Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 29

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 29
 31 Þorgerður Einarsdóttir kyngervi. Hugtakið þegnréttur gefur möguleika á að skoða hvernig konur eru „meðteknar“ í samfélaginu (e. inclusion); hvernig hlutdeild þeirra og samfélagslegri þátttöku er háttað og á hvaða forsendum þær eru taldar með, í stað þess að beina sjónum að útilokun þeirra (e. exclusion) eins og títt er um kynjakerfiskenningar (e. patriarchy, gender order) (sjá t.d. Walby, 1997). Fyrri heimsstyrjöldin – lagalega rétthæstar kvenna í víðri veröld Ísland var landbúnaðar- og fiskiveiðisamfélag árið 1917 þegar Kvenréttindafélagið gagnrýndi fjarveru kvenna úr dýrtíðar- og bjargráðanefndunum. Um 60% landsmanna unnu við landbúnað og fiskveiðar en iðnvæðing var varla hafin (Guðmundur Jónsson og Magnús S. Magnússon, 1997). Fyrri heimsstyrjöldin stóð sem hæst og á Íslandi gekk í garð erfiðleikatímabil sem stóð allt fram til 1920. Það hafði í för með sér versnandi viðskiptakjör og hækkandi verðlag, auk minnkandi fiskafla vegna sölu á helmingi togaraflotans (Magnús S. Magnússon, 1993). Í Kvennablaðinu var fjallað um atvinnuleysi, vöruskort og skömmtunarkerfi (Bríet Bjarnhéðinsdóttir, 1917b). Eins og fram kom hér að framan talar Guðjón Friðriksson um „neyðarástand“ í Reykjavík (Guðjón Friðriksson, 1994:3). Verkafólk og bændur bjuggu við ótrygga afkomu. Fyrri heimsstyrjöldin raskaði því valdakerfi sem ríkt hafði á heimastjórnartímabilinu og ýtti undir samtakamyndun bænda og verkafólks með stofnun Framsóknarflokks og Alþýðuflokks árið 1916 (Gunnar Helgi Kristinsson, 1993). Verkalýðshreyfingunni óx ásmegin og stéttaátök hófust fyrir alvöru. Áfram voru konur þó jaðarsettar í hinu nýja valdakerfi og gilti þá einu hvort um var að ræða stéttarfélög, pólitíska flokka eða stjórnkerfið. Íslenska þjóðin var í miðri sjálfstæðisbaráttu og konur í kvenfrelsisbaráttu (Sigríður Matthíasdóttir, 2004). Konur höfðu fengið rétt til náms, styrkja og embætta árið 1911. Annars staðar á Norðurlöndum höfðu konur fengið rétt til að nema við háskóla talsvert fyrr, eða á árunum 1873-1901. Ísland var hins vegar fyrsta landið til að veita konum rétt til opinberra embætta á sama tíma og rétt til náms, hvergi annars staðar hafði slíkt verið gert. Konur í Dan- mörku fengu rétt til embætta árið 1921 og konur í Noregi 1938 (Bergqvist, 1999, Sigríður Th. Erlendsdóttir, 1993). Þegar kosningarétturinn fékkst þessu til viðbótar, fyrir konur 40 ára og eldri, ríkti mikil bjartsýni meðal íslenskra kvenna sem töldu sig nú hafa ákveðna sérstöðu: „Þannig erum vér, íslenzkar konur, lagalega rétthæstar allra kvenna í víðri veröld“, eins og Inga Lára Lárusdóttir sagði í fyrsta tölublaði 19. júní árið 1917 (Inga Lára Lárusdóttir, 1917: 1). Margar kvenréttindakonur töldu að pólitískum réttindum fylgdi skyldan til þátttöku. Um leið og konur fengu rétt til þátttöku í bæjarmálum buðu þær fram sérstakan kvennalista og fengu fjórar konur kjörnar í bæjarstjórn Reykjavíkur árið 1908 (Sigríður Th. Erlendsdóttir, 1993). Bríet Bjarnhéðinsdóttir, sem var formaður Kvenréttindafélagsins og gaf út Kvenna- blaðið, hvatti konur til að láta til sín taka á vettvangi stjórnmála, með beinni þátttöku þar sem þær höfðu kosningarétt eins og í bæjarmálum, og með óbeinni þátttöku þar sem þær höfðu hann ekki, svo sem í landsmálum (sjá [Bríet Bjarnhéðinsdóttir], 1911 og 1913). Sjálf nýtti Bríet pólitísk réttindi sín óspart. Hún var fjórða á lista Heimastjórnarflokksins árið 1916. Listinn fékk þrjá kjörna en Bríet féll niður um sæti vegna útstrikana. Hún var annar varamaður og fór aldrei á þing (Sigríður Th. Erlendsdóttir, 1993: 139). Þetta gaf forsmekkinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.