Morgunblaðið - 01.12.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993
47
Minning
Gunnlaugur Krist-
jánsson, fyrrum bóndi
íLambanesi, Fljótum
Hinn 20. nóv. sl. var til moldar
borinn á Síglufírði Gunnlaugur
Kristjánsson, fyrrv. bóndi í Lamba-
nesi í Fljótum. Með honum hefur
safnast til feðra sinna síðasta barn
þeirra Lambaneshjóna Sigurlaugar
Sæmundsdóttur og Kristjáns Jóns-
sonar. Böm þeirra vom 12 að tölu
en 10 komust til fullorðinsára.
Gunnlaugur var barnanna yngstur.
Vegna tengda móður minnar við
þessi Lambaneshjón þekkti ég mörg
börn þeirra og vissi hvað þau voru
vel gerð á ýmsa lund, músíkölsk
og völundar í höndum, hreint lista-
fólk eins og t.d. Jómnn og Jón, að
ógleymdri snyrtimennskunni sem
mér hefur alla tíð fundist eins kon-
ar ættareinkenni.
Það fóm ekki margar sögur af
hagleik Lauga en ég er viss um að
hann var handlaginn. Aftur á móti
fékk ég sönnun fyrir því hvað hann
var músíkalskur þegar hann töfraði
fram tóna úr trékassa með hross-
hársstrengjum og náði lagi á gamla
og slitna fíðlu.
Kynni mín af þeim Lambanes-
bræðrum, Gunnlaugi og Valgarði,
hófust árið 1937 þegar ég var 12
ára með ársól lífsins heitri á vanga.
Ég var sumar í Lambanesi þetta ár.
Þeir bræður, Laugi og Valli, eins
og þeir vom alltaf kallaðir af kunn-
ugum, bjuggu félagsbúi á Lamba-
nesjörð með ómetanlegri aðstoð
Önnu, konu Lauga. Og þessi þrenn-
ing varð eins konar tákn um ís-
lenska gestrisni eins og hún gat
best orðið. Ég tala nú ekki um
greiðviknina sem var einkenni þessa
fólks.
Á Lambanesheimilinu dvaldist
einnig faðir þeirra bræðra, Kristján,
sem lést þar í hárri elli, 105 ára
gamall.
Þegar þeir bræður hófu búskap-
inn á þriðja áratugnum byrjuðu
þeir á því að reisa nýtt íbúðarhús
úr steini. Ég held það séu engar
ýkjur að betra íbúðarhús var vand-
fundið í sveit á íslandi lengi fram
eftir ámm. Jarðabætur létu lengi
vel standa á sér, sennilega vegna
þess hvað engjabúskapur var,góður
og engjarnar ekki mjög langt frá
bænum. Hestasláttuvél kom 1937
með þeim allra fyrstu í Fljótum.
Þegar ég kom fyrst í Lambanes
voru útihús öll með gamla laginu,
úr torfí og grjóti. En smám saman
hófust þeir bræður handa með
jarðabætur og byggingu húsa yfir
fénað og hey. Þegar Laugi og Anna
létu af búskap um miðjan sjöunda
áratuginn var uppbygging á jörð-
inni í nokkuð góðu lagi. Valgarður
var þá látinn fyrir nokkmm árum
en með fráfalli hans versnuðu að-
stæður til búskapar á jörðinni, því
að aldurinn var farinn að færast
yfir þau Lauga og Önnu. Þau
bragðu því búi, seldu jörðina og
fluttust til Siglufjarðar. Þar lést
Anna fyrir skömmu. Má því með
sanni segja að þau Laugi hafi orðið
svo að segja samferða yfir móðuna
miklu.
Ég hef ekkert vit á búskap og
get því ekkert sagt um búskap
þeirra bræðra og Önnu. Mér segir
svo hugur að hann hafi verið svona
svipaður og hjá öðrum bændum á
íslandi. En hitt get ég fullyrt að
snyrtimennska og þrifnaður, úti
sem inni, var alveg einstakur á
Lambanesheimilinu.
Þótt þeir bræður, Laugi og Valli,
teldust báðir húsbændur mínir sum-
arið 1937 höguðu kringumstæður
því þannig að samskipti mín við
Lauga urðu meiri. Valli var talsvert
Minning
Guðjón Jónsson
Þegar gamlir vinir og samstarfs-
menn falla óvænt frá er sem opnist
skarð í huga manns og eftir stend-
ur tómið eitt. Svo fór fyrir mér
þegar ég frétti um andlát Guðjóns.
