Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 51

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 51
• GÍSLI Kristjánsson cr einn af inörgum íbáum Gnindarfjarðiir sem hafa hafl sjómcrm.sku að aðal- starfi alla sfna ævi, Starfið <?r crf- itt og á ofri árum hefur sjdferðum lians fu'líkað og loks kemur að þvf að síðasta sjóferðin er farin. Síðasta sjöferö Gísia var glæsi- legur endir á Iðngum ferli. í þess- ari ferð fékk hann fjðrar slórlúð- ur sem samtais vógu 480 kg, enda sagði Gísli að þennan dag hefðu ailar aðstœður verið eins og best verður á kosið. Stmrsta ltíðan reyndist vera 187 kg að þyngd. Mikla kunnáttu og reynslu þarf til að draga slíka stórfiska upp í bátinn án þess að skaða sjálfan sig eða hátinn, en þá reynslu hefur GísIÍ í ríkum mœli. A myndinni er Gísli Knsljánsson til vinstri og Lárus Guömnndsson til hægri ásamt þremur ungum Grundfirð- ingum og lúðunum fjórurn. Það héldu allir að þessi stóru skip gætu verið á veiðum í nær hvaða veðri sem er. Oft þurfti að berja ís af skipunum er komið var í skjól uppundir. Það var erfitt skal ég segja þér." Gísli var einnig bátsmaður á togaranum Úranusi með Ólafi Karvelsyni skipstjóra og voru þeir mest við Grænland. Gísli segir að aðbúnaðurinn hafi verið mjög misjafn á þessum skipum. Á Neptúnusi hafi verið þrír lúkarar og hver með fjórum kojum en í öðrum hafi verið bara einn lúkar en það voru tuttugu og átta til þrjátíu kallar á hverju skipi að sögn Gísla er hann rifjar upp togaralífið á þessum árum. Þá var hann um tíma á togaranum Röðli og þar var um borð Jens Jónsson en þeir voru góðir vinir og til gamans má geta að hann er faðir Þorbjörns handboltakappa og þjálfara með meiru. Einnig voru þeir saman á togaranum Úranusi og héldu vinskap sínum eftir að sjómennsku lauk. Túrinn á Eldborginni „Ég skal segja þér að í byrjun janúar 1949 þá er bankað hjá mér og Bjarni Ingimarsson vinur minn biður mig að koma með til Englands að sækja þangað Eldborgina frá Borgarnesi. Þetta var mikið aflaskip skal ég segja þér vinur minn. Við flugum út með flugvél frá Flugfélagi íslands. Við fengum brjálað veður úr Pentlinum og við vorum níu daga að sigla til Vestmanneyja. Það fór vel um mig en ég var kokkur á leiðinni og svo losuðum við kol í Borgarnesi. Það var meira og minna allt brotið á dekkinu," segir Gísli er hann rifjar upp þessa ferð á Eldborginni en þetta var 280 lesta skip og var aflaskip mörg sumur á síldinni og gert útfrá Borgarnesi. Flytur til Grundarfjarðar Þann 10. desember 1955 flytur Gísli aftur til Grundarfjarðar frá Hafnarfirði eftir 10 ára fjarveru úr sínum heimabæ. Það var erfitt að fá húsnæði í Grundarfirði á þessum árum en hann var þá kominn með eiginkonu, Lilju Finnbogadóttur og tvö börn en Lilja er frá Seyðisfirði. Að sögn Gísla þá var ekkert um nema kofadrasl að ræða og því fer hann fljótlega sjálfur að byggja og hann reisir sér og fjölskyldunni hús að Hamrahlíð 5 en það var 150fm með góðum bílskúr. „Ég er svo á bátum í Grundarfirði á bæði síld og vertíð og svo 1966 fær Oliver Kristjánsson í Ólafsvík mig til að koma og hjálpa sér að útbúa Geysi á dragnót en það var bátur sem hann átti með fleirum. Ég var þá vanur vírum á dragnótinni en Ólsararnir kunnu ekki að splæsa víra," segir Gísli og hlær dátt. Ég dreg þessa sögu Gísla í efa en Gísli segist bara vera að segja satt. Jóhannes Jónsson, Jói á Nesi, er svo með Geysi um sumarið og fiskuðu þeir 450 tonn og svo svipað næsta sumar. „Þetta gekk bara fínt," segir Gísli og brosir. „ Við vorum góðir félagar alla tíð ég og Jói vinur minn. Guðni Sumarliðason var líka góður vinur og sagði mér frá mörgum góðum miðum hér fyrir utan." Skipstjóri á nokkrum bátum Eftir að Gísli var með Farsæl er hann um tíma með Gnýfara SH 8 en það var 65brl bátur smíðaður á Seyðisfirði árið 1960. Hann var í eigu Gnýfara hf í Grundarfirði og var keyptur þangað í mars 1960 og seldur árið 1979 Haraldi s/f á Dalvík . „Þetta varfínn báturbara dálítið þungur að framan," segir Gísli. Þá var Gísli með Sveinbjörn Jakobsson SH í þrjú sumur og um tíma með Hrönn SH 149. Þá var hann einnig með Þórsnesið SH í Stykkishólmi. Gísli er svo með Farsæl SH í Stykkishólmi frá 1970 til 1974, mest á skel, en það var 60 lesta bátur í eigu þeirra Grundfirðinga Sigurjóns Halldórssonar, Hermanns Sigurjónssonar, Halldórs Sigurjónssonar og Sigurðar Ágústssonar. Gísli átti bát um tíma en þá keypti hann ásamt Jóni bróðir sínum og þeim Þórði Sveinssyni og Högna Guðjónssyni 20 lesta bát frá Stykkishólmi. Gísli segir að erfitt hafi verið að fá löndun á sumrin og mörg fyrirtæki lokuð á Snæfellsnesi. Útgerðin gekk vel þrátt fyrir það en hann fann að best var að róa fyrir aðra og því áttu þeir bátinn ekki lengi. Báturinn hét Kristján SH 6. Þetta var 21 brl bátur smíðaður í Stykkishólmi 1961 með150ha Caterpillar vél. Hrönn SH 149. 49

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.