Morgunblaðið - 18.11.1993, Blaðsíða 31
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1993
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Þróunarstarf
skílar árangri
TWTiðurskurður þorskaflans
undanfarin ár hefur verið
jmikið áfall fyrir þjóðarbúið, þótt
hann brenni heitast á útgerð og
fiskvinnslu. Síminnkandi hráefni
; hefur opnað augu margra fyrir
; nauðsyn þess að fá meira fyrir
'fiskinn sem kemur til vinnslu,
auka vinnsluvirðið. Þar blasir
fyrst og fremst við vinnsla í neyt-
endapakkningar í stað þess að
selja fiskinn sem hráefni á erlend-
um mörkuðum. Frekari vinnsla
eykur ekki aðeins verðmæti af-
urðanna heldur skapar hún
aukna vinnu, ný störf, og er ekki
vanþörf á í atvinnuleysinu. Fram
til þessa hafa háir tollar á full-
unnum fiskafurðum á erlendum
mörkuðum verið mikill dragbítur
á þróun fiskiðnaðarins en með
samningnum um Evrópskt efna-
hagssvæði, sem væntanlega tek-
ur gildi um næstu áramót, verður
mikil breyting á. Hann felur í sér
niðurfellingu eða stórlækkun á
tollum. Framtíðarhorfur eru því
bjartar, ef fiskiðnaðurinn færir
sér möguleikana í nyt.
í sjávarútvegsblaði Morgun-
blaðsins, Úr verinu, er sagt frá
litlu fjölskyldufyrirtæki á Hauga-
nesi við Eyjafjörð, Trausta sf.,
sem hefur sett á markað saltfisk
í neytendaumbúðum. En saltfísk-
urinn frá. Trausta er öðruvísi en
sá sem íslendingar hafa átt að
venjast um aldir. Hann er útvatn-
aður, beinhreinsaður og frystur
í lofttæmdum umbúðum og fer
i þannig beint í suðu á borð neyt-
andans. Fyrirtækið býður einnig
upp á saltaðar kinnar, kinnfisk
og siginn fisk í neytendaumbúð-
um. Unnið er að þróun á saltfisks-
flökum í neytendaumbúðum sem
henta sérstaklega til steikingar
eða í pottrétti, en þar þarf ann-
ars konar útvötnun en’á saltfíski
til suðu.
Þróunin á saltfískinum tók tvö
og hálft ár og átti fyrirtækið
samvinnu við Iðnþróunarfélag
I Eyjafjarðar, auk þess sem um-
. búðahönnuður og umbúðafyrir-
tæki tóku þátt í verkefninu.
Framleiðslunni hefur verið vel
tekið_ á innanlandsmarkaði og nú
er SÍF að kynna hana í Frakk-
landi, Portúgal og á Spáni. Einn
eigenda fyrirtækisins, Elvar
Reykjalín, segir, að um töluverð-
an virðisauka sé að ræða með
þessari vinnslu á saltfiskinum.
Hann sagði ennfremur í viðtali
við blaðið:
„Með stöðugt minnkandi kvóta
hafa tekjumar og umsvifín
minnkað og fyrir tveimur og
hálfu ári fórum við að leita leiða
til að auka verðmæti framleiðsl-
unnar. Þá lá beinast við að vinna
frekar að því sem við gerum best,
saltfiskinum. Það hefur lítið verið
hugsað um að koma honum á
neytendamarkað þannig að hann
væri aðlaðandi vara, heldur hafa
menn mest flutt fiskinn út í
gámavís til frekari úrvinnslu á
öðrum mörkuðum. Við ákváðum
því að reyna að gera fískinn
þannig úr garði að auðvelt væri
fyrir fólk að matreiða hann.“
Það kom einnig fram hjá Elv-
ari að vandlega er fylgst með
gæðum vörunnar og hann sagði
m.a. að soðin sé prufa úr hverri
útvötnun og þess gætt að fiskur-
inn fari alltaf eins frá fyrirtæk-
inu, þ.e. að gæðin séu ávallt þau
sömu. Gæðaeftirlit er lykilatriði,
ef selja á beint á neytendamarkað
og sem betur fer hafa íslenzkir
framleiðendur verið að gera sér
meiri grein fyrir því síðustu árih.
Þessi saga af litlu fjölskyldufyrir-
tæki á Hauganesi er lýsandi
dæmi um það, hversu miklu er
hægt að áorka með þróun góðrar
hugmyndar.
