Morgunblaðið - 01.12.1993, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993
Pétur Pétursson áfrýjar til Hæstaréttar
Málið snýst um
mannréttindi og*
áningar fr elsi
PÉTUR Pétursson læknir á Akureyri ætlar að áfrýja til Hæstaréttar
tveimur málum sem í voru kveðnir upp dómar í Héraðsdómi Norður-
lands eystra nýlega, svokölluðum steramálum, en það höfðaði hópur
vaxtarræktarmanna vegna ummæla sem Pétur viðhafði um notkun
hormónalyfja í þessari íþróttagrein. Pétur segir þetta mál alls ekki
lengur snúast um steramálið heldur um mannréttindi og tjáningarfrelsi.
{ Héraðsdómi Norðurlands eystra
var Pétur sýknaður af fjárkröfum
sem vaxtarræktarmenn höfðu gert
á hendur honum, en ummæli hans
„Mér skilst það, að þeir sem að
stunda vaxtarrækt, það heyri til
undantekninga að þeir karlmenn séu
ekki á sprautum," voru dæmd
ómerk, en þessi orð lét hann falla í
útvarpsþætti. Ákvörðun refsingar
var frestað og og hún látin niður
falla að 2 árum liðnum geri Pétur
sig ekki sekan um nýtt brot á skil-
orðstímanum. í meiðyrðamáli Ólafs
Sigurgeirssonar lögmanns vaxtar-
ræktarmannanna gegn Pétri voru
ýmis ummæli læknisins dæmd
ómerk.
„Ég ætla að áfrýja báðum málun-
um, í fyrra málinu er verið að
ómerkja ummæli sem bæði land-
læknir og siðanefnd töldu að hefðu
við rök að styðjast, ég er sakfelldur
fyrir framsetninguna þó refsingu sé
frestað, án þess að dómarinn hrekji
að ég segi satt. Þessi framsetning
var að mínu mati nauðsynleg til að
eftir málinu yrði tekið,“ sagði Pétur.
Hann telur að verið sé að setja of
þröngar skorður þeim sem starfa
síns vegna hafa áhuga á að breyta
þjóðfélaginu.
Eins gott að halda kjafti
Pétur segist hafa vænst þess að
sú leiðsögn sem íslenskir dómstólar
fengu erlendis frá í hliðstæðu máli
myndu breyta forneskjulegum
dómavenjum hérlendis, en hér heyrði
til undantekninga ef ummæli í meið-
yrðamálum væru ekki dæmd ómerk.
„Það er nauðsynlegt að knýja þetta
Birna Helgadóttir.
Tónlistarskólinn
Heldur burt-
farartónleika
BIRNA Helgadóttir píanó-
leikari heldur tónleika á sal
Tónlistarskólans á Akureyri
í kvöld, miðvikudagskvöldið
1. desember, og hefjast þeir
kl. 20.30.
Tónleikamir eru liður í 8.
stigs prófi sem Birna er að ljúka,
en hún brautskráist frá skólan-
um nú í desember. Hún hóf nám
hjá Þyri Eydal, en kennarar
hennar undanfarið hafa verið
þau Helga Bryndís Magnúsdótt-
ir og Kristinn Orn Kristinsson.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Baeh, Beethoven,
Chopin, Pierné og Prokofieff.
mál áfram, þama er verið að vega
að tjáningarfrelsi mínu, mér fyndist
afar freistandi að ræða um áfengis-
og tóbaksmál og margt annað í þjóð-
lífinu sem okkur læknum ber að
skipta okkur af. Alls staðar eru
hagsmunaaðilar og ef alltaf á að
hlífa þeim er eins gott að halda
kjafti. Þar fyrir utan er greinilegt
að menn mega ekki krydda, beita
stílbrögðum eða ræðutæknilegum
blæbrigðum málsins sem eftirminni-
leg em, þá eiga menn á hættu að
gegn þeim verði höfðað mál,“ sagði
Pétur. „Með þessum dómum er verið
að hindra mig í að nota þær aðferð-
ir sem ég veit að bera árangur."
