Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 68

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 68
 70 Inngangur Fólk sem á við geðræn vandamál að stríða býr við annan félagslegan veruleika en aðrir. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að fordómar, skömm og félagsleg útilokun eru oft hluti af daglegu lífi þessara einstaklinga (Angermeyer og Dietrich, 2005). Fordómar og neikvæð viðhorf gagnvart geðrænum vandamálum móta veruleika þeirra sem glíma við slík vandamál með margvíslegum hætti. Fordómar geta valdið mismunun, til að mynda á vinnumarkaði, auk þess sem neikvæðar hugmyndir almennings um geðræn vandamál, sem birtast til dæmis í fjölmiðlum (Link og Phelan, 2001; Thoits, 1985), geta haft slæm áhrif á sjálfsmynd þeirra sem við þau glíma. Þá getur ótti þeirra sem greinast með geðsjúkdóm við að upplifa höfnun og skömm orðið til þess að þeir dragi sig úr eðlilegri þátttöku í samfélaginu (Link o.fl., 1989). Fordómar bitna þannig á lífsgæðum einstaklingsins og fjölskyldu hans (Katching, 2000; Wahl, 1999) og geta dregið úr notkun á heilbrigðisþjónustu (Estroff, 1981; Markowitz, 2001). Félagsfræðingar hafa löngum reynt að skilja eðli og afleiðingar fordóma. Sumir af mikilvægustu félagsfræðingum 20. aldar beindu sjónum sínum að geðrænum vandamálum og fordómum. Foucault (1965) skoðaði söguleg gögn frá sautjándu öld um það hvernig þeir sem áttu við geðræn vandamál að stríða voru álitnir minna virði en aðrir og Goffman (1961) skrifaði um smán (e. stigma) geðsjúkra. Goffman skilgreindi smán sem „einkenni, sem samkvæmt ráðandi félagslegum viðmiðum dregur mjög mikið úr virði manneskjunnar, skilgreinir hana sem óhreina og gefur öðrum leyfi til að niðurlægja hana― (Goffman, 1961:3). Félagsfræðingar hafa nýlega leitast við að þróa líkön til að skilja eðli og afleiðingar fordóma og í auknum mæli reynt að prófa slík líkön í rannsóknum (Link og Phelan, 2001; Pescosolido o.fl., 2008). Erlendar rannsóknir benda til þess að neikvæð viðhorf gagnvart geðrænum vandamálum hafi ekki verið á undanhaldi á síðastliðnum áratugum, þrátt fyrir aukna vitund almennings um að geðræn vandamál séu „raunveruleg― og eigi sér oft líffræðilegar skýringar. Líklega kemur ekki á óvart að fordómar voru útbreiddir um miðja tuttugustu öld, til dæmis í Bandaríkjunum (Cumming og Cumming, 1957; Starr, 1955). Á þessum tíma var meðferð við geðrænum vandamálum oftast fólgin í útskúfun úr samfélaginu með vistun á stofnunum sem veittu ómannúðlega meðferð. Margt hefur breyst síðan á þessum tíma, til dæmis með aukinni umræðu og stefnumótun um að veita einstaklingum þjónustu utan stofnana. Líffræðilegum skýringum á geðrænum vandamálum hefur vaxið ásmegin, þar sem læknar, stefnumótendur og hagsmunasamtök hafa lagt æ meiri áherslu á að líta beri á geðræn vandamál sem sjúkdóma líkt og um líkamleg vandamál sé að ræða (Phelan, 2005; Schnittker, 2008). Margir hafa talið að sú breyting að líta á geðræn vandamál sem sjúkdóm fremur en einstaklingsbundið vandamál geti dregið úr fordómum, þar sem fólk hefur tilhneigingu til þess að líta svo á að einstaklingar geti ekki borið ábyrgð á því að veikjast af sjúkdómi. Rannsóknir frá ýmsum löndum benda þó til þess að sjúkdómsvæðing geðrænna vandamála hafi ekki dregið úr fordómum gagnvart þeim sem eiga við þau að etja (Angermeyer og Matschinger, 2005; Bag o.fl., 2006; Lauber o.fl., 2004; Pescosolido o.fl., 2010; Phelan, 2005; Schnittker, 2008). Rannsakendur hafa oft lagt meiri áherslu á að skoða umfang fordóma og neikvæðra viðhorfa en á að finna skýringar á því hvaða þættir ýta undir slík viðhorf. Enn fremur hafa fáar rannsóknir beint sjónum að samanburði milli landa (Angermeyer og Dietrich, 2006), enda hafa samanburðarhæf gögn um fordóma og smán hingað til verið af skornum skammti. Í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.