Morgunblaðið - 01.12.1993, Side 10
rr seör nariMHaao .r ri'jnAnuaivnjr/i ukujhmuoí)om
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993
Form Island II
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
Farandsýningin Form Island,
sem hefur verið á ferðinni um Norð-
urlönd sl. ár er nú komin heim og
síðasti áfangastaðurinn eru kjall-
arasalir Norræna hússins, en þar
verður hún uppi fram til 19. desem-
ber. Og ekki verður annað sagt en
að sýningin hafí gert víðreist og
gist merkar listastofnanir í Bergen,
Gautaborg, Kaupmannahöfn,
Stokkhólmi, Helsingfors og Færeyj-
um.
Ég dvaldi fáeina daga í Kaup-
mannahöfn í desember sl. á leið
heim frá Tokyo, og reyndi að skoða
sem mest, og þá fékk ég óvænt
smátíma til að líta inn í Listiðnaðar-
safnið. Þetta safn reyni ég að skoða
í hvert skipti sem ég kem til Hafn-
ar, vegna þess að þar eru oft mjög
vandaðar sýningar og svo virðist
það verða betra með ári hveiju.
Tvær aðrar sýningar voru í gangi
um leið og var önnur á bókaútgáfu
og var mjög áhugaverð, en hin hét
„Frá listiðnaði til fjöldahönnunar“
og tóku m.a. þátt í henni margt
af þekktasta leirlistafólki í Dan-
mörku fyrr og síðar, svo sem Aksel
Salto, Gertrud Vasegaard, Alev Si-
esbye, Ursula Munch Petersen
o.m.fl.
Allar eru þessar sýningar mér í
fersku minni, og hefði ég viljað
hafa úr mun meiri tíma að moða
til að skoða þær.
Þá var mjög lærdómsríkt að bera
saman íslensku sýninguna við
dönsku listiðnaðarsýninguna, sem
var í næsta sal inn af henni.
Danir tjölduðu að sjálfsögðu sínu
besta, en sýning þeirra skaraði þá
íslensku ekki nema að vissu marki,
og það var auðvitað áberandi hve
þeir sækja í traustar hefðir. íslensk-
ur listiðnaður er nefnilega svo ung-
ur að árum og svo eigum við engan
listiðnaðarskóla né listiðnaðarsafn,
sem er vont afspurnar. Þó þetta
væri um sumt óhagstæður saman-
burður og þröngt væri um íslensku
sýninguna verður ekki annað sagt,
en að hún hafi notið sín vel og
henni var mjög vel fyrir komið.
Einkum naut skartið sín vel, en ég
hafði einmitt skömmu áður verið
að gagnrýna fremur ruglingslega
uppsetningu skarts á sýningu í
Perlunni.
Við eigum ágæta listamenn í list-
iðnaði og það er framtaki Mynd-
lista- og handíðaskólans mikið að
þakka, einkum hvað vefnað og leir-
mótun snertir, en því miður hefur
ekki verið unnt að koma upp málm-
smíðiverkstæði, þrátt fyrir góðan
vilja.
Ég fékk tækifæri til að gera
góðan samanburð á listiðnaði og
arkitektúr þennan desemberdag í
Kaupmannahöfn, því að á sama
tíma var árleg sýning listasjóðs rík-
isins á Den Frie, og var mikill lær-
dómur að skoða hana. Hvað arki-
tektúr sýningu á sama stað snerti,
sýndi hún, að við erum langt á eft-
ir þróuninni, því áhersla var lögð á
sjálf módelin og vinnubækur, en
hins vegar minnst á tækni- og út-
litsteikningar.
Ljóst má vera, að við þurfum að
búa betur að listiðnaði og helst
stofna sérskóla, sem gæti verið í
tengslum við listiðnaðarsafn sem
brýnt er að koma upp og þá er
ekki að efa, að íslenskur listiðnaður
muni taka stökk frammávið. - það
var furðulega fátt um gesti við
opnun sýningarinnar 5 Norræna
Pétur B. Lúthersson 1982.
Sigrún Ó. Einarsdóttir 1991.
húsinu og einkum saknaði ég ráða-
manna þjóðarinnar, sem ekki virð-
ast alltaf þekkja sinn vitjunartíma
þegar list er annars vegar. Og ef
þetta telst hinn raunsanni áhugi
þeirra, eiga þeir mikið eftir ólært
í uppbyggingu þjóðríkis. Hvarvetna
í kringum okkur eru þjóðir að
treysta þennan þátt menningar
sinnar, þrátt fyrir efnahagsörðug-
leika, en hann mætir sem fyrr af-
gangi hér á landi.
