Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA stigi herfararBreta og Bandaríkja-manna gegn hryðjuverka-hópum og stuðnings-mönnum þeirra í
Afganistan lauk á þriðjudagskvöld.
Þá lýsti Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, yf-
ir því að óskoruð yfirráð í lofti yfir
Afganistan hefðu verið tryggð.
Ætla verður að næsta stig átak-
anna, sem felast mun í landhernaði
auk loftárása, taki í senn mun
lengri tíma og verði til muna
áhættusamara.
Þau ummæli Rumsfelds að al-
gjör yfirráð í lofti hefðu náðst
þremur dögum eftir að árásirnar
hófust komu ekki á óvart. Vitað
var að talibana-stjórnin í Afganist-
an réð yfir mjög takmörkuðum
loftvörnum. Þær á að giska 20 sov-
ésku herþotur, sem talibanar voru
taldir hafa tiltækar á hverjum
tíma, hafa ekki sést á lofti svo vit-
að sé. Landfasta eldflaugaskot-
palla höfðu þeir fáa og orð Rums-
felds verða ekki túlkuð á annan
veg en þann að þeir hafi verið
eyðilagðir. Eftirlits-, stjórn- og
samskiptastöðvar voru tæpast
margar enda lá fyrir að allt innra
skipulag slíkra varnar- og öryggis-
mála var öldungis í rúst hjá talib-
ana-stjórninni áður en loft- og
flugskeytárásir Breta og Banda-
ríkjamanna hófust um liðna helgi.
Þær stöðvar hafa greinilega verið
gerðar óvirkar líkt og eldflauga-
pallarnir þar sem Bandaríkjamenn
treysta sér nú til að halda flug-
vélum sínum á lofti allan sólar-
hringinn.
Eftir Persaflóastríðið eru fjöl-
miðlar og sérfræðingar mjög á
varðbergi gagnvart yfirlýsingum
um að tilteknum árangri hafi verið
náð með loftárásum. Í tilfelli Íraka
kom í ljós að digurbarkaleg um-
mæli um að loftvarnarkerfi Sadd-
ams Hússeins forseta og eldflauga-
skotpallar hefðu verið upprætt á
fyrstu dögum stríðsins áttu ekki
við rök að styðjast. Sérfræðingar
sýnast á hinn bóginn sammála í því
mati sínu nú, að vart sé ástæða til
að draga í efa fullyrðingar banda-
rískra ráðamanna um þann
árangur, sem náðst hafi á fyrstu
dögum átakanna. Bent er á að
gervihnattamyndir sýni að stöðvar
talibana hafi orðið fyrir miklu
tjóni. Erfitt sé að falsa slíkar
myndir.
Þá liggur og fyrir að tekist hefur
að valda miklu tjóni á einhverjum
þeirra þjálfunarbúða, sem Osama
bin Laden og al-Qaeda-samtök
hans ráku í landinu fyrir hryðju-
verkamenn. Ganga verður að því
sem vísu að hryðjuverkahóparnir
hafi þegar verið búnir að hafa sig á
brott áður en fyrstu sprengjurnar
féllu. Stöðvarnar hafa hins vegar,
að því er virðist, flestar verið upp-
rættar og nýtast því ekki á ný.
Takmarkaður varnarviðbúnaður
Að þjálfunarbúðum frátöldum
var strax í upphafi ljóst að hern-
aðarskotmörk væru í raun fá og
heldur lítilmótleg í Afganistan. Í
landinu hefur linnulítið geisað stríð
síðustu 20 árin og stjórn talibana
hefur haft takmarkaða fjármuni til
að festa kaup á þróuðum vopna-
kerfum. Uppbygging stjórn- og
fjarskiptakerfa með tilliti til land-
varna hefur verið lítil sem engin.