Við Eyjafjörð er annað fyrir-
tæki sem náð hefur miklum
árangri með framleiðslu á neyt-
endamarkað, en það er Fisk-
vinnslustöð KEA í Hrísey. Fyrir-
tækið hefur um árabil selt laus-
frysta flakabita í neytendapakkn-
ingum til Marks & Spencer verzl-
unarkeðjunnar í Bretlandi. Þessi
framleiðsla er nú um 200 tonn á
ári. Nýlokið er þróun á nýrri
pakkningu fýrir Bretana.
Framkvæmdastjórinn, Ari Þor-
steinsson, segir að stöðugt sé
unnið að því að auka verðmæti
framleiðslunnar, enda sé það eina
leiðin í stöðugum hráefnisskorti
og niðurskurði á þorskkvótanum.
Hann segir að framleiðslan fyrir
Marks & Spencer skili mestum
tekjum og þróunin sé sú að færa
sig stöðugt meira og meira yfír
í slíka vinnslu. Ari segir m.a.:
„Gott hráefni og góð meðferð
á því er undirstaða þess að hægt
sé að vinna góðar afurðir úr fisk-
inum og ná sem bestri nýtingu í
verðmætustu pakkningarnar. Lé-
legan físk er ekki hægt að bæta
í vinnslunni ... Við erum með
svokallað inntökueftirlit sem all-
ur fískur sem við kaupum fer í
gegn um. Standist hann ekki
kröfur okkar er honum hafnað.“
Loks má nefna Fiskeldi Eyja-
fjarðar hf. sem hefur varið 200
milljónum króna til rannsókna á
lúðueldi á Hjalteyri og borið hafa
mikinn árangur. Rannsóknirnar
hafa að öllu leyti verið kostaðar
af hlutafé og styrkjum en ekki
fyrir lánsfé. Fjármagnskostnaður
mun því ekki keyra lúðueldið í
gjaldþrot í upphafí ferðar eins
og gerzt hefur í laxeldinu.
Það er sammerkt með öllum
þessum eyfirzku fyrirtækjum að
þau leggja höfuðáherzlu á rann-
sóknar- og þróunarstarf til að
byggja framleiðslu sína á, auk
gæðastjórnunar og gæðaeftirlits.
Sú leið vísar veginn til aukins
hagvaxtar.
:
igj
4 «Pl||! Æú/ m
Vinnuhópurinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STARFSHÓPURINN sem samdi tillögnrnar um skipan sjúkrahúsmála. Frá vinstri: Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir, Ingibjörg R.
Magnúsdóttir skrifstofustjóri, Guðjón Magnússon skrifstofusljóri og Símon Steingrímsson verkfræðingur. Auk þess sátu í hópnum Þorkell
Helgason, fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, formaður, og Skúli Johnsen héraðslæknir.
Tillögur starfshóps heilbrigðis- og tryggingaráðherra um skipan sjúkrahúsmála
Sjúkrahús verði færri
og fái breytt hlutverk
TILLÖGUR um skipan sjúkrahúsmála, unnar af starfshóp skijtuðum
af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, voru kynntar í gær. I tillög-
unum, sem settar eru fram í skýrslu sem lögð verður fyrir heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra, er gert ráð fyrir að fjölbreytt sérfræði-
þjónusta verði aðeins veitt á sjúkrahúsunum í Reykjavik, á Akureyri
og Akranesi, að sjúkrahúsin á Akranesi, Akureyri, Isafirði, Selfossi,
í Vestmannaeyjum og Keflavík verði svæðissjúkrahús og að önnur
sjúkrahús starfi í tengslum við heilsugæsluna á viðkomandi stöðum
og þeim verði þjónað af heilsugæslulæknum. Nefndin telur að með
breyttu fyrirkomulagi megi spara um 700 milijónir króna á ári.
Tillögurnar eru byggðar á upplýs-
ingum um notkun íbúa einstakra
héraða á þjónustu sjúkrahúsa árin
1988-1991. Útreikningar sem einn-
ig eru lagðir til grundvallar tillögun-
um benda til að nógu mörg hjúkrun-
arrúm séu í landinu í heild en þau
séu of mörg úti á landi og of fá í
Reykjavík og nágrenni. Jafnframt
séu sjúkrarúm of mörg á nokkrum
stöðum á landsbyggðinni.
