Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 81
83
Sigrún Ólafsdóttir og Jón Gunnar Bernburg
Umræða
Félagsfræðingar hafa lengi vakið athygli á því að neikvæðar staðalmyndir af einstaklingum
sem glíma við geðræn vandamál hafa verulega útbreiðslu meðal almennings. Dæmi um slíka
staðalmynd er sú hugmynd að einstaklingar sem eiga við tiltekin geðræn vandamál að stríða
séu hættulegir öðru fólki. Menningarleg tilvist svona hugmynda skerðir lífsgæði þeirra
einstaklinga sem þjást af geðrænum vandamálum með margvíslegum hætti, til dæmis með því
að ýta undir félagslega einangrun þessa hóps (Link o.fl., 1989). Rannsókn okkar á viðhorfum
almennings í þremur löndum, Íslandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum, staðfestir umtalsverða
útbreiðslu fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál. Fólk í þessum löndum er
mun líklegra til þess að hafa fordóma og neikvæðar tilfinningar í garð einstaklinga sem eiga
við geðræn vandamál að stríða en þeirra sem glíma við líkamlegt vandamál sem ekki er
ástæða til að ætla að tengist neikvæðum staðalmyndum (astma). Enn fremur styður það ytra
réttmæti rannsóknarinnar að þessar niðurstöður koma fram fyrir ólíkar mælingar á neikvæðum
viðhorfum.
Rannsókn okkar bendir til þess að læknisfræðilegar skýringar á geðrænum vanda-
málum dragi ekki úr smán og fordómum gagnvart þeim sem eiga við slík vandamál að stríða.
Þvert á móti sýna niðurstöður okkar að svarendur sem telja tiltekið ástand vera „geðsjúkdóm―
eða „sjúkdóm í heila― eru líklegri en aðrir til að hafa fordóma gagnvart viðkomandi ein-
staklingi. Líkt og fyrri rannsóknir (Angermeyer og Matschinger, 2005; Phelan, 2005;
Schnittker, 2008) bendir rannsókn okkar til þess að sú leið að sannfæra almenning um að líta
á geðræn vandamál sem sjúkdóm og læknisfræðilegt viðfangsefni muni líklega ekki draga úr
neikvæðum viðhorfum gagnvart þeim sem eiga við slík vandamál að stríða. Samanburður á
milli landa er sérstaklega áhugaverður í þessu sambandi. Læknisfræðilega sjónarhornið virðist
hafa einna minnst áhrif á neikvæð viðhorf á Íslandi. Í Bandaríkjunum koma fram neikvæðustu
viðhorfin ef svarendur skilgreina ástandið sem geðsjúkdóm en í Þýskalandi mótast neikvæð
viðhorf einna mest af þeirri hugmynd að ástandið stafi af sjúkdómi í heila. Þessar niðurstöður
sýna mikilvægi þess að skoða ólíkar læknisfræðilegar skýringar og ættu rannsóknir í fram-
tíðinni að skoða þetta nánar.
Rannsókn okkar leiðir í ljós verulegan mun á milli landa hvað varðar útbreiðslu for-
dóma og neikvæðra hugmynda um geðræn vandamál. Niðurstöðurnar benda til þess að for-
dómar og neikvæð viðhorf gagnvart fólki sem stríðir við geðræn vandamál hafi mun meiri
útbreiðslu í bandarísku samfélagi en í því íslenska og þýska. Fjölmiðlaumræða gæti skýrt
þennan mun að hluta, en rannsóknir gefa til kynna að dagblöð í Bandaríkjunum fjalla meira en
dagblöð á Íslandi og í Þýskalandi um þá hættu sem almenningi stafar af einstaklingum með
geðræn vandamál (Sigrún Ólafsdóttir, 2010). Vera má að slík umræða kyndi undir fordóma
og neikvæðar tilfinningar, þótt það sé að sjálfsögðu rétt að hafa það í huga að fjölmiðlar hafa
ríka tilhneigingu til þess að endurspegla þau viðhorf sem ríkjandi eru í samfélaginu á hverjum
tíma. Velta má fyrir sér hvort sú umræða sem hófst í íslensku samfélagi í kringum árið 2000
þar sem lögð var áhersla á að draga úr fordómum gagnvart geðrænum vandamálum hafi skilað
sér í jákvæðari viðhorfum á Íslandi. Engin leið er þó að segja til um það hvernig fordómar
hafa þróast á undanförnum árum þar sem rannsókn af því tagi sem hér hefur verið kynnt hefur
ekki verið framkvæmd áður hérlendis.
Rannsókn okkar hefur ákveðnar takmarkanir. Í fyrsta lagi höfum við aðeins borið