Morgunblaðið - 12.12.2006, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÁTINN er í Reykja-
vík Bergþór Jóhanns-
son, mosafræðingur,
tæplega 73 ára að aldri.
Bergþór fæddist í Goð-
dal á Ströndum 11. des-
ember árið 1933.
Áhugi hans vaknaði
snemma á grasafræði
en 13 ára gamall fékk
hann birta grein eftir
sig í Náttúrufræðingn-
um. Bergþór lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1954 og prófi í for-
spjallsvísindum frá Há-
skóla Íslands 1955. Sama ár hélt
hann utan til náms við Háskólann í
Göttingen, þar sem hann tók fyrri
hluta próf í líffræði. Með áherslu á
mosafræði lauk hann líffræðiprófi
frá Óslóarháskóla árið 1964.
Bergþór var ráðinn til starfa hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands að
námi loknu og vann þar til æviloka,
með áherslu á rannsóknir á íslensk-
um mosum. Hann var í
hópi þeirra náttúru-
fræðinga sem lögðu
grunn að líffræði-
kennslu við Háskóla Ís-
lands árið 1969 og
kenndi þar í eina tvo
áratugi. Fyrir sex ár-
um var hann sæmdur
heiðursdoktorsnafnbót
við skólann fyrir brauð-
ryðjendastarf og rann-
sóknir sínar á mosum.
Bergþór vann að út-
gáfu fyrstu íslensku
mosaflórunnar og með
ferðalögum sínum um
landið var hann mjög fundvís á nýjar
tegundir annarra plantna.
Eftirlifandi eiginkona Bergþórs er
Dóra Jakobsdóttir, grasafræðingur
hjá Grasagarði Reykjavíkur. Þau
eignuðust fjórar dætur; Kolbrúnu,
bókmenntafræðing, Brynhildi,
rekstrarhagfræðing, Ásdísi, kerfis-
fræðing, og Önnu, tölvu- og kerfis-
fræðing.
Bergþór Jóhannsson
Andlát
FORVAL Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs á höfuðborg-
arsvæðinu kostaði samtals
1.202.124 krónur, en þá er ótalin öll
sú gríðarlega sjálfboðavinna sem
félagar lögðu fram, að því er segir í
tilkynningu frá VG.
Frambjóðendur þurftu ekki að
greiða þátttökugjald, en samkvæmt
fréttatilkynningunni er sá háttur
hafður á til þess að fjárhagur fram-
bjóðenda ráði ekki úrslitum um það
hvort fólk komist til áhrifa.
„Til að gefa öllum tækifæri til að
kynna sig var ráðist í útgáfu blaðs
þar sem hver frambjóðandi fékk
eina blaðsíðu til umráða og komið
var á framfæri upplýsingum um
forvalið. Hönnun, prentun og dreif-
ing blaðsins var stærsti kostn-
aðarliðurinn í forvalinu auk þess
sem birt var auglýsing í Frétta-
blaðinu og lesnar auglýsingar í Rík-
isútvarpinu,“ samkvæmt tilkynn-
ingu frá VG.
Kostnaður
VG við forval
1,2 milljónir
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
HANN er vinalegur, kátur, snjóhvít-
ur, svolítið klaufskur, loðinn og
mjúkur, pínulítið feiminn en á sama
tíma afar forvitinn um allt og alla í
kringum sig. Við hvern á þessi lýs-
ing? Engan annan en ísbjörninn
Hring sem bættist í gær í hóp sér-
legra vina Barnaspítala Hringsins
sem hafa það að markmiði að gleðja
börnin sem þar dvelja. Hringur
mætti á Leikstofu spítalans þar sem
hann spjallaði við krakkana sem þar
voru og spilaði fyrir þau á hin ýmsu
hljóðfæri sem í stofunni leyndust.
Vakti Hringur að vonum mikla
lukku viðstaddra sem voru afar for-
vitnir um þennan hvíta, loðna og
vinalega björn.