Landsbyggðarfólk leitar til
Reykjavíkur
í skýrslunni eru dregnar saman í
fyrsta sinn upplýsingar um notkun
sjúkrarúma frá öllum almennum
sjúkrahúsum í landinu. Þar kemur
fram að flest rúm á litlum sjúkrahús-
um á landsbyggðinni eru hjúkrunar-
rúm en fá rúm eru notuð fyrir al-
menna sjúklinga. Mikill hluti sér-
fræðiþjónustunnar er sóttur til
Reykjavíkur. Í Vestfjarða-, Austur-
lands- og Suðurlandskjördæmum eru
innlagnir sjúklinga úr kjördæmunum
á sjúkrahús innan þeirra einungis
milli 35 og 40%.
Nefndin leggur til að sjúkrahúsa-
þjónusta í Reykjavík verði einfölduð.
Sjúkrahúsum þar verði fækkað, sér-
hæfing þeirra aukin og hjúkrun-
arrýmum fjölgað. Lagt er til að sér-
fræðiþjónusta verði byggð upp í ná-
inni samvinnu á tveimur sjúkrahús-
um, Landspítala og Borgarspítala.
Sjúkrahúsinu í Hafnarfirði og
Landakotsspítala mætti finna af-
mörkuð verkefni við skammtímaleg-
ur án bráðaþjónustu og nýta þau
jafnframt fyrir öldrunarþjónustu og
hjúkrunarheimili. Nú sinna sjúkra-
húsin á Reykjavíkursvæðinu um 76%
allra almennra sjúkralega á landinu.
Svæðissjúkrahús og
hjúkrunarsjúkrahús
Sjúkrahúsið á Akranesi á sam-
kvæmt tillögunum að þjóna Vestur-
landi og Hvammstangaumdæmi.
Sjúkrahúsið á Akureyri þjóni svæð-
inu frá Skagafirði til Vopnafjarðar.
A Isafírði og í Vestmannaeyjum
verði lyflæknir, kvensjúkdómalækn-
ir, skurðlæknir og svæfingalæknir.
Sjúkrahúsið á ísafirði þjóni ísa-
fjarðarumdæmi og Sjúkrahúsið í
Vestmannaeyjum þjóni Vestmanna-
eyjum. Á Selfossi og í Keflavík verði
kvensjúkdómalæknar og veitt fæð-
ingarhjálp en að öðru leyti verði lögð
áhersla á ferliþjónustu sérfræðinga.
Sjúkrahúsið á Selfossi þjóni Suður-
landi og Sjúkrahúsið í Keflavík þjóni
Suðurnesjum.
Sjúkrahús á eftirtöldum stöðum
verði hjúkrunarsjúkrahús og starfi í
tengslum við heilsugæsluna á við-
komandi stöðum: í Stykkishólmi,
Bolungarvík, Neskaupstað, á Pat-
reksfirði, Hólmavík, Hvammstanga,
Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði,
Húsavík, Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Þessi sjúkrahús sinni einkum mót-
töku og fyrstu meðferð bráðveikra,
meðferð á einföldum sjúkdómstilvik-
um og legu eftir sjúkrahúsdvöl. Að
öðru leyti verði þar hjúkrunarrými.
Miðstjórn BHMR krefst þess að
atvinnuleysistryggingasjóður virði
bæði rétt félagsmanna til atvinnu-
leysisbóta og rétt þeirra til að vera
í aðildarfélögum BHMR. í ályktun-
inni segir að réttur til atvinnuleysis-
bóta og jákvætt félagafrelsi séu
mannréttindi sem staðfest hafi verið
í íslenskum lögum og alþjóðlegum
mannréttindasamþykktum sem ís-
landi eigi aðild að.
Ekki í samræmi við lögin
Páll Halldórsson, formaður
BHMR, segir að þessi afgreiðsla sé
í hróplegu ósamræmi við nýendur-
skoðuð lög um atvinnuleysistrygg-
ingasjóð en í þeim hafí átt að tryggja
öllum rétt til atvinnuleysisbóta og
Þessum sjúkrahúsum verði framveg-
is þjónað af heilsugæslulæknum.
