Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 53

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 53
 55 Jón Rúnar Sveinsson Hæg þróun verkamannabústaðanna Verkamannabústaðirnir voru fyrsta skipulega opinbera húsnæðisátakið í þágu íbúa þéttbýlis­ staða á Íslandi.2 Ýmislegt varð þó þess valdandi að byggingar þeirra urðu aldrei umfangs­ miklar og voru lengst af aðeins jaðarfyrirbæri í fremur fábreyttri íslenskri húsnæðisflóru. Þessu olli ekki síst heimskreppa fjórða áratugarins, sem skall á í þann mund sem lögin um verkamannabústaði voru samþykkt. Vissulega tókst að koma málinu í gegn á Alþingi áður en heimskreppan skall á, en á hinn bóginn er einnig sennilegt að kreppan hafi dregið úr bygg­ ingum á vegum þeirra byggingarfélaga sem stofnuð höfðu verið, einkum þó er leið á fjórða áratuginn. Einnig stóð verulegur styr um áhrif verkalýðsflokkanna innan byggingarfélaganna, sem náðu hámarki þegar félagið sem Héðinn Valdimarsson stýrði í Reykjavík, Byggingar­ félag alþýðu, var svipt byggingarrétti, sem færður var til nýs Byggingarfélags verkamanna þar sem Guðmundur Í. Guðmundsson, síðar utanríkisráðherra, var formaður (Ingólfur Kristjáns­ son, 1964). Atburðir þessir urðu eftir að Héðinn Valdimarsson hafði yfirgefið Alþýðuflokkinn árið 1938 og gengið til liðs við nýstofnaðan Sósíalistaflokk. Í töflu 2 má sjá yfirlit yfir byggingar verkamannabústaða frá 1930 til 1990 og síðan byggingar félagslegra eignaríbúða 1990-1998. Taflan sýnir að uppbygging verkamannabústaðanna var tiltölulega hæg fyrstu þrjá áratugina. Árabilið 1931-1940 voru þannig byggðar rúmlega 200 íbúðir í verkamannabústöð- um, á sama tíma og byggðar voru vel á sjötta þúsund íbúðir á landinu öllu. Verkamanna- bústaðir náðu (sjá 4. dálk töflunnar) að verða 4% allra nýrra íbúðabygginga landsmanna á fjórða áratugnum, 4,6% á þeim fimmta og 3,5% á þeim sjötta. Síðasti dálkur töflu 2 sýnir hvernig hlutfall verkamannabústaðanna hækkar smátt og smátt sem hlutfall alls húsnæðis landsmanna á hverjum tíma. Undir lok sjötta áratugarins var það aðeins orðið sem svaraði til 2,4% alls húsnæðisins. Uppbygging verkamannabústaðanna var þannig frekar hæg lengi framan af. Leiða má að því sterkar líkur að byggingarstarfsemi byggingarsamvinnufélaga hafi á sama tíma verið að minnsta kosti af svipuðu umfangi, en um hana skortir heildstæðar tölfræðilegar upplýsingar. Byggingarsamvinnufélögin voru oft stofnuð af stéttarfélögum og þar með tengd verkalýðs­ hreyfingunni sterkum böndum, ekki síður en einstök byggingarfélög verkamanna. Sem dæmi um byggingarsamvinnufélag sem um árabil starfaði af miklum krafti má nefna Byggingarsam­ vinnufélag prentara, en það stóð fyrir byggingu 192 íbúða á árunum 1945-1959 (Ingi Rúnar Eðvarðsson, 1997). Samkvæmt yfirliti Jóns Blöndals yfir starfsemi byggingarfélaga verkamanna til ársins 1941 (Jón Blöndal, 1942) höfðu þá verið byggðir verkamannabústaðir fyrir rúmar 3 milljónir króna. Á sama tíma var um 5 milljónum króna varið til byggingar og endurbyggingar íbúðarhúsa í sveitum landsins (Steingrímur Steinþórsson, 1942). Þá námu heildarlánveitingar Veðdeildar Landsbanka Íslands til íbúðabygginga á landinu öllu 14 milljónum króna ára- tuginn frá 1930 til 1940 (Landsbanki Íslands, 1960). Hlutdeild verkamannabústaða var því 21,4% af öllum lánveitingum. Um 1960 höfðu innan við 1000 íbúðir verið byggðar í verkamannabústöðum og er ljóst að er hér var komið sögu voru stóðu Íslendingar langt að baki hinum Norðurlöndunum við uppbyggingu félagslegra húsnæðisúrræða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.