Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 30

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 30
 32 að því sem koma skyldi. Konum var ekki greiður aðgangur að hinu pólitíska kerfi. Fyrsta konan á Alþingi var Ingibjörg H. Bjarnason, kosin af sérstökum kvennalista árið 1922. Þróunin var afar hæg fram eftir öldinni. Í 68 ár eftir að konur fengu pólitísk réttindi, frá 1915 til 1983, voru þrjár eða færri konur á Alþingi og stundum engin. Margir flokkar voru seinir að treysta konum fyrir þingmennsku og ráðherraembættum (Þorgerður Einarsdóttir og Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, 2009). Á fyrstu áratugum 20. aldarinnar var ríflega þriðjungur kvenna virkur á vinnumarkaði. Um það bil helmingur þeirra tilheyrði stétt vinnukvenna og ríflega þriðjungur vann í landbúnaði og iðnaði (Guðmundur Jónsson og Magnús S. Magnússon, 1997). Atvinnuþátttakan var mest meðal fátækra kvenna og kjör þeirra voru bágborin. Fiskvinna og „eyrarvinna“ var algeng og þar voru laun kvenna oft um helmingur af launum karla (Bríet Bjarnhéðinsdóttir, 1915: 2). Hagtölur sýna að árið 1917 átti hver kona 3,8 börn en ekki eru til sundurgreindar upplýsingar um atvinnustöðu kvenna eftir hjúskap og barnafjölda. Vel yfir helmingur ógiftra kvenna var virkur á vinnumarkaði, eða 57%, á móti um 5% giftra kvenna. Um það bil tíunda hvert barn var fætt utan hjónabands á árunum 1900 til 1930 (Guðmundur Jónsson og Magnús S. Magnússon, 1997). Líklegt er að mæður þeirra barna hafi þurft að framfleyta sér og því má leiða getum að því að margar þeirra ógiftu kvenna sem voru á vinnumarkaði hafi haft fyrir börnum að sjá. Kvenréttindafélagið hafði starfað síðan 1907 og beitt sér í málefnum verkakvenna. Eftir þreifingar og baráttu félagsins höfðu laun kvenna hækkað nokkuð en sumarið 1914 höfðu ýmsir atvinnurekendur lækkað launin (úr 20 aurum niður í 17 aura) ([Bríet Bjarnhéðinsdóttir], 1915). Í framhaldi af þessu var verkakvennafélagið Framsókn stofnað árið 1914, en konum hafði verið meinuð innganga í Dagsbrún við stofnun þess árið 1906 (Sigríður Th. Erlendsdóttir, 1993). Á nokkrum mánuðum voru félagskonur orðnar á annað hundrað talsins. Í umfjöllun sinni sýnir Kvennablaðið skilning á að tímarnir séu erfiðir fyrir útgerðarmenn en bætir við að þeir séu það ekki síður fyrir verkalýðinn: „Allar vörur, bæði matvörur útlendar og innlendar, kol, olía, húsaleiga og skattar hækka gífurlega, og þeir sem fyrir fáum árum gátu lifað af vinnulaunum sínum, geta það ekki nú“ ([Bríet Bjarnhéðinsdóttir], 1915: 2). Dagvistun fyrir börn útivinnandi mæðra var lítil sem engin. Bríet Bjarnhéðinsdóttir og fleiri börðust fyrir dagvistun fyrir fátækar fjölskyldur. Árið 1906 var vöggustofan Karítas í Reykjavík opnuð með vistun fyrir 3-18 mánaða gömul börn „fátækra einyrkja-kvenna, sem eru að reyna að hafa ofan af fyrir sér, en verða ómagar af ungabarninu“ ([Bríet Bjarnhéðinsdóttir], 1905: 10). Reikna má með að þörfin hafi verið allnokkur því Karítas var rekin í nokkur ár (Guðjón Friðriksson, 1994: 135). Tveir opnir leikvellir voru opnaðir í Reykjavík árið 1908 fyrir baráttu kvenna í bæjarstjórn Reykjavíkur. Eftir samstillt átak Kvenréttindafélagsins og kvenna í bæjarstjórn voru fleiri leikvellir opnaðir 1915 (Sigríður Th. Erlendsdóttir, 1993). Leikvellirnir buðu upp á hlutadagsvistun og þjónuðu því aðallega mæðrum í hlutastarfi. Síðar urðu leikvellir hluti af hinni íslensku leið til að mæta þörfum útivinnandi mæðra. Þetta fyrirkomulag spratt úr og ýtti undir þær hugmyndir að konur væru fyrst og fremst mæður og húsmæður sem sinntu launavinnu af nauðsyn eingöngu. Konur á Íslandi voru þátttakendur í samfélaginu en launavinna þeirra og þegnréttur tók mið af hlutverki þeirra sem mæðra og húsmæðra með kröfu um að þær gegndu ólíkum hlutverkum samtímis. Barátta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.