Við Guðjón kynntumst ungir, eða
þegar við vorum báðir í námi, það
var ekki síst fyrir hans orð að ég
tók að mér störf fyrir iðnnemasam-
tökin, sem leiddu af sér þátttöku í
félagsmálum æ síðan. Okkar kynni
urðu þó ekki náin fyrr en seint á
fimmta áratugnum, þegar við báðir
fórum að taka þátt í störfum Félags
jámiðnaðarmanna. Síðan höguðu
örlögin því svo til að við urðum
samherjar og samstarfsmenn í hart-
nær 40 ár.
Ég ætla mér ekki þá dul að telja
upp öll þau góðu störf, er hann
vann verkalýðshrgyfingunni, en
henni helgaði hann krafta sína öll
bestu ár ævi sinnar. Eitt verkefni
sem hann tók sér fyrir hendur mun
alltaf standa upp úr, það er barátta
hans fyrir bættum aðbúnaði og ör-
yggi á vinnustöðum. Þar var hann
óþreytandi að hvetja menn til -dáða
með sleitulausri baráttu og í dag
má segja að verulegum árangri
hafí verið náð.
Guðjón gerðist starfsmaður Fé-
lags járniðnaðarmanna árið 1960
og var eini starfsmaður þess í tíu
ár og mótaði það starf, og að því
býr félagið enn í dag.
Nú þegar klukkan hefur slegið
síðasta höggið þá svífa minningarn-
ar um hugann, margar þeirra ættu
eflaust erindi á þetta blað, en þar
verða þær ekki settar að sinni. En
minningin um baráttumann og góð-
an dreng mun lifa í hugum þeirra
er kynntust honum.
Ég þakka Guðjóni samfylgdina
og sendi Unni og börnunum og
ættingjum öllum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Tryggvi Benediktsson.
að heiman þetta sumar við smíðar
fyrir sveitunga sína, enda lærður
smiður og verkhagur eins og hann
átti kyn til.
Ég og Laugi vorum góðir saman.
Hann var glaðvær með afbrigðum
og góður húsbóndi sem ekki tók
hart á yfirsjónum og vanþekkingu
kaupstaðarbarnsins við bústörfin.
Ég var aftur á móti uppfullur af
ýmiss konar „gálgahúmor“ sem
Laugi hafði gaman af.
Það er því margs skemmtilegs
að minnast frá þessu Lambanes-
sumri þótt upp úr standi kaupstað-
arferðirnar til Haganesvíkur. En
farið var á báti, svokallaðri doríu,
yfír Miklavatn. Þá má minnast á
sláttinn á þýfðu Lambanestúninu
og heyskapinn uppi á rennisléttum
engjunum með nýfenginni Herkú-
les-sláttuvélinni og heyflu'tninginn
með hestum heim að bæ. Þá má
ekki gleyma fyrirdrættinum í
Miklavatni þegar við Laugi vorum
svo fengsælir að við héldum að við
hefðum þurrkað upp silunginn góða
úr vatninu.
Ferðin inni í Stíflu á sólbjartri
júlínótt er líka minnisstæð. Við
Laugi vorum á eldgömlum drógum
í leit að einni Lambaneskúnni sem
hafði farið á flakk þegar kall náttúr-
unnar heltók hana. Ferð þessi er
svona minnisstæð vegna athuga-
semda Lauga um fararskjóta og
riddara sem voru svo gráthlægileg-
ar að samferðamaður tolldi vart í
hnakki fyrir hlátri.
Upp í hugann kemur einnig ferð-
in á Miklavatni á doríunni kosninga-
kvöldið 1937. Kristján bóndi í
Lambanesi hafði farið af bæ til að
kjósa þennan dag og síðan lagt leið
sína að Grindli. Hafði svo verið um
talað að ég sækti hann á doríunni
því að allir Lambaneshestar voru
uppteknir við atkvæðasmölun fyrir
Framsóknarflokkinn. Þegar ég var
kominn yfir vatnið rétt undan
Grindli voru þeir komnir Laugi og
faðir hans. Við Laugi settumst und-
ir árar en komum gamla manninum
fyrir aftur í skut. Og er ekki að
orðlengja það að dálítið fór að kula
á vatninu þegar við lögðum af stað
heim á leið. Þegar fyrsta vindstrok-
an gáraði vatnið var gamli maður-
inn allt í einu orðinn formaður á
fískibáti í róðri og farinn að gefa
hásetum fyrirmæli um róðrarlag.
Ég gleymi aldrei hláturskastinu
sem við Laugi fengum. Ef einhver
í landi hefði tekið eftir róðralaginu
á doríunni hefði hann með réttu
álitið að ræðarar væm í meira lagi
skrýtnir. En við jöfnuðum okkur
og komumst heim í bæ með gamla
manninn.
