Morgunblaðið - 24.03.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MARZ 1985
Hjátrúin og íþróttafólk:
Ekki tapað leik
síðan hann klæddist
nýja búningnum
„ÉG HEF bundist tryggðabönd-
um við þennan æfingabúning. Við
höfum ekki tapað leik eftir að ég
fékk hann. Eg er þjálfari 2.
flokks hjá Víkingi og við fórum í
gegn um úrslitakeppni 2. flokks
og urðum íslandsmeistarar án
þess að tapa leik. Við höfum síð-
an unnið tvo bikarleiki, gegn
Njarðvík og FH og í 1. deild höf-
um við borið sigurorð af KR, Val
og FH. Ég mun því mæta til leiks
í búningnum gegn Barrelona,"
sagði borbergur Aðalsteinsson,
stórskytta bikarmeistara Víkings,
sem í kvöld kl. 20.30 mætir Barc-
elona í undanúrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa í Laugardals-
höll. Hjátrú er algeng meðal íþr-
óttamanna. Uorbergur fékk fyrir
nokkru æfingabúning frá Adidas
og hefur síðan ávallt mætt i þeim
búning í leiki Víkings.
„Eg tel mig ekki hjátrúar-
fullan mann, en einhvern veg-
inn hef ég fengið trú á þessum
búningi. Hann er fullur af ör-
yggi — um það er engin spurn-
ing,“ sagði Þorbergur.
— Nú er búningurinn eins og
Bogdan Kowalczyk, þjálfari
þinn hjá Víkingi, klæðist.
Skiptir það einhverju máli?
„Nei, það skiptir engu. Auk
þess eru þeir ekki eins á litinn
og Bogdan hefur oft tapað leik í
sínum búningi.
Leikurinn gegn Barcelona
leggst vel í mig. Við höfum allt
að vinna, engu að tapa og ef við
náum upp góðri vörn og mark-
vörzlu, trúi ég að Víkingur
vinni. Hins vegar verðum við að
gera okkur grein fyrir því, að
Barcelona er Evrópumeistari
bikarhafa og liðið er áreiðan-
lega sterkara en lið Víkings. En
mikil reynsla býr í Víkingslið-
inu og hætt er við að Spánverj-
arnir vanmeti okkur, þó þeir
segist ekki gera það.
Evrópuleikir Víkings í gegn
um árin hafa alltaf verið mjög
skemmtilegir og ég held að við-
ureignin við Barcelona verði
engin undantekning. Við Vík-
ingar þekkjum af reynslunni,
að það er ekki alltaf sterkara
liðið sem fer áfram. í Evrópu-
keppni er allt hægt — hið
óvænta getur gerst — og með
það í huga förum við í leikina
við Barcelona, við höfum allt að
vinna," sagði Þorbergur Aðal-
steinsson.
Kísilryk, aukaafurð á Grundartanga:
Gæti gefíð af sér
40 milljónir á ári
Járnblendið og Sementsverksmiðjan stofna sameignarfélag til að þróa notkun kísilryks
Járnblendifélagið á Grund-
artanga leitar nú leiða til aö
auka notkun kísilryks, sem er
aukaafurö sem síast við
reykhreinsun þegar kísiljárnið
er framleitt. Efni þetta liggur
nú í haugum á Grundartanga,
en talið er að þessi afurð geti
gefið verulega af sér. Verk-
smiðjan seldi tæp 8 þúsund
tonn af kísilryki til Sements-
verksmiðju ríkisins á sl. ári,
fyrir tæpar 700 krónur tonnið,
sem verksmiðjan notar sem
bætiefni við sementsgerð, og
nýlega var gerður samningur
við Japaní fyrir milligöngu
Sumitomo um kaup á 700
tonnum af kísilryki, sem verð-
ur flutt áleiðis til Japan fljót-
lega eftir páska.
Japanir borga mun betra verð
fyrir kísilrykið, eða um 2100
krónur fyrir tonnið, en þeir hjá
Járnblendifélaginu telja að
tonnið kosti Japani um 4000
krónur, komið heim til Japan.
Um 18 þúsund tonn leggjast til
af kísilryki á ári, miðað við há-
marksafkost verksmiðjunnar,
þ.e. um 60 þúsund tonn af 75%
kísiljárni. Þannig gæti verk-
smiðjan fengið tæpar 40 millj-
ónir króna á ári fyrir þessa
aukaafurð, ef öll framleiðslan
seldist til Japan.
Járnblendifélagið og Sem-
entsverksmiðja ríkisins hafa
gert með sér samkomulag um að
setja á laggirnar sameignarfé-
lag næstu tvö ár til að þróa sam-
eiginlega notkun kísilryks og
sements í mannvirkjagerð og
ýmsar frmleiðsluvörur. Verður
leitast við að finna leiðir til að
auka notkun sements og kísil-
ryks i byggingafiðnaði og maiín-
virkjagerð, að þróa aðferðir til
að framleiða efni og efnablönd-
ur í ýmsar tegundir steinsteypu,
sem hafi sérstaka eiginleika
umfram venjulega steinsteypu,
og að þróa og framleiða mark-
aðsvörur úr sérsteypu eftir því
sem þarfir markaðarins og eig-
inleikar sérsteypunnar geta gef-
ið tilefni til.
Fyrsta vörutegundin sem er
ávöxtur þessarar samvinnu er
flotbryggja úr sérstakri steypu,
sem nú er reynd fyrir smábáta í
Akraneshöfn, í samvinnu við
Akraneskaupstað.