Morgunblaðiö/Magnús J. Mikaelsson
Þökulagt í nóvemberlok
ÍBÚAR á norðanverðu landinu geta varla kvartað undan veðrinu síðustu vikurnar, en í nýliðnum nóvember-
mánuði hefur oft verið álíka hlýtt ef ekki hlýrra en var á hinu hráslagalega sumri. Starfsmenn Híseyjar-
hrepps, Þorgeir Jónsson og Bjarni Thorarensen, voru í gær að ljúka við að leggja þökur við Miðbraut, en við
slík störf er líklega sjaldnast unnið á þessum árstíma. Götur í eynni voru hellulagðar fyrr í haust og þöku-
lagningin er liður í frágangi þess verkefnis.
Fjármunum ÚA ekki stefnt í hættu þó hallarekstur sé á þýsku útgerðinni
Akvæði í kaupsamningi heimila
félagsslit við rýrnun eigin fjár
FREISTA á þess á fundi forráðamanna Útgerðarfélags Akureyringa
með forsvarsmönnum Treuhandanstalt, þýsku einkavæðingarnefnd-
inni, í næstu viku að fá samning um kaup meirihluta ÚA í þýska fyrir-
tækinu Mecklenburger Hochseefischerei, MHF, endurskoðaðan. Aætl-
anir um reksturinn hafa ekki staðist og er mikill hallarekstur á félag-
inu. Ákvæði eru í kaupsamningi þess efnis að lækki eigið fé MHF niður
í 920 milljónir króna skuli félaginu slitið komi fram krafa þar um frá
einhverjum hluthafanna.
Forráðame'nn ÚA telja að misskiln-
ings gæti um rekstur MHF í Þýska-
landi og tengsl afkomu þess við af-
komu ÚA. Þó svo að tap verði á
rekstri þýska fyrirtækisms snerti það
á engan hátt afkomu ÚA, þar sem
samkvæmt úrskurði endurskoðenda
félagsins verði ekki um samstæðu-
uppgjör að ræða. Þetta kom fram á
blaðamannafundi sem forráðamenn
ÚA_ efndu til síðdegis í gær.
Útgerðarfélag Akureyringa á 60%
í þýska félaginu á móti þýskum aðil-
um og í hluthafasamkomulagi eru
ákvæði sem heimila ÚA eða öðrum
hluthöfum að slíta félaginu til að
koma í veg fyrir að kaupverð hluta-
bréfa í MHF tapist. Bókfært eigið
fé MHF var 1. apríl síðstliðinn 29,9
milljónir marka eða um 1.250 millj-
ónir íslenskra króna og er talið að
bókfært verð fjármuna félagsins sé
nálægt markaðsverði þeirra. Ákvæði
eru í kaupsamningi um að ef eigið
fé MHF lækki niður í 22 milljónir
marka, 920 milljónir íslenskra króna,
skuli félaginu slitið komi fram krafa
um það frá einhverjum hluthafa.
Engin áform um að slíta
félaginu
Forráðamenn ÚA vilja ekki stað-
festa að tap þýska fyrirtækisins eft-
ir fyrstu 7 mánuðina sé 7 milljónir
marka, eða 300 milljónir, og segja
að endanleg niðurstaða á rekstri
þess ráðist að mikiu leyti á því á
hvaða verði afurðabirgðir muni selj-
ast, en þær séu miklar. Fram kom
á fundinum að kaupverð hlutabréfa
í þýska félaginu var um 420 milljón-
ir króna og að ólíklegt væri með til-
liti til ákvæða um slit félagsins að
ÚA muni bera beint ijárhagslegt tjón
af kaupum hiutabréfanna, en á þess-
ari stundu séu engin áform uppi um
að hætta rekstri þýska fyrirtækis-
ins. Vilji sé til þess að reka féiagið
áfram og á fundi með einkavæð-
ingarnefndinni í Þýskalandi næst-
komandi mánudag eigi að freista
þess að ná fram endurskoðun á
kaupsamningi í ljósi breyttra að-
stæðna og á þann hátt að koma
rekstrinum í betra horf.
