Morgunblaðið - 01.12.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993
29
Lögum
líknardráp
í Hollandi
ÖLDUNGADEILD hollenska
þingsins samþykkti í gær um-
deilda áætlun um líknardráp og
hvaða reglur skuli um það gilda.
Var það samþykkt með 37 at-
kvæðum gegn 34 og er þá ekkert
í vegi fyrir því, að ríkisstjórnin
leggi fram lagafrumvarp um líkn-
ardráp og er það fyrirhugað í
janúar næstkomandi.
Stórgræða á
tapinu
KVIKMYNDIN Batman, sem
rakað hefur saman meira en 80
milljörðum ísl. kr. í hagnað síðan
hún var sýnd árið 1989, er samt
enn 730 milljónir kr. í mínus á
pappírunum. Kom þetta fram hjá
lögfræðingi Batfilm Productions,
fyrirtækis, sem hafði einkarétt á
Leðurblökumanninum, en hann
hefur höfðað mál á hendur Warn-
er Bros, framleiðanda kvikmynd-
arinnar, og heldur því fram, að
það hafi haft gífurlegt fé af um-
bjóðanda sínum með bókhaldsb-
rellum. Samkvæmt samningi fyr-
irtækjanna átti Batfilm að fá
300.000 doliara og 13% af hagn-
aði af myndinni en samkvæmt
bókhaldinu hjá Warner Bros er
hann enginn, heldur stórtap.
Langlífir Kín-
verjar
GONG Laifa, sem er 131 árs
gamall og elsti karl í Kína, þakk-
ar langlífi sitt reglu- og iðjusemi
og ekki síst einlífinu en hann
hefur alla tíð verið ókvæntur.
„Síðustu 100 árin hefur lif hans
verið í föstum skorðum og hver
dagur öðrum líkur,“ sagði í Kín-
verska dagblaðinu en Gong vann
til skamms tíma 11 tíma á dag
á hrísgijónakrinum sínum í Guiz-
hou-héraði. Kong Ying, elsta kon-
an í Kína, 122 ára, neitar sér
hins vegar ekki um lífsins listi-
semdir og er mikil matarmann-
eskja.
Streitan bug-
ar Holst
JOHAN Jörgen Holst, utanríkis-
ráðherra Noregs, sem átti mikinn
þátt í friðarsamkomulagi ísraela
og Palestínumanna, er kominn á
sjúkrahús vegna streitu og álags.
Varð hann að hætta við fyrirhug-
aða þátttöku í fundi RÖSE í Róm
í gær og í dag og fundi utanríkis-
ráðherra NATO í Brussel á morg-
un og á föstudag. Þá hefur hann
einnig aflýst Fraklandsferð um
helgina. Holst hefur verið ákaf-
lega önnum kafinn utanlands sem
innan undanfarnar vikur.
Reuter.
Lausir úr haldi
hjá Tyrkjum
TYRKNESKUR dómstóll ákvað
í gær að leysa sex stuðningsmenn
breska fótboltaliðsins Manchest-
er United úr haldi en þeir voru
handteknir fyrir leik liðsins gegn
tyrkneska liðinu Galatasray í
Evrópubikarkeppninni þann 3.
nóvember sl. Bretarnir sex voru
sakaðir um ölvun og óspektir á
almannafæri og skemmdarverk.
Á myndinni má sjá lögmann sex-
menninganna lengst til vinstri
hlýða á úrskurð dómarans en
aftar sitja bresku sakborningarn-
ir, sem voru frelsinu mjög fegnir
enda eru fangelsin í Tyrklandi
ekki kunn fyrir að búa vel að
vistmönnum sínum.
Skoðanakannanir í Rússlandi fyrir kosningarnar 12. desember
Umbótaflokkar með míkla
yfirburði í stórborgunum
Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
KJÖRDAGUR nálgast óðum í Rússlandi og línur eru að skýrast hvað
snertir samsetningu nýja þingsins. Lítið er samt vitað um afstöðu fólks
í afskekktum byggðum og sveitum en talið víst að þar eigi kommúnist-
ar og þjóðernissinnar mun meiri stuðning en í borgunum. I skoðana-
könnun sem danska Gallup-stofnunin gerði í samvinnu við rússneska
kannanafyrirtækið VCIOM fyrir nokkrum dögum í 24 borgum kom
fram að stærsti flokkurinn, Valkostur Rússlands, með umbótasinnann
Jegor Gajdar aðstoðarforsætisráðherra í fararbroddi, hefur þar 29,2%
fylgi. Næstur í röðinni er annar umbótaflokkur undir forystu Grígorís
Javlínskís hagfræðings, með 20,5% fylgi, þriðji er kommúnistaflokkur-
inn, 7,7%, og í fjórða sæti er fremur afturhaldssamur flokkur, Lýðræð-
isflokkur Rússlands, með 7,3%. Nokkrir þekktir harðlínukommúnistar
frá sovétskeiðinu eru taldir öruggir um þingsæti.
Anatólí Lúkjanov, forseti sovéska
Æðsta ráðsins, var talinn helsti leið-
togi valdaránsins í ágúst 1991 þótt
hann styddi það ekki opinberlega.
