Morgunblaðið - 22.08.1998, Blaðsíða 56
' 56 LAUGARDAGUR 22. ÁGIJST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Draumurinn rætist
Morgunblaðið/Amaldur
LISTAMAÐURINN Jón Óskar ásamt listakonunni Jóní Jónsdóttur.
MAÐUR þarf ekki að vera á gam-
als aldri til þess að setja mark sitt
á tónlistarlífið í landinu. I það
minnsta stofnuðu tveir ungir
grunnskólanemendur í Stykkis-
hólmi hljómsveitina „Feedback" í
nóvember síðastliðnum. Þeir heita
Sigmar Hinriksson og Hrafnkell
Thorlacius og óhætt er að segja
þeir hafa ekki setið auðum höndum
~ - síðan.
Þeir hafa verið duglegir að æfa
og fljótlega fóí'u þeir að semja sína
eigin tónlist. I framhaldi af því
ákváðu þeir að gaman væri að gefa
út eigin geisladisk með frum-
saminni tónlist. Þótt sá draumur
hafí verið ansi langt í burtu í
fyrstu, hefur hann nú ræst.
Út er kominn fyrsti geisladiskur
strákanna með 11 lögum eftir þá.
Upptökur fóru fyrst fram í Fella-
helli í Reykjavík I vetur, en í vor
keypti félagsmiðstöðin í Stykkis-
hólmi upptökutæki og var þá farið
af stað að nýju og lauk upptökum í
félagsmiðstöðinni í júní.
Að sögn þeirra er þetta fyrsti
geisladiskurinn sem gefínn er út í
Stykkishólmi. Þeir eru að vonum
MYNDBÖND
Hótel-
gestir á
. suðupunkti
Fýsnir
(Appetite)
BRESKA kvennagullið og leyni-
þjónustumaðurinn 007 eða James
Bond virðist leita uppi vandræðin.
Hann hefur raunar þann vafa-
sama starfa. Hann er sífellt að
lenda í útistöðum við óárennileg
ilimenni borð við stálkjaftinn, sem
verður að teljast einn af eftir-
minnilegri óþokkum kvikmynda-
sögunnar.
En í næstu mynd er viðbúið að
hann þurfi að taka á honum stóra
sínum. Þá er hætt við að sjarmör-
inn lendi í kröppum dansi því höf-
uðandstæðingur hans verður
kona. Og hvaða kona er hættu-
legri en sú sem á harma að hefna?
Sveimhuginn Bond hefur að því
er fregnir herma komið illa fram
við þessa gömlu ástkonu sína og
ýtt henni út í ystu myrkur þar
sem myrkraverkin verða til.
Nefnist myndin „Pressure Point“.
Annars er það að frétta að í ný-
legu viðtali kemur fram að Pierce
Brosnan, sem fer með hlutverk
Bonds, er ekki síður hégómlegur
en fyrirmyndin og vill ekki eldast
í hlutverki Bonds. „Ég vil ekki að
fólk fylgist með því þegar ég eld-
ist, sjái mig gildna um mittið og
hárið þynnast. Það væri hræði-
legt,“ segir Brosnan.
GUÐJÓN Bjarnason arkitekt spjallar við viu sinn Ara Alexander
Ergis Magnússon sem varð fyrstur til að sýna í Forsetastofunni.
iAR ■* “■'ÆS-Í'
ánægðir með árangurinn og vilja
koma á framfæri þakklæti til um-
sjónarmanns félagsmiðstöðvarinn-
ar, Heimis Jóhannssonar, en án
hans segja þeir að þetta hefði
aldrei tekist. Hann hafí staðið vel
við bakið á þeim, hvatt þá áfram
og unnið mikið starf með þeim.
Útgáfan hefur kostað mun
meiri vinnu en þeir áttu von á í
fyrstu. en þeir segjast ekki sjá eft-
ir þeim tíma.
Drama
★ ★]/2
Framleiðendur: Charly Cantor,
Simon Johnson og Christoph Meyer-
Wiel. Leikstjóri: George Milton.