Vitanlega ræður talibana-stjórnin
enn yfir herstöðvum þótt margar
þeirra séu nú rústir einar en liðs-
afli þeirra samanstendur einkum
af misfjölmennum herflokkum,
sem ætla verður að lúti nú tak-
markaðri miðstýrðri herstjórn.
Raunar er líklegt að þess háttar
miðstjórn hafi ávallt verið af
skornum skammti. Herafli talibana
fellur ekki undir hefðbundnar skil-
greiningar því hann samanstendur
einkum af hinum ýmsum herflokk-
um, sem gengið hafa til liðs við
hreyfinguna á síðustu árum. Hald
manna er að þessir flokkar svíki
nú hugsanlega gerða samninga
telji þeir horfur á að stjórn talib-
ana verði velt.
Að þessu marki má því segja að
ekki komi á óvart að aðeins þrjá
daga hafi þurft til að lama loft-
varnakerfi talibana og gera óvirk
önnur landföst hernaðarskotmörk.
Með sama hætti má telja eðlilegt
að fleiri flugvélum og stýriflaugum
hafi ekki verið beitt á upphafs-
stigum átakanna.
Persaflóastríðið
Nú þegar horft er til næsta stigs
herfararinnar er ef til vill við hæfi
að rifja stuttlega upp hvernig sér-
fróðir mátu að hún myndi þróast
fyrir tíu árum í Persaflóastríðinu
og hver raunin síðan varð.
Þegar bandamenn réðust gegn
hernaðarvél Saddams Íraksforseta
í því skyni að frelsa Kúveit sáu er-
lendir herfræðingar fyrir sér að
skipta mætti herförinni í grófum
dráttum upp í þrennt. Fyrsta stig-
ið – sem var sambærilegt við það,
sem nú er lokið í Afganistan –
myndi felast í stórfelldum flug-
skeyta- og loftárásum á hernaðar-
skotmörk í Írak og Kúveit, einkum
loftvarnar- og samskiptakerfi.
Þetta yrði gert til að tryggja yf-
irburði í lofti.
Annað stigið myndi síðan felast í
stórfelldum sprengjuárásum á her-
lið Íraka, sem í allt taldi um
500.000 manns, til að uppræta úr-
valssveitir Saddams, Lýðveldis-
vörðinn svonefnda, og lama bar-
áttuanda óvinarins.
Þriðja stigið myndi síðan felast í
landhernaði í því augnamiði að
frelsa Kúveit. Ekki er hér rúm til
að fjalla um þær deilur, sem upp
risu eftir herförina um hvort
Bandaríkjamenn hefðu ekki átt að
láta kné fylgja kviði og steypa
stjórn Íraksforseta. Hitt er ljóst að
til slíkra átaka náði umboð Sam-
einuðu þjóðanna ekki.
Þessi þrískipting herfararinnar
gegn Írak reyndist eiga við rök að
styðjast. Í grófum dráttum fór hún
þannig fram að bandamenn náðu
fljótt yfirráðum í lofti. Miklar
sprengjuárásir, sem innvígðir
nefna „teppalagningu“ fóru síðan
fram á stöðvar Lýðveldisvarðarins
og hinn almenna liðsafla. Enn
geymir eyðimörkin í Írak lík tuga
þúsunda hið minnsta, sem fórust í
þeim árásum. Þegar þessum hern-
aðarlegu markmiðum hafði verið
náð var síðan gerð tangarsókn með
innrás í Írak og Kúveit.
Eitt var þó rangt við þessa
greiningu. Fræðimenn sáu fyrir
sér að stigin þrjú myndu lengjast í
tíma þannig að hið þriðja, land-
hernaðurinn, sem margir óttuðust
svo mjög, yrði hið lengsta. Annað
kom á daginn. Herafli Íraka hafði
verið gróflega ofmetinn og á aðeins
þremur dögum tókst að ljúka land-
hernaðinum. Mannfall í liði banda-
manna varð lítið. Það var á hinn
bóginn óskaplegt í röðum Íraka og
hefði getað orðið mun meira ef
ráðamenn í Bandaríkjunum hefðu
ekki gripið inn í og hætt aðgerð-
um.