Fengu brúðkaupsgesti til að
styrkja góðgerðarverkefnið
Ísbjörninn Hringur er hugarsmíð
hjónanna Önnu Mörtu Ásgeirs-
dóttur og Ingólfs Arnar Guðmunds-
sonar, sem fengu góða aðstoð frá
Jóni Hámundi teiknara og Guð-
mundi Þór Kárasyni hönnuði við út-
færslu og smíð bjarnarins, auk þess
sem Björgvin Franz Gíslason leikari
aðstoðaði við að móta persónu
Hrings. Aðspurð segjast Anna
Marta og Ingólfur hafa gengið með
þá hugmynd í maganum í nokkur ár
að láta gott af sér leiða. Það hafi hins
vegar ekki verið fyrr en í upphafi árs
2003 þegar Barnaspítali Hringsins
var að taka til starfa í nýju húsnæði
sem þau duttu niður á þá hugmynd
að sniðugt gæti verið fyrir spítalann
að eignast sína eigin fígúru sem
byggi á spítalanum, væri þar öllu
kunnugur, leiðbeint gæti nýjum
krökkum um svæðið, frætt gæti þau
um spítalann, huggað þau og vera
nokkurs konar traustur vinur
þeirra.
Þau Anna Marta og Ingólfur
höfðu á þessum tíma þegar safnað í
svolítinn sjóð til að leggja í verk-
efnið, en sáu fram á að meira þyrfti
til svo að hugmyndin gæti orðið að
veruleika, þó svo að flestir sem að
hönnun og smíði Hrings hafi gefið
vinnu sína. Í því skyni ákváðu þau að
afþakka brúðkaupsgjafir gesta þeg-
ar þau giftu sig í lok árs 2005 og
hönnuðu þess í stað boðskort þar
sem markmið verkefnisins var
kynnt ásamt teikningu af ísbirninum
Hring og stofnuðu reikning í hans
nafni sem gestum var uppálagt að
leggja inn á í stað þess að gefa þeim
hjónum gjafir.
Að sögn Önnu Mörtu mæltist
þessi hugmynd þeirra Ingólfs af-
skaplega vel fyrir og söfnuðust í
framhaldinu yfir 700 þúsund krónur.
Sú fjárhæð gerði þeim kleift að fara
af stað með verkefnið fyrir alvöru og
ráða Mary Robinette Kowal brúðu-
gerðarhönnuð til þess að útfæra
hugmyndina nánar.
Aðspurð segjast Anna Marta og
Ingólfur hafa lagt mikla áherslu á
hönnun og útfærslu búningsins
þannig að Hringur ætti auðvelt með
að eiga samskipti við börn og vera
mjúkur viðkomu þannig að gott væri
að faðma hann, því Hringi er ætlað
að vera vinur barnanna.
Að sögn Ingólfs og Önnu Mörtu
eiga þau enn nokkurn sjóð sem nýta
má til að tryggja heimsóknir Hrings
fram á næsta ár, því greiða þarf leik-
urunum sem gæða Hring lífi fyrir
vinnu sína. Segjast þau vonast til
þess að almenningur leggi verkefn-
inu lið, en reikningur Hrings er 513-
14-606300 og kennitala hans;
160273-3569. „Einnig vonumst við til
þess að þetta ævintýri okkar verði
öðrum kannski fyrirmynd, fólki sem
langar að leggja góðu máli lið, er
með fína hugmynd en hefur kannski
hikað við að stökkva til og fram-
kvæma hana,“ segir Ingólfur.
Langi lesendur til þess að kynna
sér nánar hönnun og smíði Hrings
má finna upplýsingar á: www.mary-
robinettekowal.com/category/polar-
bear.
Viltu vera vinur minn?
Barnaspítali Hringsins
eignaðist í gær nýjan
vin sem hefur það að
hlutverki að gleðja
börnin sem þar dvelja.
Morgunblaðið/Ásdís
Hringur vekur lukku Ísbjörninn Hringur vakti mikla lukku barnanna sem stödd voru í Leikstofunni á Barnaspítala Hringsins í gær. Kristófer leiddi
Hring um rýmið og aðstoðaði hann við að skoða ýmsa skemmtilegu hluti, s.s. litríka búninga, hljóðfæri og gullfisk sem á stofunni býr.
Í HNOTSKURN
»Árið 2003 fengu AnnaMarta Ásgeirsdóttir og
Ingólfur Örn Guðmundsson
hugmyndina að ísbirninum
Hringi, sem verið gæti n.k.
andlit Barnaspítalans.
» Í desember 2005 afþökk-uðu Ingólfur og Anna
Marta brúðkaupsgjafir og
hvöttu brúðkaupsgesti til að
leggja hugmyndinni um Hring
lið fjárhagslega og söfnuðust
yfir 700 þúsund kr.
» Í gær fór Hringur í fyrstuheimsóknina á Barnaspít-
alann við mikinn fögnuð við-
staddra.
Morgunblaðið/ÞÖK
Frumkvöðlarnir Anna Marta og Ingólfur gáfu Barnaspítala Hringsins
bangsa sem mun skemmta börnum og gestum spítalans næstu ár.