Sérfræðingar fari út í
dreifbýlið
Lagt er til að sérfræðiþjónusta í
dreifbýli verði aukin með því að
skipuleggja þangað ferðir sérfræð-
inga. Nauðsynlegt sé að skapa þeim
starfsaðstöðu á heilsugæslustöðvum
og hjúkrunarsjúkrahúsum. Sérfræð-
ingar á litlu sjúkrahúsunum sinna
nú ferliverkum á viðkomandi stað.
Nefndin leggur til að þessi þjónusta
breytist í farþjónustu.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
nokkur sjúkrahús utan höfuðborg-
arsvæðisins verði efld en ekki er
reiknað með að auka sjúkrahúsþjón-
ustu á Reykjavíkursvæðinu í heild.
Tillagan gerir ekki ráð fyrir svæðis-
sjúkrahúsi með sérfræðiþjónustu á
Áusturlandi heldur yrði sjúklingum
vísað á sjúkrahúsin í Reykjavík og
á Akureyri. Ástæður þess að ekki
er lagt til að efla Sjúkrahúsið í Nes-
kaupstað eru að vegna samgangna
er ólíklegt að takist að beina Hér-
aðsbúum í einhveijum mæli til Nes-
kaupstaðar og þá er íbúafjöldi á
við endurskoðun hafi einkum verið
horft til þeirra sem voru sjálfstætt
starfandi og því utan stéttarfélaga.
„Nú virðist sem staðan sé þannig
að þeir sem eru utan félaga fái
bætur, sjálfstæðir atvinnurekendur
og allir sem eru í stéttarfélögum
öðrum en ákveðnum félögum. Við
teljum að þetta sé óviðunandi rang-
læti og gert til að grafa undan þess-
um félögum. Réttur mannsins til
atvinnuleysisbóta er ekki dreginn í
efa en honum er tjáð að hann verði
að segja sig úr sínu stéttarfélagi og
fá úrsögnina staðfesta af félaginu
til að fá bæturnar greiddar. Ég tel
að þetta gangi þvert gegn öllum
samþykktum um félagafrelsi og að
sjóðurinn verði að afnema þessi
upptökusvæði sjúkrahússins einfald-
lega of lítill fyrir sjúkrahússrekstur.
700 milljónir eiga að sparast
Nefndin telur að með endurskipu-
lagningu sjúkrahúsaþjónustu megi
spara um 700 milljónir króna á ári
þegar tillögurnar eru að fullu komn-
ar til framkvæmda. Nú kosti rekstur
þeirra um 800 milljónum meira á
ári en samsvarar meðalkostnaði við
rekstur sjúkrahúsa með sömu þjón-
ustu. Með breyttu hlutverki þeirra
ætti að mega eyða þessum kostnað-
armun með tímanum. Kostnaður
gæti hins vegar aukist vegna aukinn-
ar þarfar á dvalarrými og vegna
aukins vaktaálags heilsugæslulækna
við hjúkrunarheimili. Auk þessa
kunni ferðakostnaður að aukast
nokkuð. Jafnframt þyrfti að leggja
fé í að byggja upp farþjónustu sér-
fræðinga. Þessi kostnaðarauki yrði
um 100 milljónir króna.
Tillögurnar verða kynntar út um
allt land á næstu tveimur vikum og
tekur heilbrigðisráðherra, Guðmund-
ur Árni Stefánsson, ekki afstöðu til
þeirra fyrr að þeirri kynningu lok-
inni.
vinnubrögð hið snarasta," sagði Páll.
Að sögn Páls hefur Félag ís-
lenskra náttúrufræðinga sótt um
aðild að atvinnuleysistryggingasjóði
en verið synjað vegna þess að það
hafi ekki samning við Vinnuveit-
endasamband íslands. Félagið hefur
gert samninga við íjölda atvinnurek-
enda en þeir eru ekki allir í VSÍ.
VSÍ hefur ekki viljað semja við félag-
ið þannig að það hefur ekki fengið
aðild að atvinnuleysistryggingasjóði.
„Það skiptir þó ekki máli í þessu
samhengi heldur það að samkvæmt
lögum eiga allir sem unnið hafa í
tiltekinn tíma rétt á atvinnuleysis-
bótum verði þeir atvinnulausir,“
sagði Páll.
Hvorki náðist í formann né fram-
kvæmdastjóra atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs vegna málsins í gær-
kvöldi. Sjóðurinn heyrir undir heil-
brigðisráðuneytið en að sögn Páls
Sigurðssonar ráðuneytisstjóra hafði
málið ekki verið rætt innan ráðu-
neytisins.