Þannig gæti ég haldið áfram að
rifja upp samskipti okkar Lauga frá
þessu skemmtilega sumri en læt
hér staðar numið. Það var ekki
meining mín að skrifa langa minn-
ingargrein um Lauga í Lambanesi
en ég einsetti mér að hafa hana á
léttari nótunum því það fannst mér
best hæfa þessum góða, vandaða
og glaðsinna drengskaparmanni.
Gunnlaugur Kristjánsson var
orðinn níræður þegar hann lést.
Fæddur var hann 3. júlí 1903 og
dáinn 14. nóvember 1993. — Bless-
uð veri minning hans.
Eiríkur Eiríksson.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns og bróður okkar,
BJARNA Þ. JÓNSSONAR,
Skerseyrarvegi 2,
HafnarfirSi.
Guðrún E. Magnúsdóttir
og systkini hins látna.
sokkabuxur hnésokkar
Hf
v/Nesveg, Seltj.
t
Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við fráfall og útför
GUNNARS KRISTJÁNSSONAR
bónda,
Dagverðareyri.
Fjóla Pálsdóttir,
. Oddur Gunnarsson, Gi'gja Snædal,
Seselia M. Gunnarsdóttir, Jóhannes Þengilsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Minning
Hlín Ingólfsdóttir
Fædd 20. október 1909
Dáin 8. nóvember 1993
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka...
(Vald. Briem)
í þessum orðum langar mig til
að minnast „stjúpömmu“ minnar,
Hlínar Ingólfsdóttur.
Ég var 16 ára þegar ég eignað-
ist fast heimili hjá pabba og Svölu
og um leið kynntist ég Hlín. Hlín
tók mér strax opnum örmum og
lét sér mig og fjölskyldu mína sig
máli skipta, enda hugsar dóttir
mín aldrei öðruvísi um hana en
sem Hlín langömmu.
Eitt sinn er ég var á leið í úti-
legu um verslunarmannahelgi
komst Hlín að því að ég hafði ein-
ungis hugsað fyrir tjaldi og svefn-
poka og lánaði hún mér því bak-
poka og ráðlagði mér hvernig nesti
ég skyldi taka með og reyndist ég
vera best útbúni unglingurinn í
mínum hópi. Svona var hún alltaf
tilbúin með góð ráð og tilbúin að
miðla öðmm af reynslu sinni og
þekkingu.
Ég veit að jólaboðið í ár verður
svolítið tómlegt án hennar, en
minningin um þessa góðu og mikil-
hæfu konu mun aldrei gleymast.
Hún er eina amman sem ég hef
notið og er ég þakklát fyrir að
hafa kynnst henni.
Elsku Hlín,
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Ása María Björnsdóttir.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR PÁLL SAMÚELSSON
verkstjóri,
Stigahlið 22,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. desember
kl. 15.00.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu minnast hans, er
bent á Slysavarnafélag íslands.
Þórunn Jónsdóttir,
Jón B. Sigurðsson,
Greta Maria Sigurðardóttir, Böðvar Páll Ásgeirsson,
Karitas Sigurðardóttir, Guðmar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ELÍASSON
trésmíðameistari,
Þinghólsbraut 33,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju á morgun, 2. desember,
kl. 13.30.
Magnús Ingi Sigurðsson, Ástríður Sveinsdóttir,
Elías Jökuli Sigurðsson, Kristrún Malmquist,
Kristín Gíslína Sigurðardóttir, Kari Sigurðsson,
Auðbjörg Valgerður Kristoffersen, Gunnar Kristoffersen,
Benedikt Sigurðsson, Ólöf Sif Bjarkar,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTURSTEFÁNSSON,
Heiðvangi 16, Hafnarfirði,
áður Vesturvegi 31,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju fimmtudaginn 2. nóvember
kl. 13.30.
Björk Pétursdóttir, Kjartan Guðmundsson,
Stefán Pétursson, Bryndfs Jónsdóttir,
Sveinn Ingi Pétursson, Hólmfríður Jónsdóttir,
Hallgerður Pétursdóttir, Jón Gauti Jónsson,
Helga Pétursdóttir, Vilhjálmur Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför,
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR,
Stóra-Lambhaga.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunar-
fólks á E-deild Sjúkrahúss Akraness
fyrir hjúkrun i veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Jónsdóttir,
Sigurður Ferdinandsson og fjölskylda,
Reynir Jóhannsson og fjölskylda,
systur hins látna
og aðrir vandamenn.