Morgunblaðið - 12.12.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 338. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ENDURKOMA
NÝ ÍSLENSK HÖNNUN HEFUR FÆRT ARM-
BANDSÚRIÐ 50 ÁR AFTUR Í TÍMANN >> 24
12
dagar
til jóla
Í HNOTSKURN
»Annan harmaði ástandið íDarfur-héraði í Súdan og
mannréttindabrotin þar.
»Hann sagði „óraunhæft“að ætla að sumir gætu
haldið áfram að hagnast mjög
á alþjóðavæðingunni á meðan
milljarðar lifðu í fátækt.
»Hann taldi Bandaríkingeta aðstoðað milljónir fá-
tækra með aukinni verslun í
gegnum Doha-viðræðurnar.
Eftir Baldur Arnarson
og Boga Þór Arason
KOFI Annan, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði í kveðjuræðu í Truman-forseta-
safninu í Missouri í gær, að Bandarík-
in mættu ekki fórna helstu hugsjón-
um sínum í baráttunni gegn
hryðjuverkum. Hann hóf ávarp sitt á
léttum nótum, rifjaði upp ferðalag sitt
frá Ghana til Minnesota, þar sem
hann var við nám fyrir nokkrum ára-
tugum, en gerði síðan gagnrýninn
samanburð á utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna fyrr og nú.
Annan lofaði
demókratana og
Bandaríkjaforset-
ana Franklin D.
Roosevelt og
Harry S. Truman
og mikla framsýni
þeirra við stofnun
Sameinuðu þjóð-
anna. Hann sagði
Truman hafa gert
sér grein fyrir því eftir síðari heims-
styrjöldina, að öryggi ríkja yrði aldrei
aftur tryggt á kostnað öryggis ann-
arra. Áhersla Trumans á alþjóðlega
samvinnu hefði komið í ljós í aðdrag-
anda Kóreustríðsins (1950–53), þegar
hann krafðist þess að íhlutun yrði
borin undir SÞ.
Hafa „ómetanlegt tækifæri“
Annan nefndi aldrei George W.
Bush Bandaríkjaforseta á nafn í ræðu
sinni en ljóst mátti vera að gagnrýnin
var ætluð Bush og stjórn hans. Þótti
þetta skína í gegn þegar hann sagði
Bandaríkin hafa verið leiðandi í starfi
alþjóðlegu mannréttindahreyfingar-
innar, forysta sem þau gætu aðeins
haldið með því að vera trú grundvall-
argildum sínum, þ.m.t. baráttuna
gegn hryðjuverkum. Þegar Banda-
ríkin „virtust hafa snúið baki við eigin
hugsjónum og markmiðum“ ylli það
„vinum þeirra erlendis skiljanlega
heilabrotum og áhyggjum“ og bætti
við, að sökum þess hve valdamikil þau
væru, hefðu þau „ómetanlegt tæki-
færi“ til að festa í sessi lýðræðisleg
grundvallargildi sín á heimsvísu.
Undir lok ræðu sinnar hvatti Ann-
an, sem lætur af störfum 31. desem-
ber nk. eftir tíu ára feril sem fram-
kvæmdastjóri, til umbóta á
öryggisráði SÞ, það endurspeglaði
enn heimsmyndina eins og hún leit út
við lok síðari heimsstyrjaldarinnar
1945.
Bandaríkin heiðri hugsjónirnar
Kofi Annan, fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi utanríkisstefnu stjórnar
George W. Bush Bandaríkjaforseta í óvenjulegri kveðjuræðu á Truman-forsetasafninu í Missouri
Kofi Annan
HJÓNIN Anna Marta Ásgeirsdóttir og Ing-
ólfur Arnar Guðmundsson gengu með það í
maganum í nokkur ár að láta gott af sér leiða.
Afraksturinn leit í fyrsta skipti dagsins ljós í
gær þegar ísbjörninn Hringur heimsótti börnin
sem dvelja á Barnaspítala Hringsins.
