Morgunblaðið - 14.10.2001, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 13
MEIRI árvekni þarf hjá verslunar-
eigendum og starfsmönnum þeirra
en verið hefur þegar kemur að við-
töku kreditkorta.
Vaxandi svikatíðni kreditkort-
anotenda vekur áhyggjur hér á landi
sem og erlendis og nú hafa starfs-
menn fyrirtækisins Europay Ísland
ákveðið að gera sérstakar ráðstafan-
ir til að upplýsa starfsmenn þeirra
verslana sem eru í sérstökum
áhættuhópi gagnvart kreditkorta-
svindlurum hvernig best sé að bera
sig að.
Sigrún Lára Shanko hjá áhættu-
stjórn Europay segir að ef ekki verði
reynt að sporna við vaxandi kred-
itkortasvindli stefni í óefni.
Hún segir að bæði innlendum og
erlendum svikamálum hafi fjölgað
og þá segir hún að innlendu svika-
málin hafi jafnframt breyst úr því að
svindlarar séu að svíkja út vörur í að
verið sé að svíkja út peninga. Þetta
sé nýtt munstur sem fyrirtæki verði
að hafa í huga.
Innt eftir tölulegum upplýsingum
kvaðst hún ekki hafa þær á reiðum
höndum að svo stöddu en gat þess þó
að talið væri að 0,002% af fjár-
streymi Europay á Íslandi töpuðust
vegna svika.
Hún segir mikla kortanotkun hér
á landi, hún sjáist kannski ekki best í
prósentutölum heldur finni þau það
best á fjölda mála sem berast til
þeirra.
„Við höfum nú ákveðið að heim-
sækja þau fyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu sem eru í áhættuhópi en það
eru hátækniverslanir, fataverslanir
með merkjavörur og úra- og skart-
gripaverslanir,“ segir Sigrún Lára
og bætir við að verið sé að vinna að
undirbúningi hjá fyrirtækinu.
„Þarna verður farið yfir öryggis-
þætti og rætt um atriði sem geta
komið upp og hvað fólki beri þá að
hafa í huga. Mín skilaboð til starfs-
manna verslana eru að þeir sýni
meiri varkárni og séu óhræddir við,
ef þeim finnst eitthvað athugavert,
að biðja viðskiptavini um að skrifa
nafnið aftur eða jafnvel biðja við-
komandi að sýna skilríki.
Þá er hægt að hringja í Europay
allan sólarhringinn og fá staðfest
hvort um réttan korthafa sé að ræða.
Því miður hefur myndin ekki svo
mikið að segja, þetta er ekki alþjóð-
legur staðall, hvert land fyrir sig
ræður hvort það hefur mynd á kort-
unum eður ei,“ segir hún.
Annað skref í að mæta vaxandi
kortasvindli og fölsun var einnig tek-
ið hjá fyrirtækinu í vor þegar það
hélt námskeið fyrir lögregluna og
segir Sigrún Lára það hafa verið
gert til að lögreglan væri betur í
stakk búin til að taka á þessum
vanda. Hún segir námskeiðið hafa
styrkt tengsl lögreglu og greiðslu-
kortaiðnaðar. „Meðhöndlun þessara
mála er komin í fastan farveg, sem
vantaði áður,“ segir hún. Innt eftir
því hvort fyrirtækið hafi oft þurft að
kæra kortasvindl segir hún svo ekki
vera. Í fyrsta sinn í febrúar síðast-
liðnum hafi t.d. verið kært sviksam-
legt athæfi erlends aðila hér á landi.
„Við höfum þó ákveðið að taka
fastar á þessum málum. Það verður
því meira um kærur þegar kemur að
stolnum og fölsuðum kortum en ver-
ið hefur. Það hefur því miður sýnt sig
að það þarf,“ segir hún.
Tekið verður
harðar á kredit-
kortasvikum