Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Blaðsíða 26

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Blaðsíða 26
Mynd frá Norðfirði. Skúrarnir alveg niður í fjöru. Slysið mikla Þegar Aldís er þriggja ára gömul verður sá atburður á heimili hennar sem fylgt hefur henni allt hennar líf. „Það var þannig," segir Aldís „að mamma ætlaði að baða okkur systurnar í járnbala sem var á gólfinu í eldhúsinu. Á veturna var lítið um neysluvatn í húsinu og alltvatn kom frá brunni sem var talsvert frá húsinu og lá leiðslan niður á neðri hæðina. Þannig var að þegar mamma þurfti vatn á efri hæðinni þá bankaði hún í rörið og þá heyrði konan á neðri hæðinni bankið og skrúfaði fyrir. Þannig skiptust þær á að nota vatnið. Það varð að sjóða allt vatn til heimilisins sem við notuðum og í þetta sinn var hún búin að því og komið var mjög heitt vatn í balann en eftir var að setja kalt vatn með. Þetta var í febrúar og mikill snjór úti. Ég og Ása systir mín vorum að leika okkur með spil við frænda okkar við borð í eldhúsinu. Ég stend eitt sinn upp, ætlaði að fá mér vatn að drekka, og labba afturábak og dett um balann þar sem hann er á gólfinu. Það er ekkert með það að ég lendi ofan í balanum á bakið og við það set ég hægri hendina strax aftur fyrir mig til að reyna koma mér upp aftur. Ég æpi upp yfir mig, ég man það svo vel, og pabbi og mamma koma að mér og taka í sitthvora hendina á mér og rífa mig upp og á fætur." Strax reynt að fá lækni „Það var strax farið að tala um hvað ætti að gera og niðurstaðan varð sú samkvæmt ráðleggingu gamals manns sem var i heimsókn að best væri að setja hveiti á brunasárið og kæla það þannig. Að sjálfsögðu var strax reynt að ná í lækni en hann átti ekki bíl. Þegar hann kom þá var hann ekki ánægður með hvað búið var að gera við mig en ekki var hugað að því að setja snjó og kæla brunasárið þannig. Að sjálfsögðu gerði hveitið ekkert gagn og læknirinn varð því að plokka það úr brunasárinu sem myndaðist mest á handlegginn frá úlnlið og upp fyrir olnboga. Þetta tók um viku tíma Systurnar Aldís sem er til vinstri er hún var þriggja ára og Ása sem er ári yngri. og sársaukinn var mjög mikill man ég. Hann setti líka grisju yfirsárið og það var líka mjög aumt þegar hann tók hana af. Þetta slys hafði þær afleiðingar að hægri handleggurinn krepptist mikið. Ég var tvisvar sinnum send suður í aðgerð með strandferðaskipinu Esjunni þegar ég var níu ára gömul. Ég fór á Landakotsspítala til læknis sem hét Matthías Einarsson. Þrátt fyrir tilraunir hans tókst ekki að rétta handlegginn á mér og svona var ég til fimmtán ára aldurs," segir Aldís er hún rifjar upp þennan hræðilega atburð. Hrædd um að vakna ekki „Þegar ég er orðin fimmtán ára þá kemur íslenskur læknir, Snorri Hallgrímsson, til landsins. Hann hafði reynslu úr stríðum erlendis við að lækna svona brunasár og því sá langfærasti hér á landi. Ég fer til hans og hann getur rétt handlegginn eftir aðgerð sem hann gerði. Eftir þetta mátti ég ekki vinna við svokallaða hráa vinnu svo sem í fiski eins og Snorri orðaði það þótt ég hafi nú gert það seinna. Þá var hætta á að sárið opnaðist sem var ekki gott. Ég man alltaf hvað ég var hrædd við fyrri svæfinguna er ég var níu ára. Ég var svo hrædd um að vakna ekki aftur þegar verið var að setja kloroform í grisju og henni haldið yfir andlitinu á mér. Stofan sem ég var á tók mörg rúm og einu sinni taldi ég níu rúm í viðbót við mitt. En það sem skipti máli var að Snorri gat rétt handlegginn á mér," segir Aldís er hún segir frá þessari erfiðu reynslu. Hún fékk reyndar mikinn krampa í hendina eftir aðgerðina sem lagaðist svo. Hún segir að þessi fötlun hafi ekki haft áhrif á hana fyrr en eftir að hún var fimmtán sextán ára að þá hafi komið upp minnimáttarkennd við ýmis tækifæri. En hún hafi samt fljótlega sætt sig við þetta og leiddi það hjá sér ef eitthvað kom upp og harðnaði bara er á leið. Foreldrar Aldísar þau Stefán Eiríksson og Guðný Guðnadóttir. Hvar er þessi Hellissandur? Þegar Aldís verður betri eftir meðferðina hjá Snorra fer hún að spá í hvað hún ætli að fara að vinna. Þá kemur að máli við hana frænka hennar sem hét Aldís Jónsdóttir og spyr hana um það sama þ.e. hvað hún ætli sér að fara að gera. „Ég var nú ekki alveg viss um það en þá segir hún mér að hún þekki kaupfélagstjórann á Hellissandi, Sigmund Símonarson og konu hans Sigríði. Segir mér þá að þau vanti stúlku á heimilið til að hjálpa til við heimilisstörfin og hvort ég sé ekki tilbúin að fara. „Hvar er eiginlega þessi Hellissandur?" spyr ég en var þó nokkuð góð í landafræði en kom því ekki fyrir mig hvar þessi staður væri. Ég spurði frænku mín hvort hún væri búin að tala við mömmu mína en hún sagði nei við því. Ég er búin að fá svar segir hún og þú ert ráðin þangað vestur segir hún ákveðin. Þá var hún búin að skrifa kaupfélagstjóranum og komið var jákvætt svar frá honum". 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.