Morgunblaðið - 14.10.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VÍÐTÆK Íslandskynning í
tengslum við EXPO East matvæla-
sýninguna í Washington og opnun
sýningar Listasafns Íslands í Corc-
oran-safninu þessa helgi þykir hafa
farið vel af stað. Bandaríkjamenn
virðast spenntir fyrir íslenskri fram-
leiðslu hvort heldur um er að ræða
lambakjöt, osta og snyrtivörur úr
náttúruefnum eða ullarvöru og sér-
hannaðar flíkur úr fiskiroði.
Nafni Íslands var haldið hátt á
lofti föstudaginn 12. október. Fyrri
part dags flutti Jón Baldvin Hanni-
balsson sendiherra erindi á EXPO
sýningunni um vistvæna framleiðslu
og nauðsyn þess að byggja á sjálf-
bærum framleiðsluháttum. Þar kom
fram að tveir þriðju hlutar orku-
notkunar Íslendinga kæmu frá end-
urnýjanlegum orkugjöfum og að
stefnt væri að því að gera Ísland að
fyrsta vetnishagkerfi heims. Jón
Baldvin fjallaði um fiskveiðar Ís-
lendinga og að stjórnun veiðanna
byggða á vísindalegum grunni, en
hann telur að í ljósi þess að upplýstir
neytendur krefjist stöðugt meiri
gæða væru nú að myndast sóknar-
færi fyrir vottaðar, lífrænar íslensk-
ar landbúnaðarafurðir á erlendum
mörkuðum.
Magnús Stephensen, markaðs-
stjóri Flugleiða í Bandaríkjunum og
Kanada, fjallaði síðan um vistvæna
ferðaþjónustu og þá einstöku ná-
lægð við náttúruna sem ferðamenn
upplifa á Íslandi.
EXPO sýningin er hin veglegasta
og ætla má að 15.000 fagmenn heim-
sæki hana um helgina. Magnea Guð-
mundsdóttir, sölu- og markaðsstjóri
Bláa lónsins, taldi að sýningin hefði
farið mjög vel af stað og það væri
mikill áhugi á Íslandi og þeirri vöru
sem fyrirtækið hefði að bjóða. Aldrei
hafa jafn mörg íslensk fyrirtæki
sýnt saman á matvælasýningu er-
lendis, en eftirtaldir aðilar sýna þar
vörur sínar: Bláa lónið, Blómadrop-
ar, Eggert feldskeri, ELM, Hand-
prjónasambandið, Hexa, Iceland
Spring, Jurtagull, Mjólkursamsalan,
Móa, Móðir jörð, Norðlenska, Osta-
og smjörsalan, Pottagaldrar, Spaks-
mannsspjarir, Thorvin og Urta-
smiðjan. Eins veita Flugleiðir og
Ferðaþjónusta bænda upplýsingar
um starfsemi sína.
Nýir möguleikar
Íslands
„Við erum að uppgötva nýjan
sannleika um möguleika Íslands,
eyjunnar vistvænu með sjálfbæra
orku og matvælaframleiðslu,“ sagði
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra, í samtali við Morgunblaðið. „Í
því samhengi verður mér oft hugsað
til orða Kristjáns Eldjárns að lífs-
hættirnir væru tveir á Íslandi til
sjávar og sveita. Við höfum fyrir
löngu náð miklum árangri í hafinu,
en nú finnst mér að við séum að
skynja að við eigum líka mikla
möguleika í hinni auðlindinni, land-
inu sjálfu.“
Máli sínu til stuðnings bendir
Guðni á að Íslendingar væru nú að fá
hærra verð fyrir matvælaafurðir
vegna þess hversu hreint landið sé
og framleiðsluhættir vistvænir.
Hann er ánægður með það hversu
vel þessi glæsilega kynning fer af
stað. Undirtektir hafi greinilega ver-
ið miklar og Íslendingum hafi þegar
tekist að ná sterkum tengslum við
ýmsa seljendur, ekki síst við versl-
anakeðjurnar Whole Foods og
Fresh Fields.
Íslendingar sýna að þeir kunna að nýta sér náin tengsl við náttúruna
Vistvæn framleiðsla vekur
athygli í Bandaríkjunum
Washington. Morgunblaðið.
FLUGHÁLT var víða á vestanverðu
landinu í fyrrinótt og í gærmorgun
og má rekja fjölda umferðaróhappa
til hálkunnar.
Lögreglan minnir þó á að orsakir
þeirra séu ekki síður þær að öku-
menn hafi ekki ekið í samræmi við
aðstæður.
Lögreglan í Keflavík hafði í nógu
að snúast en alls var fjórum bílum
ekið út af á Suðurnesjum á föstu-
dagskvöld og í fyrrinótt.
Stakkst á nefið
ofan í skurð
Fyrsta óhappið varð laust fyrir
miðnætti þegar bíl var ekið ofan í
djúpan skurð á Njarðarbraut, til
móts við Steypustöð Suðurnesja, en
þar er verið að grafa fyrir nýrri
skólplögn. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni í Keflavík var bíln-
um ekið í gegnum varúðarmerking-
ar og síðan ofan í skurðinn. Öku-
maður var einn í bílnum og slapp án
teljandi meiðsla.
Fyrripart nætur fór bíll út af
Grindavíkurvegi og undir morgun
var tveimur bílum ekið út af Reykja-
nesbraut á Strandarheiði. Engin
slys urðu á fólki í þessum óhöppum.