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs:
Sveinn Ein-
arsson í út-
hlutunarnefnd
Menntamálaráóherra hefur skip-
að Svein Einarsson, fyrrum Þjóð-
leikhússtjóra, í úthlutunarnefnd
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs. Tekur hann sæti lleimis Páls-
sonar, fyrrum menntaskóiakennara.
Heimir Pálsson var skipaður í
nefndina fyrir 3 árum ásamt Jó-
hanni Hjálmarssyni, bókmennta-
gagnrýnanda. Skipunartími þeirra
rann út 1. mars sl. og var skipun
nýrrar nefndar ákveðin fyrir þann
tíma. Jóhann var endurskipaður
nú og kom fram í samtali Mbl. við
Ragnhildi Helgadóttur, mennta-
málaráðherra, í gær, að hún hefði
talið heppilegt að annar héldi sæti
sínu. Mjög misjafnt hefði verið
hvort menn sætu eitt timabil eða
tvö í nefndinni. Jóhann og Sveinn
voru skipaðir til næstu fjögurra
ára, en varamaður verður áfram
Sveinn Skorri Höskuldsson.
Skipaafgreiðsla
Húsavíkur hf:
Saksóknari
höfðar mál
TVEIR ungir menn á Húsavík,
llannes Höskuldsson og Árni Grétar
Gunnarsson, stofnuðu á síðastliðnu
sumri fyrirtækið Skipaafgreiðslu
Húsavíkur hf. Þessir menn eru jafn-
framt umboðsaðilar fyrir Eimskip og
Hafskip á Húsavík.
Þeir fengu vöruskemmu á hafn-
arbakkanum og gerðu m.a. samn-
ing við Kísiliðjuna um að taka við
flutningum á kísilgúr, geyma
hann í vöruskemmunni og skipa
honum út.
Að sögn Þórarins Þórarinsson-
ar, lögmanns þeirra, kærði bíl-
stjórafélagið á Húsavík þetta
nýstofnaða fyrirtæki í haust og
telur að það brjóti á sér rétt, með
þvi að nota vörubíla í eigin eigu til
aksturs á kísilgúrnum úr vöru-
skemmunni og niður að skipshlið,
sem er um 200 metra vegalengd.
Saksóknari ríkisins höfðaði
opinbert mál og gerir þá kröfu að
þeir Hannes og Arni Grétar verði
dæmdir til refsingar fyrir þessa
starfsemi, sem saksóknari telur að
varði einkarétt vörubifreiðastjór-
anna til leiguaksturs.
Málflutningur fór fram á Húsa-
vík sl. fimmtudag og er dóms að
vænta eftir'nokkrar vikur:
Nýr steindur gluggi
í Hveragerðiskirkju
HVERAGEKÐISKIRKJA er að eignast stóran fagran kirkjuglugga úr
steindu gleri. Listaverkið er eftir Höllu Haraldsdóttur myndlistarmann
og framleitt hjá glergerðarverkstæði Oidtmans í Linnich í Þýskalandi.
Hefur annar eigandinn, Fritz Oidtman, verið hér til að koma steinda
glugganum fyrir í kirkjunni með aðstoð tveggja heimamanna, en glugginn
verður vígður við messu i kirkjunni á sunnudag.
Nýi steindi glugginn er um 22
fermetrar að stærð, 14,5 m hár
og er í stafni, upp af altarinu.
Vandi listamannsins og fram-
leiðandans var m.a. sá, að úti er
stór steinsteyptur kross, sem
hefði sést í gegnum listaverkið.
Það var leyst á þann hátt að
nota svonefnt opak-gler i steindu
gluggana, en það er unnið þann-
ig að hver rúða er blásin í þrem-
ur litum, sem koma saman og
verða rúðurnar þannig skyggðar.
þannig sést krossinn ekki bera í
listaverkið að innan nema hvað
hann myndar eins og daufan
skugga í sterku sólskini. Verk-
stæði Oidtmans, sem hefur nú
um 2.500 liti í steinda glugga á
lager sínum, getur framleitt um
200 litaafbrigöi með þessari að-
ferð. En slíkir skyggðir gluggar
hafa ekki verið notaðir hér fyrr.
Halla Haraldsdóttir vann að
gluggunum í Hveragerðiskirkju í
Linnich í haust. Viðfangsefni
listaverksins er Kristsmynd, en
tekið er mið af umhverfinu í
Hveragerði. Listakonan hefur
hefur oft verið við störf á listiðn-
aðarverkstæðinu i Linnich sl. 5
ár, en þar eru nú sýnishorn eftir
hana og kynning fyrir þá byggj-
endur sem eru að leita eftir
listamönnum til að skreyta
byggingar og kirkjur. Á þessu
ári verður í Sviss stór sýning á
um 100 steindum gluggum eftir
þá alþjóðlegu listamenn, sem
verkstæði Oidtmans vinnur verk
eftir, og á Halla þar stelndan
glugga. Auk þess verða eftir
hana myndir af 7 steindum
gluggum í listaverkabók um trú-
arlega list sem Kieferforlag 1
Wuppertal er að gefa út. Og þar
verður einnig mynd af glerlista-
verki eftir aðra íslenska stúlku,
Svövu Björnsdóttur myndhöggv-
ara í Múnchen.
Unnið hefur verið nð þvf að setja
upp nýjan steindan glugga eftir
Höllu Haraldsdóttur í Hveragerð-
iskirkju og verður hann vfgður við
messu á sunnudag. Glugginn er 22
fermetrar að stærð.