Anna Marta og Ingólfur segja í samtali við
Morgunblaðið að í upphafi árs 2003, þegar
barnaspítalinn var að taka til starfa í nýju hús-
næði, hafi þau fengið þá hugmynd að sniðugt
gæti verið að spítalinn eignaðist sína eigin „fí-
gúru“ sem byggi á spítalanum og væri þar öll-
um hnútum kunnug.
Á þessum tíma höfðu Anna Marta og Ing-
ólfur þegar safnað í dálítinn sjóð til að leggja í
verkefnið en sáu þó fram á að meira þyrfti til. Í
lok árs 2005 giftu þau sig og ákváðu þá að af-
þakka brúðargjafir. Þau hönnuðu boðskort þar
sem markmið verkefnisins var kynnt ásamt
teikningu af ísbirninum Hringi. Reikningur var
stofnaður í hans nafni og brúðkaupsgestum
boðið að leggja inn á hann í stað þess að gefa
þeim hjónum gjafir.
Hugmyndin mæltist vel fyrir og söfnuðust í
framhaldinu yfir 700 þúsund krónur sem gerði
hjónakornunum kleift að setja verkefnið af stað
af fullum þunga. Nokkur sjóður er enn fyrir
hendi sem nýttur verður til að tryggja áfram-
haldandi heimsóknir bangsans en greiða þarf
leikurum sem gæða Hring lífi fyrir vinnu sína.
Anna Marta og Ingólfur segjast vonast til
þess að almenningur leggi verkefninu lið og að
þetta ævintýri verði öðrum hvatning til að láta
gott af sér leiða.
Á myndinni hittir Hringur hina nýju vini sína
á barnaspítalanum sem sáu svo um að leiða
hann um húsnæðið og kynna hann fyrir gestum.
Morgunblaðið/Ásdís
Brúðargjafir verða að ísbirni
Viltu vera vinur minn? | 6
HÓPUR sérfræðinga
í loftslagsfræðum tel-
ur að sökum þess hve
ísbrynjan á norður-
heimskautinu bráðn-
ar hratt vegna lofts-
lagsbreytinga, muni
norðurpóllinn verða
næsta íslaus árið
2040 og því greiðfært
fyrir siglingar þar í framtíðinni.
Breska dagblaðið Times greindi frá þessu
á vefsíðu sinni í gærkvöldi en þar sagði að
árið 2040 – jafnvel fyrr – muni verða íslaust
haf þar sem póllinn er nú. Hópurinn, sem
naut stuðnings Geimvísindastofnunar
Bandaríkjanna, NASA, telur að ísinn muni
bráðna hægt og bítandi til ársins 2024 þegar
bráðnuninni muni hraða mjög.
Norðurpóll-
inn íslaus
fyrir 2040
Austin. AP. | Blindir bætast innan skamms í
fjölmennan hóp veiðimanna í Texas ef nýtt
frumvarp um veiðiréttindi þeirra verður
að lögum. Felur hið óvenjulega frumvarp í
sér, að blindum veiðimönnum verði heim-
ilt að beita svokallaðri „laser-sjón“ við
veiðarnar, hjálparbúnaði sem þeim sjá-
andi er nú bannað að nota.
Blindum verður engu að síður gert að
hafa með sér fylgdarmann, sem hefur
fulla sjón, á veiðunum. Er honum ætlað að
tilgreina blindum um hversu marga þuml-
unga þeir þurfi að hreyfa skotvopnið til að
hitta bráðina.
Ekki fylgdi sögunni hvort Dick Cheney,
varaforseti Bandaríkjanna, hefði áhuga á
slíku starfi þegar hann hverfur af vett-
vangi stjórnmálanna, en hann skaut sem
kunnugt er veiðifélaga sinn óvart í andlit-
ið og bringuna með haglabyssu við korn-
hænuveiðar í Texas fyrr á árinu.
Blindir fái
skotleyfi
♦♦♦