Morgunblaðið - 12.02.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
www.golfactivity.co.uk
sími 0044 131 343 1545 • ecescott@aol.com
Vorgolf í Skotlandi
Þriggja daga golfpakki -
innifaldir 2 hringir á
Turnberry - frá kr. 52.550
Kynningarfundur
um gönguferðir erlendis
Sími 585 4000
verður haldinn sunnudaginn 13. febrúar
frá kl. 14.00-17.00 í Tjarnarsal Ráðhússins
Myndasýning og ferðalýsingar:
Frá kl. 14.00-15.30 Slóvakía í „hefðbundnum“ og „léttum“ takti
Dolomitafjöll og Toscana í „hefðbundnum“
og „léttum“ takti sælkerans
Frá kl. 15.30-17.00 Mallorca í „hefðbundnum“, „blómstrandi“
og „spænskum“ takti
Pyreneafjöll í „hefðbundnum“ takti
Krít í „hefðbundnum“ og „léttum“ takti
Thüringen í „léttum“ takti
Hvar varstu í Japan og hvað gerð-
uð þið?
„Við vorum með aðsetur í Tókýó,
en fórum líka til Kyoto, Nara,
Osaka og Hiroshima. Borgirnar
Kyoto og Nara voru ekki sprengd-
ar í loft upp í árásum Bandaríkja-
manna árið 1945 og fyrir vikið er
þar að finna öll helstu fornu must-
erin og helgidómana, sem við skoð-
uðum og eru ótrúlega fallegar
byggingar. Við fórum líka í Þingið
og hittum þar þingmenn og fengum
að spyrja spurninga. Einnig fórum
við á fundi hjá Evrópudeild utan-
ríkisráðuneytis Japans.“
Hvað fannst þér mest ólíkt því
sem þú átt að venjast á Vest-
urlöndum?
„Menningin öll er mjög ólík því
sem við þekkjum og mikið um
hneigingar sem eru mis djúpar eft-
ir tilefnum og virðingu fólks. Mesta
virðingin felst í níutíu gráðu hneig-
ingu. Ég fann líka sterkt fyrir því
hversu mikið karlaveldi er í Japan.
Þarna er talað á ólíkan hátt til yf-
irmanna og undirmanna, karla og
kvenna. En það kom mér líka á
óvart hversu mikla hlýju fólk sýndi,
því ég hafði heyrt að það væri ein-
mitt á hinn veginn.“
Hvað fannst þér eftirminnileg-
ast í Japan?
„Það sem stendur upp úr hjá
mér er ferðin til Hiroshima þar
sem við skoðuðum minningasafn
um þann sorgarviðburð þegar at-
ómsprengjunni var varpað þar. Það
snerti mig mjög mikið og við vorum
öll í hálfgerðu sjokki þegar við
komum þaðan út. Fólkið í Hiros-
hima er töluvert öðruvísi en annað
fólk í Japan, borgin er orðin eins og
persónugervingur fyrir frið. Allir
litlu krakkarnir settu til dæmis upp
friðarmerki með puttunum ef við
ætluðum að taka af þeim myndir.“
Ætlarðu aftur til Japan?
„Já, mig langar mikið til að
kynnast Japan betur því menningin
þar er mjög áhugaverð. Súmó-
menningin er til dæmis mjög sér-
stök og við fengum að fara á æf-
ingu hjá Súmóglímuköppum. Í
Japan er fallegur arkitektúr, fólkið
þar er líka mjög áhugavert og svo
er landið fallegt.“
Fjóla María er ánægð með að
hafa tekið þátt í ritgerðarsam-
keppninni sem leiddi hana til Japan
og hún hvetur ungt fólk eindregið
til að grípa þau tækifæri sem gef-
ast til að fara á framandi slóðir.
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?|Japan
Hneigingar
eftir tilefnum
Fjóla María Ágústsdóttir tók þátt í ritgerðarsam-
keppni á vegum sendiráðs Íslands í Japan og bar
sigur úr býtum. Í kjölfarið bauð utanríkisráðu-
neytið í Tókýó henni til Japans í tvær vikur ásamt
29 öðrum Evrópubúum.
Fjóla María í kímonó á
japanskri grund.
Hof í Kyoto sem Fjóla María skoðaði.
