Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Qupperneq 80

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Qupperneq 80
 82 Svipaða sögu er að segja af neikvæðum tilfinningum, félagslegri fjarlægð og ógn: viðhorfin gagnvart geðklofahópnum eru marktækt neikvæðari í Bandaríkjunum en í hinum löndunum. Reyndar vekur athygli hve svarendur í Bandaríkjum hafa sterka tilhneigingu til þess að telja einstakling með geðklofaeinkenni hættulegan öðrum. Eins og áður er sagt sýnir mynd 1 að sú tilhneiging er mun sterkari í Bandaríkjunum en í hinum löndunum. Niðurstöður fyrir þunglyndiseinkennin eru ekki eins skýrar, en þær sýna engu að síður merkjanlegan mun milli landa. Niðurstöður fyrir hefðbundna fordóma sýna að vísu engan marktækan mun milli landa; þunglyndiseinkenni kalla á fleiri stig en astmaeinkenni, en sú tilhneiging er svipuð í löndunum þremur. Aftur á móti sýna líkön 2, 3 og 4 að neikvæð við- brögð við þunglyndiseinkennum eru einna mildust á Íslandi. Niðurstöður úr líkani 2 sýna að þótt svarendur í öllum löndunum hafi tilhneigingu til að hafa neikvæðar tilfinningar gagnvart einstaklingi með þunglyndiseinkenni er sú tilhneiging veikari á Íslandi en í bæði Þýskalandi og Bandaríkjunum. Svipaða sögu er að segja af ógn (líkan 4) en á Íslandi kalla þunglyndis- einkenni síður á þá hugmynd að einstaklingurinn sé hættulegur en í hinum löndunum tveimur. Loks sýna niðurstöður fyrir félagslega fjarlægð (líkan 3) marktækan mun á Íslandi og Banda- ríkjunum; þunglyndiseinkenni kalla á meiri félagslega fjarlægð í síðarnefnda landinu (í viðauka 3 má finna hlutfallsleg svör þátttakenda í hverju landi við einstaka fullyrðingum). Mynd 3. Áhrif þess á ógn að telja þunglyndisástandið stafa af sjúkdómi í heila: Myndin sýnir líkindi þess að svarandi telji að einstaklingur með þunglyndiseinkenni sé líklegur til að beita ofbeldi (stjórnbreytur fá meðalgildi í útreikningum). 0,04 0,08 0,22 0,06 0,34 0,34 0 0,1 0,2 0,3 0,4 0,5 0,6 Ísland Þýskaland Bandaríkin Svarandi telur ástandið ekki stafa af sjúkdómi í heila Svarandi telur ástandið stafa af sjúkdómi í heila
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.