Hann á yfir höfði sér þungan dóm,
jafnvel dauðarefsingu ef hann verður
fundinn sekur en kosningarnar gætu
flækt málið. Lúkjanov býður sig fram
í Smolensk þar sem margir hafa
misst vinnuna vegna hruns Sovétríkj-
anna og hugsa því umbótasinnum
þegjandi þörfiná. Einnig er Lúkjanov
svo ofarlega á landslista kommúnista
að hann er nær öruggur um þing-
sæti og yrði því að svipta hann þing-
helgi til að dæma hann. Sumir heim-
ildarménn telja að Borís N. Jeltsín
forseti muni jafnvel gefa út sérstaka
tilskipun til að hindra Lúkjanov í að
ná kjöri.
Grígorí Javlínskí var um hríð með-
al ráðgjafa Míkhaíls Gorbatsjovs, síð-
asta Sovétforsetans sem nú hamast
gegn Jeltsín og umbótastefnu hans
í fyrirlestrum á Vesturlöndum. Javl-
ínskí nýtur mikillar virðingar þrátt
fyrir ungan aldur. Hann segist ekki
óttast að Jeltsín muni misnota vænt-
anlega stjórnarskrá þar sem gert er
ráð fyrir geysimiklum völdum for-
setaembættisins. „En verði nýr for-
seti kjörinn gæti það orðið aftur-
haldsmaður. Við ríkjandi aðstæður í
landinu gæti stjórnarskráin orðið
stórhættulegt tæki“.
Ástir og örlög Zhírínovskís
Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn
fékk 3,4% í áðurnefndri könnun.
Hann stendur ekki undir nafni að
mati Vesturlandabúa, stefnan er
sambland af nýfasisma og rúss-
neskri þjóðrembu. Vladímír Volfo-
vítsj Zhírínovskí, leiðtogi flokksins,
fékk um 10% atkvæða þegar hann
bauð sig fram í forsetakjörinu 1991,
þá sigraði Jeitsín.
Zhírínovskí er fullur eldmóðs og
segist dreyma um þann dag er „rúss-
neskir hermenn geta þvegið stígvélin
sín í Indlandshafi", að sú stund renni
upp að umheimurinn beri á ný virð-
ingu fyrir Moskvuvaldinu og óttist
það. Hann segist vera „hófsamur á
öllum sviðum" en sé fastur fyrir þeg-
ar hagsmunum ríkisins sé ógnað. Á
"• . | | i
■ T 1
Vladímír Anatólí Lúkjanov
Zhírínovskí
fundi með fréttamanni gengur hann
skyndilega að landakorti, bendir á
gömlu sovétlöndin, vesturhluta Tyrk-
lands, Afganistan og íran. „Við
munum rita orðið „Rússland" gullnu
letri hérna“.
Hann stærir sig af því að hafa
aldrei verið kommúnisti, segir bolsé-
vikka hafa rænt völdunum 1917 og
nauðgað þjóðinni, Stalín hafa mis-
þyrmt eigin flokki og þjóð. Leiðtogar
eftir daga Stalíns hafi eingöngu
hugsað um að skara eld að eigin
köku. Zhírínovskí studdi Jeltsín í
slagnum við þingið í haust og virðist
bera óttablandna virðingu fyrir for-
setanum, skríður bókstaflega fyrir
honum á fundum. Hann styður ein-
dregið stjórnarskrárdrög Jeltsíns,
segir þau í samræmi við stefnu sína
um sterkt forsetavald.
Zhírínovskí, sem er 47 ára gam-
ali, reynir að físka í gruggugu vatni,
höfðar fyrst og fremst til þeirra sem
deila með honum vonbrigðum og
særðu stolti þjóðernissinnans sem
svíður að föðurlandið skuli ekki leng-
ur vera risaveldi. Hann hefur ritað
bók um einmanalega ævi sína, kulda
samferðamannanna og ástarsorgir.
„Ég ólst upp í veröld þar sem
hvergi var hlýju að finna, ekki frá
foreldrum mínum, heldur ekki vinum
eða kennurum. Mér fannst einhvern
veginn að ég væri óþarfur, alltaf
fyrir öllum, að sífellt væri verið að
hnýta í mig.. . Ef ég hefði fundið
ástríka konu hefði ég ef til vill getað
eytt helmingnum af orkunni eða
mestum hluta hennar í hana“.
Samhjálp kvenna ^
KAFFIKVOLD A AÐVENTU
Stuðningshópur kvenna sem gengist hafa undir aðgerð vegna
brjóstakrabbameins bjóða á kaffikvöld f Skógarhlíð 8, í húsi
Krabbameinsféiagsins á fimmtudaginn 2. desember, kl. 20.30.
Gestur kvöidsins, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, flytur hugvekju.
Allir velkomnir Kaffiveitingar
UÓÐ UM BORGINA OG ÁSTINA
HÚSIN OG GÖTURNAR EFTIR KRISTJÁN ÞÓRÐ HRAFNSSON
Kristján ÞórSur Hrafnsson er fæddur áriS 1968.
Hann hefur numið bókmenntir í Bandaríkjunum, á Islandi og í Frakklandi
v og hefur áSur sent frá sér eina IjóSabók, / öðrum skilningi, áriS 1989.
Auk þess hefur hann birt IjóS og þýöingar á IjóSum liSinna alda
í blöSum, tímaritum og safnritum skálda. LjóS Kristjáns ÞórSar eru bæSi
háttbundin og í frjálsu formi.
AthyglisverÖ^5
y eftir ungan höhft^
á>
ALMENNA BOKAFELAGLÐ HF