Það er hins vegar aðdáunarvert
hve menn hafa náð langt í listiðn-
aði fyrir eigið framtak og harðfylgi
og um það er sýningin lifandi vitn-
isburður. Sýningarsalir Norræna
hússins bjóða upp á meiri mögu-
leika en rúmlega einn salur í List-
iðnaðarsafninu og þannig njóta
Arndís Jóhannesdóttir 1987.
Pía Rakel Sverrisdóttir 1991.
sumir gripirnir sín betur en aðrir
síður, því að hér er sjálft Listiðnað-
arsafnið ekki hinn trausti rammi.
Þá er kvistótt parkett gólfið í sölun-
um iðulega í samkeppni við verk
sem staðsett eru á þeim og þyrfti
að koma til útbúnaður til að setja
undir þau. þetta kemur einkum nið-
ur á verkum Borghildar Óskars-
dóttur, en hins vegar bjarga hinir
svörtu stallar verkum Kolbrúnar
Björgólfsdóttur. þetta er mjög áber-
andi á sýningunni og þannig er
upplagt tækifæri að koma því á
framfæri.
Ég og fylginautar mínir runnum
í hlaðið 10 mínútum fyrir opnun,
en samt var mjög erfitt að finna
bílastæði, sem mun hafa verið
vegna þess að annað var einnig á
Kristín ísleifsdóttir 1989.
dagskrá í húsinu þennan dag. Verð-
ur að gera kröfu til þess að viðburð-
ir rekist ekki þannig á hvorn annan
eins og bersýnilega átti sér stað
þennan dag. Trúi ég ekki öðru en
að fyrir vikið hafi einhveijir hrökkl-
ast burt.
Þetta er fjölþætt sýning, sem er
lifandi vitnisburður um þá grósku
sem á sér stað í íslenskum listiðn-
aði, og jafnframt er þetta falleg
sýning, sem á skilið mikla og góða
athygli því að hér er mikið í húfi.
Traustur listiðnaður styrkir ekki
einungis burðarstoðir þjóðmenning-
ar, heldur geta verið gríðarlegir
fjármunir í húfí, og við getum hér
einungis litið til frænda vorra á
Norðurlöndum og þá einkum Dana
og Finna, en ómældar fúlgur renna
ár hvert í ríkiskassa þjóðanna vegna
útflutnings listiðnaðar, og einhveij-
ar tekjur mun sænska ríkið vissu-
lega hafa af Ikea-fyrirtækinu. Á
öllu þessu vildi ég vekja athygli í
sambandi við opnun sýningarinnar
og hvetja sem flesta að leggja leið
sína í Norræna húsið, og það væri
full ástæða til að gera einnig sér-
staka úttekt á stöðu íslensks listiðn-
aðar í dag á meðan að á sýning-
unni stendur, því að slíkt framtak
þarf að vekja upp umræðu á opin-
berum vettvangi.
Nýjar bækur
I Bangsabókin mín. íslenskur
texti: Stefán Júlíusson.„Það er
gaman að skoða og læra. Margir
bangsar leika sér en læra um leið
að þekkja liti, tölur, stærð og lögun
hluta. Þetta er allt til gamans gert“
segir í kynningu frá útgefanda. Á
hverri blaðsíðu eru margar lit-
myndir. Bókin er í stóru broti.
Setberg gefur út. Bókin kost-
ar 895 krónur.
■ Sammi brunavörður - björg-
un úr flóði og Sammi brunavörð-
ur - týndi lykillinn. íslenskur
texti: Stefán Júlíusson. Þetta eru
sögurnar úr sjónvarpsþáttunum
um Samma brunavörð. Litmyndir
á hverri síðu.
Setberg gefur út. Bókin er
32 síður og kosta 650 krónur
hvor bók.
■ Út er komin spennusagan
Pelíkanaskjalið eftir John Gris-
ham en hann er einn vinsælasti
s_pennusagnahöfundur síðari ára.
Aður hefur komið út eftir hann á
íslensku spennusagan Fyrirtækið.
Sagan hefur verið kvikmynduð
með leikkonunni Juliu Roberts í
aðalhlutverki. Tveir bandarískir
hæstaréttardómarar eru myrtir
sama kvöldið og lögregluyfirvöld
standa ráðþrota.
Útgefandi er Iðunn. Nanna
Rögnvaldsdóttir þýddi bókina,
sem er prentuð í Prentbæ hf.
Bókin kostar 2.480 krónur.
Ódýr atvinna
Það er hægt að kaupa sér ódýra atvinnu og vinna
hjá sjálfum sér. Höfum mikið úrval af fyrirtækjum
á góðu verði, t.d. verslanir, sem greiða sig niður
bara á desembersölunni. Hafið samband og við
munum aðstoða yður í fullum trúnaði.
mnTrmanrgimrT?
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Glæsilegur matsölustaður
Við Laugaveginn ertil sölu mjög fallega innréttað-
ur og vinsæll matsölustaður með öllum vélum
og tækjum sem með þarf. Nýlegar vélar og inn-
réttingar. Gott, vinalegt andrúmsloft.