Reglum Atvinnuleysistryggingasjóðs mótmælt
Gert að segja sig úr verka-
lýðsfélagi til að fá bætur
FÉLAGSMANNI í Félagi íslenskra náttúrufræðinga, sem er eitt aðild-
arfélaga BHMR, hefur verið neitað um bætur úr atvinnuleysistrygg-
ingasjóði á þeim forsendum að Félag íslenskra náttúrufræðinga sé
ekki beinn aðili að sjóðnum. Manninum var tjáð að hann yrði að segja
sig úr félaginu til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Miðsljórn BHMR
hefur mótmælt vinnuaðferðum atvinnuleysistryggingasjóðs.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1993
31
Tónlistarverðlaun
N orðurlandaráðs
Finnskt
tónskáld
verðlaunað
TILKYNNT var í gær að finnska
tónskáldið Erik Bergman hefði
hlotið tónlistarverðlaun Norður-
landaráðs fyrir óperu sína
Syngjandi tréð, en texti hennar
eftir rithöfundinn Bo Carpelan.
Verðlaunaféð nemur um tveim-
ur milljónum ísl. króna og verð-
ur afhent við hátíðlega athöfn
8. mars á næsta ári.
Erik Bergman er fæddur árið
1911 í smábænum Nykarleby í
Austurbotni. Hann lærði tónsmíðar
í Helsinki en hélt til Vínarborgar,
Berlínar og tónlistarakademíu Vat-
ikansins til frekari náms. Hann er
meðal virtustu tónskálda á Norður-
Erik Bergman
löndum. Syngjandi tréð er fyrsta
ópera Bergmans, samin á árunum
1986 til 1988, og er efnisþráður
hennar sóttur til sænskrar þjóð-
sögu sem á aftur á móti rætur í
fornum alþjóðlegum goðsögnum
um Amor og Psyche.
Af hálfu Islands sat í dómnefnd-
inni Einar Jóhannesson klarinettu-
leikari.
Þjórsárbrú lokað-
ist vegiia áreksturs
Hellu.
MJOLKURBILL og fólksbifreið skullu saman á Þjórsárbrú síðdegis
í gær. Ekki var talið að alvarleg slys hefðu orðið á mönnum en brú-
in lokaðist af þessum sökum í eina klukkustund.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
komu báðir bílarnir að brúnni á
svipuðum tíma en hvorugur bílstjór-
inn mun hafa ætlað að víkja fyrir
hinum með þeim afleiðingiim að
bílarnir skullu saman rétt austan
við miðja brúna. Farþegi í fólksbíln-
um kvartaði um eymsli í baki og
var fluttur í Sjúkrahúsið á Selfossi.
Fólksbifreiðiin skemmdist mjög
mikið og var óökufær og þónokkurt
tjón varð á mjólkurbílnum.
40—50 bílar voru tepptir beggja
vegna brúarinnar, að sögn lögregl-
unnar á Selfossi, og tók um eina
klukkustund að opna hana aftur.
Lögreglan segir nokkra árekstra
verða árlega af þessum sökum á
Þjórsárbrúnni, menn fari ekki nógu
varlega að brúnni og séu ekki til-
búnir að víkja nógu tímanlega.
A.H.
Kosningar um sameiningn sveitarfélaga
Ungnr Króati óskar eftir dvalarleyfi hér
Kveðst í lífshættu
í heimalandi sínu
GORAN Nlkolic, 23 ára gamall Króati, hefur óskað eftir dvalarleyfi
á Islandi tímabundið eða til langframa á þeim forsendum að líf hans sé
í hættu í heimalandinu. Nikolic kom hingað til lands á sunnudag í
almennu farþegaflugi frá Svíþjóð þar sem hann hefur dvalist undanfar-
ið hálft annað ár meðan fjallað var um ósk hans um landvist, en stað-
fest var í gær af flóttamannaskrifstofu Sænsku kirkjunnar að honum
hafi verið vísað brott frá Svíþjóð með úrskurði frá 19. október sl.
Skýrsla var tekin af Nikolic hjá Útlendingaeftirlitinu á mánudag og
send til dómsmálaráðuneytisins þar sem mál hans er nú í athugun.