Tímagreiningin í Persaflóastríð-
inu reyndist því ekki á rökum
reist. Hins vegar má færa sann-
færandi rök fyrir því að hún eigi
við í Afganistan þó að aðstæður
séu þar allar aðrar sem og eðli
herfararinnar.
Breskir og bandarískir sérfræð-
ingar telja að næsta stig átakanna
í Afganistan muni felast í land-
hernaði auk þess sem loftárásum
verði haldið áfram eftir því sem
þurfa þykir. Sá hernaður verður á
hinn bóginn ekki sambærilegur við
þann, sem fram fór í Persaflóa-
stríðinu.
Umfangsminni landhernaður
Á upphafsdögum herfararinnar
gegn hryðjuverkamönnum birtu
sumir fjölmiðlar fullyrðingar um
að Bandaríkjamenn væru að und-
irbúa innrás í Afganistan. Það voru
augljóslega hæpin fræði og nægir
að vísa til reynslu Sovétmanna af
því að reyna að ná landinu á sitt
vald með innrás. Sá landhernaður,
sem framundan er í Afganistan
verður mun umfangsminni og ein-
ungis stórkostleg mistök geta leitt
til þess að viðlíka fjölda hermanna
og vígtóla verði beitt.
Líklegt verður að telja að áfram
verði haldið loftárásum á stöðvar
herliðs talibana þar sem þeim
verður komið við. Slíkar árásir
hafa þegar farið fram og hefur
gömlum B-52 sprengjuþotum verið
beitt í því skyni. Þar ræðir um
„teppalagningu“ líkt og minnst var
á hér að framan; gríðarmiklar og
skipulagðar loftárásir á afmörkuð
svæði lands. Mikið er jafnan rætt
um þau hátæknivopn, sem Banda-
ríkjamenn ráða yfir, en þau eru
víðs fjarri þegar slíkar loftárásir
fara fram. B-52 vélarnar bera
ógrynni af 250 kílógramma falls-
prengjum, sem dreift er skipulega
yfir afmarkað landsvæði. Við þetta
bætast síðan árásir með risa-
sprengjum, svokölluðum „byrgja-
bönum“, fjarstýrðum ferlíkjum,
sem vega rúm tvö tonn og hönnuð
eru til að uppræta neðanjarðar-
byrgi. Þeim má því jafnframt beita
í þeim tilgangi að vinna á hellum
og hvelfingum, sem vitað er að
hryðjuverkamenn bin Ladens nota
sem skjól í Afganistan. Þessum
vopnum var fyrst beitt aðfaranótt
fimmtudags ásamt svonefndum
„klasasprengjum“, sem dreift er
yfir sveitir óvinarins.
Þessar loftárásir hafa því eink-
um tvíþættan tilgang. Annars veg-
ar þann að brjóta á bak aftur mót-
stöðuafl hersveita talibana og hins
vegar að uppræta þær stöðvar,
Landhernaður un
Fyrsta stigi herfararinnar gegn hryðju-
verkahópum og stuðningsmönnum þeirra í
Afganistan er lokið. Ásgeir Sverrisson veltir
fyrir sér næsta stigi átakanna og þeirri
hugsun, sem þar býr að baki m.a. með tilliti
til reynslunnar úr Persaflóastríðinu fyrir
tíu árum.
234/5678,693:43*,;#79239
!" #
!"$%
&
' (
)
! *%" +
,- .
/% , ' .
0 *%$ 1$% 2 1$%* 3'
( $"-343'
"#$%& '
( )*((+
!
"
"
#
$
%
&
!
,
- +
!$0*!
"" !0$1 $"
3'
!%5
'
1% ,
!.
- /!0 / & 102
3!
(
4 & 3 4!
5!
32
0
33
3!
5