Nú er hörkutími framundan og jólastemmninp
við Laugaveginn.
Upplýsingar á skrifstofunni.
l^;ÍT;í77TiTTI^TVIT7
SUÐURVERI
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Gegn vanabulli
Bókmenntir
Ingi Bogi Bogason
Sigurður Guðmundsson: Tab-
úlarasa. (191 bls.) Mál og menn-
ing 1993.
Sigurður er einn nokkurra Is-
lendinga sem eru vel þekktir í út-
löndum fyrir listsköpun sína. Þótt
ekki sé víst að uppruni hans sem
íslendingur skipti sköpum fyrir
skilning á myndlist hans gegnir
öðru máli um það verk sem hér er
til umræðu. Tabúlarasa er, þrátt
fyrir latneskt heiti, íslenskt verk
og hefur tæpast neina alþjóðlega
skírskotun. Þrátt fyrir - eða
kannski öllu heldur vegna - ára-
tugalangrar utanveru kemur
myndlistarmaðurinn íslenskum list-
unnendum á óvart með því að
mála nú verk sín með íslenskum
orðum.
Tabúlarasa er ekki hefðbundið
skáldverk. Hún er á mörkum þess
að geta verið tekin alvarlega. Þess
vegna er lesandanum hollast að
veita henni frekar viðtöku af lyst
hjartans og bregða grönum í hlátri.
Aðalpersónurnar eru hann (Sig-
urður) og hún (íslensk tunga). Þeg-
ar hann hittir hana segir hann:
„Fortíðin var eins og skýlaus him-
inn. Innan í mér var allt tómt, hvítt
eins og óskrifað blað: tabula _rasa.“
En taflan er ekki lengi tóm. í sam-
vinnu raða þessir tveir elskendur á
hana orðum; samræðum, gálga-
húmor, ljóðum, tilvitnunum og
ýmissi speki. Orðaleikirnir eru sum-
ir vel heppnaðir og afhjúpast vel í
samræðum þeirra. Uppistaðan í
öllu saman eru „orðin tóm“, „tóm
orð“ sem minnir á að orðin hafa
sjálfstætt líf þótt ekki þurfi það
að vera merkilegt:
„Eru orðin tóm þá eins konar
vanabull? spurði ég.
Nei, vanabull er annað... Vana-
bullið er efnahagsleg undirstaða
hins talaða og skrifaða orðs.“
Sigurður Guðmundsson
Persónusköpun sögunnar er
grunn, fléttan fremur óflókin og
virðist lítt ígrunduð og sögufram-
vindan því öll hin ólíkindalegasta.
Helstu einkenni þessa verks er að
vera skrifað meira af kæti en fyrir-
hyggju, fremur af listrænum þrótti
en af agaðri íhygli. Þetta sem nú
er upptalið þarf samt ekki að vera
sögunni í heild til vansa. Aðrir
þættir vega hér á móti æðibunu-
gangi bókarinnar. Og vil ég þá
fyrst nefna mælskuna. Höfundur-
inn hefur í áratuga fjarveru varð-
veitt vel móðurmálið og aukið það
nýjungum. Úr þessum frumlega
orðabrunni eys hann lesendum sín-
um til skemmtunar. (Þetta minnir
í framhjáhlaupi á þá hugmynd sem
kastað hefur verið fram að vænleg-
ast sé að varðveita íslenska tungu
í útlöndum).
Þannig líður sagan áfram í þráð-
lausri og stundum glórulausri sam-
ræðu. Inn í hana fléttast þekktar
persónur eins og Tómas Jónsson,
Salka Valka og Steinar undir
Steinahlíðum. Það skal áréttað að
þótt sagan fljóti þannig áfram eins
og mælandinn sé undir sýruáhrif-
um, með öllu ruglinu sem því fylg-
ir, verður hún aldrei leiðinleg. Þvert
á móti á köflum drepfyndin.
Fasteignasala,
Suðurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - öryggl
Hllmar Valdlmarsson.
SfMAR: 687828 og 687808
Nökkvavogur
Vorum að fá í sölu hús á tveimur hæðum. Á hæðinni
eru tvær saml. stofur, 2 svefnherb., eldhús og bað. í
kj. er 2ja herb. ósamþ. íb. með sérinng. Þvottah. og
geymslur. 32 fm bílskúr. Fallegur garður með gróður-
húsi. Verð 9,5 millj.
Hraunteigur - hæð og ris
Til sölu 5 herb. 137 fm íb. hæð og ris í tvíb. Á hæð-
inni eru stofur, eldh. o.fl. í risi eru 3 svefnherb., sjón-
varpshol og baðherb. 18 fm bílskúr. Áhugaverð eign á
eftirsóttum stað. Viðráðanlegt verð.