Nicholic er frá Vojvodina í fyrrum
Júgóslavíu og sótti hann um hæli í
Svíþjóð fyrir nokkru. Þar var honum
veitt aðstoð hjá presti í sænsku kirkj-
unni sem hefur ásamt öðrum kirkju-
deildum á Norðurlöndum veitt flótta-
mönnum aðhlynningu. Við komuna
til landsins leitaði hann strax ásjár
Biskupsstofu og útvegaði Sr. Þor-
bjöm Hlynur Árnason, biskupsritari,
honum húsaskjól og hefur aðstoðað
hann við að kynna mál sitt í íslenska
stjórnkerfinu.
Villti á sér heimildir
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis.-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir
að Nikolic hafi villt á sér heimildir
við komuna til landsins með því að
Segjast vera Svíi, en samkvæmt
samningi milli Norðurlanda er íbúum
þeirra ekki skylt að bera vegabréf í
ferðum milli landanna. Þorsteinn
segir óvíst hvenær niðurstöðu sé að
vænta frá ráðuneytinu. Hann segir
að ef eitthvað sé að marka reynsluna
af frændum okkar á hinum Norður-
löndum telji hann ekki mjög trúverð-
ugt að þeir séu farnir að senda fólk
til átakasvæða þar sem það er í raun-
verulegri hættu. „Ég tek öllum slík-
um fregnum með mikilli varúð þang-
að til ég hef eitthvað haldbetra til
að meta,“ segir Þorsteinn.
Eftir úrskurð sænskra yfirvalda
um brottvísun Nikolic stóð til að
flytja hann aftur til Vojvodina en
sænsk stjórnvöld líta ekki svo á að
það sé stríðsátakasvæði. Vojvodina
var sjálfstjórnarhérað sem Serbar
innlimuðu fyrir tæpum tveimur
árum, og er það mestmegnis byggt
Serbum og fjölmennum ungverskum
minnihluta sem neyddur hefur verið
til að gegna herskyldu. í samtali við
Morgunblaðið sagði Þorbjörn Hlynur
að Nikolic líti svo á að líf sitt sé í
hættu í Vojvodina, einkum þar sem
hann hefur neitað að gegna her-
skyldu, auk þess að tilheyra króatísk-
um minnihluta.
„Ég hef fengið upplýsingar frá
mannréttindaskrifstofu Kirknasam-
bands Evrópu sem telur að það sé
óheimilt að flytja menn nauðuga til
þessara svæða, og vísar hún í álykt-
anir frá Mannréttindanefnd Samein-
uðu þjóðanna og Amnesty Internat-
ional þar að lútandi," segir Þorbjörr,
Hlynur.
Félagsmálaráðherra um sameiningu
Ottast tvenns kon-
ar sveitarfélög
Kynningin kostar
25-30 milljónir kr.
SVAVAR Gestsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, sagðist á þingi
í gær telja óeðlilegt að fé væri veitt úr ríkissjóði til þess að hafa áhrif
á skoðanamyndun fólks, en komið hefði fram að 25-30 milljónir
króna væru veittar úr ríkissjóði með einum eða öðrum hætti í áróð-
ur fyrir sameiningu sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra sagðist ekki
telja þessa upphæð háa með tilliti til þess mikilvæga máls sem væri
sameining sveitarfélaga. Þetta væri ekki nema brot af því sem kynn-
ing spariskírteina hefði kostað I fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnar
Grímssonar, en sig minnti að sá kostnaður hefði verið á bilinu 500-600
milljónir króna. Kosningar um sameiningu sveitarfélaga fara fram á
laugardag.
Svavar sagðist telja eðlilegt að
stjómvöld notuðu fjármuni til þess
að kynna staðreyndir og fram-
kvæmdaatriði í stjórnkerfinu, en
óeðlilegt að reyna að hafa áhrif á
skoðanir fólks. „Ég tel að uppsetn-
ing mála af hálfu félagsmálaráðu-
neytisins í þessu efni sé hættuleg
og óeðlileg og geti orðið þeim mikil-
væga málstað sem menn bera upp
í þessu máli til verulegs ógagns.“
Hann sagðist einnig telja þá yfírlýs-
ingu félagsmálaráðherra á fundi í
Keflavík á þriðjudagskvöld að ef
menn samþykki ekki sameiningu
sveitarfélaga verði lögþvingun
næsta skrefíð ósmekklega.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að kynning á
sameiningu sveitarfélaga væru í
höndum umdæmanefndar og sam-
ráðsnefndar þannig að félagsmála-
ráðuneytið hefði ekki afskipti af
því. Jóhanna sagðist ítrekað hafa
sagt að hún myndi ekki hafa frum-
kvæði að því að leggja til lögþvingun
varðandi sameiningu sveitarfélaga.
