Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Blaðsíða 70
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar
opnaður
Það er greinilega góður tími að bjóða til stofnunar nýs fyrirtækis
eftir hádegi á gamlársdag en síðastliðinn gamlársdag buðu
stofnendur Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf íbúum bæjarins að koma
og fagna með þeim opnun fyrirtækisins. Alls mættu um 400 manns
þrátt fyrir að áramótin væru alveg að koma. Starfsemin er í gömlu
húsakynnum Kaupfélagsins Dagsbrúnar og síðar Hólavalla hf.
Þetta er þriðji fiskmarkaðurinn sem er stofnaður á Snæfellsnesi
en sá fyrsti, Fiskmarkaður Snæfellsness, hóf starfsemi sína þann
8. nóvember 1991. Fjöldi manns var þar viðstaddur er fyrsta
uppboðið fór fram og vakti þetta mikla athygli. Fiskseljendur voru
ánægðir með útkomuna og töldu markaðinn mikið framfaraspor
en hann var til húsa í húsnæði Hildar hf í Stakkholtshúsunum.
Stofnendur markaðarins voru þeir Ágúst Sigurðsson kaupmaður,
Þórður T. Stefánsson en hann varframkvæmdastjóri og Guðmundur
Karl Snæbjörnsson læknir í Ólafsvík. Svo er það 8. janúar 1992
að Fiskmarkaður Breiðafjarðar opnar í húsakynnum Sigurðar
Valdimarssonar á Norðurgarði. Fljótlega voru opnaðar starfstöðvar
í Stykkishólmi, Grundarfirði og svo á Arnarstapa. Sjá umfjöllun í
Sjómannadagsblaði Snæfellsbæjar frá 2010.
Stofnendur Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf voru í upphafi þrjár
trilluútgerðir og fleiri hafa bæst við sagði Bárður Guðmundsson
stjórnarformaður fyrirtækisins í ræðu við opnum markaðarins. Auk
hans í stjórninni eru þeir Heiðar Magnússon, Sigurður Jónsson,
Þorsteinn Bárðarson og Friðbjörn Ásbjörnsson en hann er jafnframt
framkvæmdastjóri markaðarins. Friðbjörn sagði við opnunina að
hann væri í hamingjukasti yfir góðum móttökum sem þeir fengu
og þakklátur þeim sem komu til að samfagna. Hann var einnig
ánægður með hve allir voru jákvæðir og hina góðu stemmingu sem
hafði myndast með hinu nýja fyrirtæki. Bárður stjórnarformaður
sagði að vel hafi tekist til við að útvega iðnaðarmenn í Snæfellsbæ
og víðar á Snæfellsnesi til að til að breyta hinu virðulega húsnæði í
það sem það er í dag.
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar var við opnun Fiskmarkaðs
Snæfellsbæjar og tók myndir og fylgja þær hér með og einnig
óskar það fyrirtækinu góðs gengis í framtíðinni.
Eins og sjá má komu margir bæjarbúar til að fagna hinu nýja fyrirtæki. Ljósm: Pétur Steinar.
Stjórnarmenn og eigendur ánægðir með móttökurnar hjá bæjarbúum: Frá vinstri: Friðbjörn Ásbjörnsson,
Heiðar Magnússon, Sigurður Jónsson, Bárður Guðmundsson og Þorsteinn Bárðarson.
Ljósm: Pétur Steinar.
Bárður Guðmundsson stjórnarformaður Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf að skera fyrstu sneiðina úr
flottu marsipantertunni sem var fyrir gesti: Ljósm: Pétur Steinar.
Pétur Steinar Jóhannsson
I miðið er Þórður Stefánsson en hann var framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsness sem
stofnaður var 1991. Með honum er Fríða Sveinsdóttir og Hjörleifur Guðmundsson en þau eru
eigendur HG Geisla ehf í Ólafsvík.Ljósm: Pétur Steinar.
68