Í Japan er fallegur
arkitektúr, fólkið
þar er líka mjög
áhugavert og svo er
landið fallegt
Kynningin fer fram bæði á Akureyri og
í Reykjavík. Hún hefst 17. febrúar með
fyrirlestri og sýningu í Mennta-
skólanum á Akureyri. Þá um kvöld-
iðverður frá 20-22 haldinn fyrirlestur í
bókasafninu á Akureyri og boðið upp á
léttar veitingar.
Kvöldið eftir verður reiddur fram fimm
rétta slóvenskur kvöldverður á veit-
ingahúsinu Friðriki V á Akureyri. Hann
verður matreiddur af Jernej Podpec-
an, þekktum slóvenskum kokki, sem
meðal annars hefur eldað fyrir forseta
landsins, en hann kemur sérstaklega
hingað til lands til að bjóða upp á slóv-
enskan mat á kynningunni.
Laugardaginn 19. febrúar verður Slóv-
enía kynnt í Perlunni í Reykjavík og
kvöldið eftir, 20. febrúar, verður slóv-
enskt kvöld í veitingahúsinu Kaffi
Reykjavík. Þar verður einnig boðið upp
á slóvenskan kvöldverð og margmiðl-
unarsýningu auk slóvenskrar tónlistar.
Kynningunni lýkur með umfjöllun um
fjallendi Slóveníu hjá Ferðafélagi Ís-
lands í Mörkinni 6 í Reykjavík mánu-
dagskvöldið 21. febrúar næstkomandi.
Á þeimstöðum þar sem kynningar fara
fram verður hægt að nálgast kynning-
arefni um landið frá Ferðamálaráði
Slóveníu og upplýsingar um ferðir til
Slóveníu.
Kynning á Slóveníu í
Reykjavík og á Akureyri
Slóvenía er aftur að verða vinsæll
áfangastaður fyrir íslenska ferðalanga.
Ferðamálaráð Slóveníu hefur ákveðið
að halda kynningu á Slóveníu sem
hefst í næstu viku í samvinnu við
Ferðaskrifstofuna Nonna á Akureyri
og fleiri. Meðal annars verður boðið
upp á myndasýningar og slóvenskan
mat og vín við ljúfa tóna sem slóv-
enskur harmónikkuleikari seiðir fram.
Félag húseigenda
áSpáni og Hertz
Hertz á Íslandi hefur nú gert samning
við Félag húseigenda á Spáni, um sér-
stakt tilboðsverð til félagsmanna og
gesta þeirra. Tilboð þetta gildir bæði
við bókun á bílum á Spáni og einnig við
bókanir um allan heim, þar á meðal á
Íslandi. Það eina sem þarf að gera er
að gefa upp við bókun að viðkomandi
sé félagi í FHS, eða á hans vegum. Í
fréttatilkynningu frá Hertz kemur
fram að innifalið í þessum nýja samn-
ingi séu 500 vildarpunktar fyrir hverja
leigu innanlands sem utan, hagstæð
kjör á bílaleigubílum á Spáni og um all-
an heim, þar á meðal á Íslandi. Bíllinn
er bókaður og greiðsla ávallt tekin á
Íslandi og þjónustuaðilinn er á Íslandi.
Hertz er ein stærsta bílaleiga í heim-
inum með ca. 7.000 útleigustaði í
meira en 150 löndum.
Afmælisferð til Grikklands
Grikklandsvinafélagið Hellas á tuttugu
ára afmæli og hyggst halda upp á það
með afmælisferð um grískar slóðir.
Ferðast verður um Grikkland með
áherslu á Aþenu hina nýju og á eyjuna
Íþöku, heimabyggð Ódiseifs hins sag-
naglaða sægarpa. Seinni hluti ferð-
arinnar verður um grískar slóðir í
Egyptalandi, aðallega Alexandríu.
Kynningarfundur verður haldinn í
Kornhlöðunni í Bankastræti í dag,
laugardaginn 12. febrúar, klukkan 14.
Hægt er að bóka bílaleigubíl í
síma 50 50 600 eða með því
að senda tölvupóst til hertz-
erlendis@hertz.is og muna að
að gefa upp félagsaðild að FHS.
Frekari upplýsingar um kynn-
ingu á Slóveníu er hægt að
nálgast hjá Ferðaskriftofu
Nonna á Akureyri www.-
nonnitravel.is.
Frekari upplýsingar um Slóven-
íu fást á slóðinni
www.slovenia-tourism.si
Fréttasíminn
904 1100