Hins vegar hefði hún vakið athygli
á því að sameining sveitarfélaga á
hinum Norðurlöndunum hefði ekki
gengið eftir nema með lögþvingun.
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að krafan um lög-
þvingun muni fá aukinn byr náist lítill árangur í kosningum um samein-
ingu sveitarfélaga á laugardag. Ætti það ekki síst við ef þátttaka yrði
lítil. Jafnframt óttast ráðherra að hér á landi geti þróast tvenns konar
sveitarfélög, annars vegar þau sem taka að sér stóra og viðamikla mála-
flokka og hins vegar þau sem verða háð miðstjórnarvaldi ríkisins í fjár-
mögnun og þjónustu.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi að engar fyrirætlanir væru
uppi um Iögþvingun, en ef þessi sam-
einingartilraun mistakist sé ljóst að
ekki verði af áformum um að flytja
verkefni frá ríki til sveitarfélaga að
svo komnu.
Fyrrnefnd ummæli félagsmálaráð-
herra komu meðal annars fram í máli
ráðherrans á fundi um sameiningu
sveitarfélaga sem haldinn var í Kefla-
vík í fyrrakvöld. Jóhanna sagðist
treysta fólkinu í landinu til að nýta
af framsýni það lýðræðislega fyrir-
komulag sem kosningarnar á laugar-
dag bjóða upp á. Staðreyndin væri sú
að íslendingar væru langt á eftir öðr-
um Norðurlandaþjóðum í sameiningu
sveitarfélaga. „Verulegur árangur í
stækkun sveitarfélaga hefur ekki
náðst á Norðurlöndum nema í kjölfar
lagasetningar og það ákveðið ofan frá
hvaða sveitarfélög skuli sameinast en
þó hafa þau yfirleitt haft umsagnar-
rétt,“ sagði ráðherra.
Taldi Jóhanna að flestir gerðu sér
Ijóst að sameining sveitarfélaga yrði
ekki stöðvuð. Spurningin væri sú
hvernig hún færi fram og hversu hratt.
Fjárhús í Miðdal rústir einar eftir óveðrið í fyrrinótt
Þakið fauk í einu lagi
100-150 metra yfír veg
FJÁRHÚS á bænum Miðdal í Kjós fauk í óveðrinu í fyrrinótt og eru
rústir einar eftir af þessu 200 kinda húsi. 80 kindur sem komnar voru
á hús voru í fjárhúsinu og 14 kvígur og varð þeim ekki meint af en
hefur þeim nú verið komið fyrir á nálægum bæjum. Guðmundur H.
Davíðsson, bóndi I Miðdal, segir að þak húsins virðist hafa fokið í
heilu lagi yfir hlöðu, án þess að rekast í risið, og um 100-150 metra
yfir veg og upp í brekku þar sem það splundraðist. Guðmundur telur
sig hafa orðið fyrir a.m.k. 1-lA milljónar króna Ijóni.
„Eg uppgötvaði þetta ekki fyrr
en um morguninn. Ég hafði þá lokið
morgungegningum í fjósinu og fór
að gá til veðurs og sá þarna í ljósa-
skiptunum að eitthvað einkennilbgt
hafði gerst. Þegar ég hafði jafnað
mig eftir sjokkið sá ég að það voru
rústir einar eftir af fjárhúsinu,“ sagði
Guðmundur.
Kindurnar rólegar í rústunum
Hann sagði að kvígurnar sem voru
í húsinu hefðu sjálfar komið sér út
en kindurnar hefðu verið rólegar
inni í rústunum. Svo virtist sem þak-
ið og efri hluti hússins hefði fokið í
heilu lagi því varla hefði nokkur laus
spýta fallið yfir kindurnar.
Guðmundur sagðist hafa fengið
aðstoð frá sveitungum sínum í gær-
dag til að bjarga því sem bjargað
varð. Sagði hann að mjög hvasst
hefði verið um nóttina en fjárhúsin
hefðu sennilegast fokið í miklum
hvelli sem gerði þegar vindáttin snér-
ist í vestur.