Handritshöfundar: Charly Cantor og
George Milton. Kvikmyndataka: Pet-
er Thwaites. Tónlist: Dominik Scher-
rer. Aðalhlutverk: Ute Lemper,
Trevor Eve og Christien Anholt. (102
mín.) Bresk. Skífan, ágúst 1998.
Bönnuð innan 12 ára.
Ef kvikmyndunum „The Shin-
— ing“ og „Delicatessen“ yrði komið
fyrir í skál ásamt sjónvarpsþáttun-
um Hótel Tinda-
stóli og hrært dug-
lega í, gæti útkom-
an orðið ^ myndin
Fýsnir. I þeirri
ágætu en skrítnu
kvikmynd segir frá
gestum og starfs-
mönnum gistihúss
nokkurs sem eru
hver öðrum furðu-
legri. Hótelstjórinn gerir þar sitt
besta við að hafa hemil á gestunum
og halda dularfullri fortíð hússins
leyndri. Tiltekið herbergi, númer
207, er af einhverjum ástæðum
sérstaklega varhugavert, enda ver-
ið lokað og læst í 20 ár.
Mynd þessi hefur mjög óafmark-
aða frásagnarfléttu og leggur
meira upp úr táknrænni notkun á
rýminu sem hún gerist í. Aldrei
sést út fyrir hótelsins dyr og skap-
ar það einangrunar- og innilokun-
arkennd sem kallast á við sálará-
stand persónanna, sem eiga það
sameiginlegt að vera á einhvern
hátt tæpar á geði. Herbergið for-
boðna er jafnframt tákn fyrir dul-
vitundina sem geymir bældar og
-• dýrslegar hvatir, enda verður
fjandinn laus þegar gestirnir taka
að leita inni í herbergið. Myndin
tekur oft áhættu sem kemur misvel
út, þannig að heildaryfírbragðið
verður dálítið skrykkjótt. Engu að
síður er Fýsnir ágætis tilbreyting
frá vanalega Hollywood-pakkanum
-,og vel þess virði að sjá hana.
Heiða Jóhannsdóttir
KARLMENN
tjá sig
FORSETASTOFAN neftiist
galleríið í Herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar á Skóla-
vörðustíg. Þar hefur Jistamað-
urinn góðkunni Jón Óskar opn-
að sýningu á málverkum sín-
um.
Að Forsetastofunni stendur
hópur karlmanna sem hafa
brotið af sér hlekki mæðra-
veldisins og helgað sig fram-
gangi karlmannlegrar listar.
Akademíu Forsetastofúnnar
skipa Ari Alexander, Axel Hall-
kell og fulltníi verslunarinnar.
Heiðursfélagar hennar eru
Thor Vilhjálmsson og Kristján
Davíðsson, enda einkar fróðir
um karlmannlega list. Það er
skilyrði að listamennirnir sem
sýna séu karlmenn og máli með
olíu á striga.
Ragnar Kjartansson verslun-
arstjóri Herrafataverslunarinn-
ar segir að mikið sé verið að
koma list kvenna á framfæri og
opnuð séu kvennagallerí út um
allan bæ. Því hafi verið kominn
tími á afslappað og fallegt
karlagallerí. „Það felst ekkert
kvenhatur í þessu, það er bara
ekki pláss fyrir konur hér, og
einhvers staðar verða vondir
að vera.“
En hverjir skyldu njóta karl-
mannlegrar listar best? Konur
eða karlar? Ragnar hefur svar
á reiðum höndum; „Allir. Hing-
að kemur fólk af götunni, sest í
stofuna lijá okkur, slappar af
og nýtur listarinnar. Og þegar
manni líður eins og lieima í
stofu sainþykkir maður enga
vitleysu. Maður vill almenni-
lega olíu á striga, engan kúk í
dós uppi á vegg.“
KONUR ræddu sín á milli um karlniannlega list, meðan karl-
mennirnir ræddu um konur.
Fyrsti geisladiskurinn í Stykkishólmi