það nú," segir Sanný er hún rifjar upp þennan óvenjulega tíma. Boðið upp á Dubonett Eftir fermingu fer Sanný aftur í sveit og nú að Torfastöðum í Grafningi en þar fékk hún laun fyrir vinnu sína. Svo kemur að því Fyrsti bílinn og það er Volvo árgerð 1963 P 686. að hún fær vinnu á Búðum. „Já, hún Una föðuramma mín þekkti hana Lóu sem rak Hótel Búðir á þessum tíma eða árið 1964 og hún réði mig þangað eftir beiðni ömmu. Ég vildi frekar fara út á land að vinna heldur en að vera í bænum við eitthvað sem ég vildi ekki. Svo var ég reyndar búin að sjá Hemma áður, en við sáumst fyrst í Bankastræti og það dró mig líka vestur," segir Sanný og þau hlægja bæði dátt hún og Hemmi. „Það var mjög skemmtilegur tími á Búðum. Ég vann með skemmtilegu fólki og líka kynntist ég nokkrum gestum er þangað komu. Ég man vel eftir Dagnýju Kristjánsdóttur seinna bókmenntafræðingi sem ég vann með. Þá er mér minnisstætt er Halldór Kiljan Laxness dvaldi á hótelinu en hann kom mörg sumur vestur að Búðum. Einu sinni er ég var að vinna úti við þá kallar hann á mig og spyr. „Heyrðu góða, viltu koma hérna aðeins til mín" og svo spyr hann. „Hvað heldur þú að beljan þarna sé að gera" og benti á kú sem stóð stuttfrá hótelinu. „Heldur þú nokkuð að hún sé að éta bílinn minn?" Það held ég ekki segi ég og gat lítið annað sagt. Svo komu einu sinni Ásgeir Ásgeirsson forseti íslands og frú Dóra og þá var okkur boðið í veislu. Þar var mér boðið m.a. upp á Dubonett en ég hafði aldrei heyrt á það minnst áður. Sama og þegið sagði ég. Það var talsvert fylgdarlið sem kom með og a.m.k. þrír bílar sem þau komu á en þetta er allt ógleymanlegt," segir Sanný er hún rifjar upp skemmtilegar stundir á Búðum en hún starfaði þar í tvö sumur. * Svanur Magnússon bróðir Hermanns tilbúinn í stakkasundið á sjómannadag. 9

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.