Í Reykjavík urðu átta umferðar-
óhöpp aðfaranótt laugardags en
ekkert þeirra taldist þó vera alvar-
legt, að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík. Harður árekstur varð á Bú-
staðavegi og í Árbæ rann bíll yfir á
rangan vegarhelming og skall fram-
an á öðrum.
Tveimur bílum ekið á ljósastaur í
Kópavogi í fyrrinótt en ökumenn
þeirra munu hafa misst stjórn á
þeim vegna hálku.
Ekið á hjólreiðamann
Ekið var á hjólreiðamann í Ár-
túnsbrekku um klukkan níu. Hjól-
reiðamaðurinn var á leið upp Ár-
túnsbrekkuna þegar hann varð fyrir
bíl sem ekið var af afrein frá
Reykjanesbraut. Hann var ekki tal-
inn alvarlega slasaður en kenndi til
eymsla. Hann var fluttur á slysa-
deild Landspítalans í Fossvogi.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var aðfaranótt laugardags tiltölu-
lega róleg. Einn maður var þó lam-
inn fyrir utan skemmtistað í mið-
borginni og var talið að hann hefði
nefbrotnað.
Mikil hálka og fjöldi
umferðaróhappa
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Bíll stakkst ofan í djúpan skurð á Njarðarbraut í fyrrakvöld.
RJÚPNASTOFNAR eru í lágmarki
víðast hvar um landið, aðeins á Aust-
urlandi er varpstofninn yfir meðallagi
að stærð. Ungatalningar Náttúru-
fræðistofnunar Íslands síðsumars
leiddu í ljós góða frjósemi hjá rjúp-
unni, ungahópar voru stórir og nær
allir kvenfuglar með unga.
Í vor var talið á 29 svæðum í öllum
landshlutum. Rjúpum fækkaði á taln-
ingasvæðum á Suðausturlandi, Suð-
urlandi og Suðvesturlandi. Eina und-
antekningin frá þessu var talninga-
svæði í nágrenni Reykjavíkur en þar
fjölgaði rjúpum verulega. Þessi taln-
ingareitur er innan marka þess svæð-
is sem umhverfisráðherra lokaði fyrir
rjúpnaveiði haustið 1999. Á Vestur-
landi, Vestfjörðum, Norðurlandi,
Norðausturlandi og Austurlandi
fækkaði rjúpum.
Íslenski rjúpnastofninn sveiflast
mikið og hafa yfirleitt liðið um tíu ár
milli toppa. Ólafur K. Nielsen fugla-
fræðingur segir að nú sé rjúpna-
stofninn í lágmarki, á næsta ári eða
því þarnæsta muni hann taka að
stækka aftur ef allt verður eðlilegt.
Munurinn á stofnstærð milli há-
marks- og lágmarksára hefur verið
þre- til tífaldur.
Fallið frá friðun
Umhverfisráðuneytið hefur aflétt
friðun rjúpu sem boðað hafði verið til
vegna rannsóknar á áhrifum skot-
veiða á vetrarafföll við vestanverðan
Eyjafjörð sem átti að taka gildi nú í
haust. Haustið 2000 var friðað austan
Eyjafjarðar og var ætlunin að friða
svæðið vestan fjarðarins nú í haust.
Þar sem fuglarnir dreifðust ekki eins
og búist hafði verið við, heldur dvöldu
á merkingarstaðnum í Hríseyjar
fram eftir öllu hausti, var ákveðið að
aflétta friðuninni og halda ekki áfram
með þessar rannsóknir að svo stöddu,
en ekki fékkst sá samanburður sem
sóst var eftir á afföllum rjúpna á frið-
uðu og ófriðuðu svæði. Haustið 1999
var gripið til þess að friða rjúpuna á
730 ferkílómetra stóru landsvæði í ná-
grenni Reykjavíkur og Mosfellsbæjar
vegna ofveiði út veiðitímabilið 2001.
!
!
!
! !
Rjúpnastofnar
víða í lágmarki
RÁÐNIR hafa verið yfirlæknar lyf-
lækninga krabbameina og geisla-
meðferðardeildar á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi. Sigurður Björns-
son er yfirlæknir lyflækninga og
Þórarinn E. Sveinsson yfirlæknir
geislameðferðardeildar.
Þá hefur yfirstjórn spítalans einn-
ig samþykkt að leita eftir samning-
um við Helga Sigurðsson um að hann
gegni stöðu yfirlæknis við Krabba-
meinsmiðstöðina.
Ráðningar þeirra eru á grundvelli
umsókna þeirra um stöðurnar, um-
fjöllunar í stöðunefndum landlækn-
isembættisins og læknaráðs LSH,
viðtala og að fenginni umsögn
stjórnarnefndar LSH.
Um stöðu yfirlæknis lyflækninga
krabbameina sóttu auk Sigurðar
þeir Þórarinn E. Sveinsson, Helgi
Sigurðsson, Óskar Þ. Jóhannsson,
Friðbjörn Sigurðsson og Jakob Jó-
hannsson.
Um stöðu yfirlæknis geislameð-
ferðardeildar sóttu auk Þórarins
þeir Jakob Jóhannsson, Helgi Sig-
urðsson og Jón Hrafnkelsson. Um
stöðu yfirlæknis Krabbameins-
miðstöðvarinnar sóttu einning Óskar
Þ. Jóhannsson, Valgarður Egilsson
og Reynir Arngrímsson.
Þórarinn E.
Sveinsson
Sigurður
Björnsson
Tveir nýir
yfirlæknar á
Landspítala