Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 54

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 54
í Ólafsvílc eftir Gunnar Björgvin Jónsson frá Sjávarborg Þetta Ijóð sem hér birtist er úr Ijóðabók sem heitir Brimberg og hún kom út árið 1967. Ljóðabókin er eftir Gunnar Björgvin Jónsson frá Sjávarborg en hann bjó i Ólafsvík árin frá 1963 til 1967. Mörg góð Ijóð eru í bókinni en Ijóðið sem heitir í Ólafsvík birtist hér. Fyrir rúmu fjóru og hálfu ári fluttist ég í þessa litlu vík. Hef ei síðan fórnað tregatári, tjóni firrtur hér í Ólafsvík. Að engu er hér ástæðu að finna, og undarlegt, hve fólkið er mér kært. Hér eru hendur vanar því að vinna. Menn vita líka, að það er tímabært. Hér reyna menn að gera að gamni sínu, þótt gangi misjafnt þeirra mannlífs ferð, af feginleik ég fagna í hjarta mínu hve fólkið er hér laust við sundurgerð. Hér bjarmar ennþá yfir gömlum glóðum, hvar ganga mátti beint um Vítishlið. Við erum hér á ferð á fornum slóðum, og finnum gömul spor um tunglskinið. Frá sænum berast blik af öldufaldi, er bátur róinn sækir mat á disk, þá opnast sýnum eins og mynd á tjaldi vort ævilanga stríð við djúpsins fisk. Er flæmir mig á burt sá firnakraftur, er feigð og dauða loks að höndum ber, ég stefni þá til Ólafsvíkur aftur, ef almáttugur guð vill sleppa mér. Spurningar til sjómannskvenna Nafn og starf Rán Kristinsdóttir, snyrtifræðingur. Hefur þú farið á sjó og á hvaða bát? Já, ég hef oft farið á sjó en oftasttil gamans. Ég hef farið á mínum báti Rán SH 307. Varstu sjóveik? Já, ég finn yfirleitt fyrir sjóveiki. Hlustar þú á óskalagaþátt sjómanna? Nei, það geri ég ekki en á það kannski bara eftir. Vildir þú fara í rallý með manninum þínum? Já, ég væri alveg til í að prófa það á alvöru bíl og öllu tilheyrandi. Hver ætti að keyra? Ég mundi vilja keyra sjálf. Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Horfi nú ekki mikið á sjónvarp en ég held ég mundi segja The Voice. Ertu búin að sjá Mamma mia? Nei, ég ekki búin að sjá það en ætla að fara með fjölskyldunni í haust. Hvernig væri draumafrfið þitt? Langar að gera svo margt. Þar sem ég er nú ekki mikið kyrr þá væri æði að fara í hljólaferð eða gönguferð í útlöndum með fjöldkyldunni. Eða rómó ferð með eiginmanninum. Hver er munurinn á báti og skipi? Bátur er lítill og skip er stórt. Ertu á facebook eða tvitter og hvað áttu marga vini? Ég er bara á facebook. Ég á 628 vini í dag. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Þessi er erfið þar sem ég er mikil matmanneskja. Ef ég á að nefna eitthvað eitt þá er rjúpa í mjög miklu uppáhaldi. Gefur maðurinn þinn þér blóm á konudaginn? Já, hann gerir alltaf eitthvað fallegt fyrir mig á konudaginn og marga aðra daga. I hvað starfi væri maðurinn þinn ef hann væri ekki sjómaður? Hann mundi vera að bralla eitthvað í sínu eigin fyrirtæki. Hvert er uppáhalds lagið þitt? Ég á svo sem ekkert eitt uppáhalds það eru svo mörg góð til. Hver er aðal kosturinn að eiga sjómann? Fríin sem koma inn á milli. En ókosturinn? Fjarveran á haustin. Færðu koss frá bóndanum áður en hann fer á sjóinn? Já, ég fæ alltaf nokkra kossa frá honum áður en hann fer á sjóinn. Mottóið er: Er að hugsa jákvætt þá er allt svo miklu léttara og skemmtilegra. 52

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.