Morgunblaðið - 17.01.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 2 5
MYND eftir Kristján.
Safnarinn
sýndur á ný
DRAUMASMIÐJAN tekur á sunnudag upp
sýningar á leikritinu Safnaranum, sem
byggt er á sögu John Fowles. Sýningar eru
í Höfðaborg, Hafnarhúsinu.
Sigurður A Magnússon þýddi bókina og
leikgerðin er eftir Dofra Hermannsson og
leikhópinn, en auk Dofra fer Björk Jakobs-
dóttir með hlutverk í leiknum. Leikstjóri er
Gunnar Gunnsteinsson.
Leikritið Safnarinn var frumsýnt 17. nóv-
ember og er nú sýnt á nýjan leik eftir hlé
vegna veikinda og jólahalds.
BJÖRK Jakobsdóttir og Dofri Hermannsson í hlutverk-
um sínum í Safnaranum.
Ur gömlum
möppum
KRISTJÁN E. Einarsson opnar ljós-
myndasýningu í Ljósmyndamið-
stöðinni Myndás á morgun, laugar-
daginn 18. janúar kl. 14.
A sýningunni verða svart-hvítar
myndir frá árunum 1978-1985,
bæði mannamyndir og myndir af
atburðum liðinna ára.
Kristján stundaði nám í Svíþjóð
árin ’85 og ’86. Hann vann hjá
Morgunblaðinu 1978-1985 og einn-
ig hjá Fróða hf. frá 1987.
Sýningin ber ekki sérstakt þema,
en heitir „Skemmtilegar myndir úr
gömlum möppum“.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16.
-----»---------
Nýjar bækur
• VIÐ SÓLÞANIN segl er önnur
ljóðabók Eyjóífs Óskars en hin
fyrri, Strengir
veghörpunnar,
kom út 1991. í
kynningu segir
að Eyjólfur Osk-
ar sé oft heim-
spekilegur í
skáldskap sínum
og beiti jafnan
myndríkum sam-
líkingum en ger-
ist flölhæfari og
marglyndari í
vali yrkisefna. Málfar hans sé
hljómsterkt eins og áður.
Útgefandi er Skákprent var bók-
in sett ogprentuðþar, en bundin
í Flatey. Káputeikning er eftir Sig-
urbjörgu Eyjólfsdóttur. Bókin er 83
síður, verð 1.714 kr.
------»■■♦■■■♦----
Eyjólfur
Óskar
Á köldum
klaka í fimmta
sætinu
„LESENDUR danska dagblaðsins
Poiitiken völdu kvikmyndina Á
köldum klaka, eftir Friðrik Þór Frið-
riksson, fimmtu bestu mynd ársins
1996 í flokki mynda framleiddra
utan Bandaríkjanna.
í fyrsta sæti var myndin „Train-
spotting" eftir Danny Boyle, í öðru
sæti mynd Mike Leigh, „Secrets and
Lies“, í þriðja sæti „Sense and Sesi-
bility“ eftir Ang Lee og í fjórða
sæti var kvikmynd franska leik-
stjórand André Techine.
í umsögn blaðsins um myndina
Á köldum klaka segir meðal annars
að Friðrik Þór sanni enn og sýni
með þessari mynd hvers hann er
megnugur. Myndin sýni vel þau
nánu tengsl við náttúru og forfeður
sem séu íslendingum og Japönum
mjög eðlileg.
Blaðið segir að með Á köldum
klaka skipi Friðrik Þór sér í hóp
leikstjóra á borð við Jim Jarmusch
og Aki Klaurismaki.
Myndin var frumsýnd í Noregi
um miðjan desember og hefur feng-
ið góða aðsókn og jákvæða dóma,
segir í kynningu frá Islensku kvik-
myndasamsteypunni.
COMPÁCl
Verð aðeins:
79.900,
Verð aðeins:
94.900,
lilboð nr.1
Pentium 100Mhz
16 Mb minni -1275 Mb Seagate diskur
14“ skjár-Windows '95
Lyklaborð og mús
Tilboð nr.Z
s Pentium 133Mhz
16 Mb minni-1275 Mb Seagate diskur
14" skjár-Window s '95
Lyklaborð og mús
<Wseagate
DISKAR
Harðir diskar
fyrir PC og Macintosh
tölvur á einstöku verði
Netkort
Geislaskrifarar
49,800.
Mótald, fræðsluefni,
rekstrarvörur, hugbúnaður,
netbúnaður
15 - 50% afsláttur
HEWLETT
PACKARD
PREN1ARAR
10,4" litaskjár
Verð aðeins;
mm,-
Ferðavél, Pentium 100Mhz
8Mb minni -810 Mb diskur
1. ST31276A-1275 Mb 10,900,-
2. ST31720A - 1700 Mb 19,900.-
3. ST32107N-2,1Gb 49,900.-
Nýtt kortatímabil
TIL ALLT AÐ 36 MÁNADA TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
rBmm*
SKIPHOLTI 17 ■ 105 REYKJAVIK
Fyrir Macintosh. Gæði og verð
sem vekja athygli
HP DeskWriter 600c
HP DeskWriter 660c
SIMI: 562 7333 • FAX: 562 8622
Elsta tölvufyrirtæki á Islandi