Morgunblaðið - 24.03.1985, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MARZ 1985
35
Egilsstaðir:
Æskulýðs-
dagurá
ári æsk-
unnar
EtpteUMam, 3. mmrs.
JC-HÉRAÐ gekkst fyrir sérstök-
um æskulýðsdögum hér á Egils-
stöðum nú um helgina — sem
lauk í dag með sérstakri hátíðar-
og skemmtidagskrá.
Æskulýftsdagarnir hófust
með unglingadansleik að Iða-
völlum á föstudagskvöldið —
þar sem hljómsveitin Fásinna
lék fyrir dansi. Var þar þröngt
á þingi að sögn og gleði mikil.
Á laugardaginn var efnt til
borgarafundar um málefni
æskunnar á Héraði og var þar
margt valinkunnra frummæl-
Oddviti Egilsstaðahrepps, Sveinn Þórarinsson, var einn frummælenda.
Skólahljómsveit lék vió opnun myndlistarsýningarinnar.
Morgunbla&ið/Ólafur.
enda en áheyrendur hins vegar
fáir. Síðla laugardags var
opnuð myndlistarsýning nem-
enda grunnskólans i tilefni al-
þjóðaárs æskunnar. Kom þar
margt fram bæði i máli og
myndum um væntingar ung-
mennanna á þessu ári æskunn-
ar. Friður var þar ofarlega á
baugi og andóf gegn hvers kon-
ar ofbeldi og vímuefnaneyslu.
Aðrir litu sér hins vegar nær í
óskum sinum og óskuðu sér
rikidæmis eða þá að stelpurnar
fengju að vera í sérstökum
bekkjum í skólanum.
í morgun var sérstök æsku-
lýðsmessa i Egilsstaðakirkju
með þátttöku ungmenna.
— Ólafur
SIM BREYTTIST
Á EINNINÓTTU
Þú getur skemmt þér
stórkostlega í Glasgow, borg-
inni sem breyttist á einni nóttu.
Þótt þér dauðleiðist
sekkjapípumúsík,
finnist skotapils hallærisleg og gamlir kastalar óspennandi, þá
er fjölmargt annað í Glasgow sem gæti heillað þig upp úr
skónum og gert þig að aldavini skoskrar menningar og
lífshátta.
Glasgow er nútímaborg á gömlum grunni. Þangað er aðeins
um 2 klukkustunda flug með Flugleiðum frá íslandi. Þessi
nágrannaborg okkar á sér vaxandi aðdáendahóp hérlendis. Þökk
sé viðmóti Skotanna, kránum, veitingahúsunum, næturklúbbunum,
diskótekunum, verslununum, ágætum söfnum og skemmtilegri
menningu.
Gleymdu öllu sem þú hélst að þú vissir um Glasgow!
- Skoski ballettinn, Skoska óperan, Skoska sinfónían og Skoska
þjóðleikhúsið hafa aðsetur í Glasgow!
- I Glasgow eru 16 fyrsta flokks diskótek, og auðvitað tugir af verri
gerðinni!
- Glasgow státar af 36 veitingahúsum, þar sem matur og þjónusta
eru í hæsta gæðaflokki!
- Glasgow er draumastaður sælkera og lífsnautnamanna. í
borginni eru hvorki fleiri né færri en 80 vínstúkur, ölkrár og litlir
matsölustaðir sem hægt er að mæla sérstaklega með. En þá
eru ótaldir staðir sem heiðarleqir Skotar geta ekki mælt með!
Þú átt varla kost á ódýrara sumarleyfi en ef þú flýgur með
Flugleiðum til Glasgow. Þar býðst gisting á vönduðum hótelum fyrir
hlægilegt verð og í verslunum borgarinnar eru vörurnar á mun
lægra verði en í London.
Skemntíileg borg meó lágan aógangseyri
GLASGOW
LEITIÐ FREKARI UPPIYSINGA
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIDA.
HJÁ UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐA
SKRIFSTOFUM.