Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 57
Léttir SH175 sekkur
í ágúst 1982
í ágúst á þessu ári, nánar tiltekið þann 18. ágúst, eru þrjátíu
og fjögur ár frá því að handfærabáturinn Léttir SH 175 sökk á
Breiðafirði. Með honum fórst eigandi bátsins Óli T. Magnússon
41 árs sjómaður. Óli gerði bátinn, sem var 6 lesta þilfarsbátur,
út á sumrin frá Rifi og þetta var ellefta sumarið sem hann réri
þaðan. Með honum um borð voru tvö börn hans þau Elín sem var
sautján ára og Magnús sem var nítján ára en þau höfðu róið með
honum um sumarið. Þau komust bæði á kjöl en Óla skaut upp úr
styrishúsinu og rak frá bátnum og náðist ekki að bjarga honum.
í meðfygjandi fréttum úr Morgumblaðinu sem fylgja hér með þá
kemur fram hjá þeim systkinum góð lýsing á því sem gerðist en
sautján klukkustundir liðu frá því að slysið varð og þar til þeim var
bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunar. Þá höfðu þau allan
tímann verið á reki í gúmmíbát sem þau náðu að losa með miklu
harðfylgi frá hinum sökkvandi bát. Þótt vistin í gúmmíbátnum hafi
verið þeim mjög erfið þá reyndu þau að hugsa rökrétt og misstu
aldrei stjórn á sér og það varð þeim til bjargar. Gleðin var líka mikil
er þyrlan kom þeim til bjargar. En sjón er sögu ríkari eins og sjá má
í Morgunblaðinu frá þessum tíma.
Pétur Steinar Jóhannsson
Minningarsteinn um sjómannin Óla Tómas Magnússon er í kirkjugarðinum á Ingjaldshóli.
Ljósm: Pétur Steinar.
Flugvél í innanlandsflugi
nam neyðarsendinguna
OndtiríarnMi ag rtm þ» 6
límbtic i hnfimi ag -ihiU »jór.
„Þetta er búið, nú
deyjum við bæði“
Systkin björguðust en fsðir þeirra drukknaði í sjóslysi á Breiðafirði
Sex tonna bátur, Léttir frá Rifi, fórst á Breiðafirði:
Skipstjórinn fórst en
bömum hans var bjargað
- FlugleiAavéi heyrði f neyðarsendi gúmbáts. Vamarf iðsþyrla var f engin tit aðstoðar og bjargaði fólhim
55