Gert er ráð fyrir að hagnaður af
rekstri Útgerðarfélags Akureyringa
verði á bilinu 50 til 60 milljónir króna
á þessu ári og hefur tap MHF engin
áhrif á afkomu þess.
Evrópsk myndlistasamkeppni ungs
fólks á vegum JC-Akureyri
Vetrarmyndir eda
jólahald frá íslandi
JUNIOR Chamber-Akureyri hefur boðist að taka þátt í evrópskri
myndlistasamkeppni ungs fólks undir 25 ára aldri og er öllum
heimil þátttaka. Myndefnið á að tengjast jólahaldi eða vetri á ís-
landi.
Staða rektors Haskólans laus til umsóknar
Haraldur Bessason sæk-
ir um endurráðningn
HARALDUR Bessason núverandi rektor Háskólans á Akureyri
ætlar að sækja um endurráðningu í embætti háskólarektors.
Staða háskólarektors við Há-
skólann á Akureyri hefur verið
auglýst laus til umsóknar, en sam-
kvæmt lögum um skólann skal
auglýsa embættið á fimm ára
fresti. Sá rektor sem situr í emb-
ætti getur sóst eftir endurráðn-
ingu að nýju til fimm ára.
„Ég ætla að sækja um endur-
ráðningu, ég hef ekki enn sent inn
umsókn mína, en geri það í tæka
tíð áður en umsóknarfrestur renn-
ur út,“ sagði Haraldur, en frestur
tii að sækja um stöðuna rennur
út 10. janúar næstkomandi.
Haraldur var forstöðumaður
Háskóians á Akureyri fyrsta
starfsár hans, síðan settur rektor
til eins áre, þá var hann skipaður
í stöðuna til fimm ára og rennur
sá starfstími út í lok maí á næsta
ári.
Myndirnar sem berast í keppn-
ina verða sendar til Englands þar
sem haldnar verða sýningar á
verkunum. Sýningargestir verða
hvattir til að senda kort með vinar-
kveðju til uppáhaldslistamanns
síns. Vaiin verður besta mynd
keppninnar og viðurkenning send
til þess er hana gerði.
Þetta er evrópskt verkefni sem
JC í Englandi stendur fyrir með
þátttöku allra Evrópulanda.
Megintilgangur þess er að kynna
löndin, jólahald og siði og þykir
JC-félögum á Akureyri mikilvægt
að íslendingar taki þátt í þessu
verkefni.
Senda á myndiniar til Junior
Camber — Kristínar Þórisdóttur,
Lundargötu 12 á Akureyri. Skila-
frestur er til 10. desember næst-
komandi og verða myndirnar að
vera vel merktar, nafn, kyn, ald-
ur, heimilisfang og tungumál á
bakhlið myndanna. Takist vel til
verða myndir sem berast sýndar
á markaði JC að Furuvöllum 13.
Zykk-Zakk
á Pollinum
HLJÓMSVEITIN Zykk-Zakk
heldur tónleikar á Pollinum í
kvöld, miðvikudagskvöldið 1.
desember og hefjast þeir kl. 22.
Hljómsveitin er um það bil árs
gömul, en hana skipa þrír lands-
þekktir tónlistarmenn, þeir Krist-
ján Edelstein gítarleikari, Sigfús
Óttarsson trommuleikari og Pálmi
Gunnarsson bassaleikari. Á efnis-
skrá þeirra eru einkum frumsamin
instrumental lög, en þeir félagar
fara um víðan völl í stefnum og
stílum.
(Fréttatilkynning.)