Morgunblaðið - 12.12.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
gær. Úrvalsvísitalan var skráð
6.424 stig við lokun viðskipta og
hækkaði um 0,3% yfir daginn. Velta
á hlutabréfamarkaði var 2.649 millj-
ón krónur og 6.847 milljón krónur á
skuldabréfamarkaði.
Hlutabréf 365 hf. hækkuðu mest í
viðskiptum gærdagsins eða um
1,8% og bréf Landsbankans hækk-
uðu um 1,13%. Mest lækkuðu bréf
Vinnslustöðvarinnar eða um 2,17%.
Hlutabréf hækka
● ATHUGUN sam-
keppniseftirlits-
ins hefur leitt í
ljós að ekki sé
ástæða til að að-
hafast vegna
kaupa Íslands-
pósts á Sam-
skiptum. Er í
ákvörðuninni vís-
að til þess að ekki virðist vera skör-
un á starfsemi félaganna sem hefur
í för með sér röskun á samkeppni.
Þá hafi ekki komið fram önnur atriði
sem bendi til þess að samruninn
geti raskað samkeppni. Í ljósi þessa
er það mat eftirlitsins að ekki sé
ástæða til að aðhafast frekar vegna
umrædds samruna á grundvelli 17.
gr. samkeppnislaga.
Segir kaup Íslands-
pósts á Samskiptum
ekki raska samkeppni
● VERÐBÓLGAN í Danmörku mæld-
ist 1,7% í nóvember, sem er 0,2 pró-
sentustiga hækkun frá fyrra mánuði.
Í frétt á fréttavef danska viðskipta-
blaðsins Børsen segir að þessi
aukning sé í samræmi við spár sér-
fræðinga.
Megin skýringin á aukinni verð-
bólgu í Danmörku er annars vegar
hækkun á verði á matvælum, sem
hafa hækkað í verði um 4,8% á einu
ári, og hins vegar hækkun á skóla-
gjöldum í einkaskólum og fram-
haldsskólum.
Segir í frétt Børsen að skólagjöldin
hafi hækkað um 5% síðastliðna tólf
mánuði. Verð á fatnaði hafi hins veg-
ar lækkað um 1,7% síðastliðið ár.
Hefur blaðið eftir Jes Asmussen,
aðalhagfræðingi Handelsbanken, að
lítil hætta sé á því að verðbólgan fari
úr böndunum á næstunni.
Aukin verðbólga
í Danmörku
mælingunni. Er KB banki sá við-
skiptabanki þar sem ánægja við-
skiptavina hefur minnkað mest frá
árinu 1999 en þá mældist bankinn
með 77,6 stig. Landsbankinn er með
ánægðustu viðskiptavini af bönkun-
um þremur með einkunnina 71,4 sem
er sami stigafjöldi og í fyrra. Þá kem-
ur Glitnir með 70,5 stig.
Í heild fær íslenski bankamarkað-
urinn 70,5 stig og hefur ánægja við-
skiptavina bankanna aldrei verið
minni. Fyrstu þrjú árin voru íslensku
bankarnir með ánægðustu viðskipta-
vinina en jafnt og þétt hefur dregið
úr ánægjunni og eru bankarnir nú
með næstlægstu mælinguna.
Ánægja með íslensku
bankana aldrei minni
Mest ánægjan hjá SPRON og minnst hjá KB banka
#$% &'()
*+$,
-
.
/
,
01 $,
" #$ %$ &'((()*++,
ÁNÆGJA viðskiptavina íslensku
bankanna minnkaði þriðja árið í röð
og hefur hún aldrei verið minni. Þeg-
ar mælingar hófust árið 1999 voru Ís-
lendingar ánægðastir allra Norður-
landabúa með bankana. Ísland hefur
hins vegar fallið úr fyrsta sætinu í
næstneðsta sæti á eftir Noregi en
mælingin nær einnig til Eystrasalts-
ríkjanna þriggja.
Þetta eru niðurstöður mælinga á
bankamarkaði sem Capacent Gallup
framkvæmdi og gengur undir heitinu
Íslenska ánægjuvogin. Í könnuninni
var tekið símaviðtal við 250 við-
skiptavini allra bankanna og endur-
speglar mælingin ánægju almenn-
ings en nær ekki til fyrirtækja og
stofnana.
SPRON efst en KB banki neðst
Viðskiptavinir SPRON eru nú
ánægðustu viðskiptavinirnir og tekur
SPRON við fyrsta sætinu af Spari-
sjóðnum sem hingað til hefur trónað
á toppi listans. Sparisjóðirnir hlutu
nú 73,7 stig af 100 mögulegum og
SPRON 75,1 stig, en SPRON er jafn-
framt eina fyrirtækið þar sem
ánægja viðskiptavinanna hefur auk-
ist milli ára.
KB banki er nú með síst ánægðu
viðskiptavinina og fær 65,8 stig í
Í HNOTSKURN
» Ánægjuvog íslensku bank-anna mældist í ár 70,5 stig.
Þegar mælingar hófust árið
1999 hlutu bankarnir hins
vegar einkunnina 76,7 og hef-
ur hún lækkað jafnt og þétt
síðan þá .
» SPRON er nú með ánægð-ustu viðskiptavinina með
einkunnina 75,1 stig, en við-
skiptavinir KB banka eru síst
ánægðir og gefa bankanum
65,8 stig í einkunn
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
LANDSBANKI Íslands hefur gefið
út skuldabréf í Kanada fyrir 300
milljónir kanadadollara, jafnvirði um
18 milljarða íslenskra króna. Bréfin
eru með föstum vöxtum og eru á
gjalddaga í janúar árið 2010. Ávöxt-
unarkrafa bréfanna er 4,40% og mið-
ast við álag á kanadísk ríkisskulda-
bréf.
Í tilkynningu frá Landsbankanum
segir að þetta sé fyrsta skuldabréfa-
útgáfa bankans til kanadískra fjár-
festa. Lántakan fylgi í kjölfar fjár-
festakynninga Landsbankans í
Kanada og sé hún gefin út sem hluti
af reglulegri fjármögnun bankans.
„Skuldabréfaútgáfan er hluti af
stefnu bankans um að fjölga stoðum í
erlendri fjármögnun og bæta land-
fræðilega dreifingu samhliða því að
ná til breiðari hóps erlendra fjár-
festa. Lántakan staðfestir jafnframt
gott aðgengi Landsbankans að fjár-
málamörkuðum og ber vott um það
traust sem kanadískir fjárfestar
hafa á bankanum og langtímastefnu
hans,“ segir í tilkynningunni.
Yfirumsjón með lántöku Lands-
bankans í Kanada var í höndum
bankans HSBC en aðrir umsjónar-
aðilar voru bankinn CIBC og Nat-
ional Bank of Canada.
Um 85% lokið í ágústmánuði
síðastliðnum
Í ágústmánuði síðastliðnum var
greint frá því að Landsbankinn hefði
gefið út skuldabréf í Bandaríkjunum
fyrir 2.250 milljónir Bandaríkjadoll-
ara, jafnvirði um 155 milljarða ís-
lenskra króna. Þá kom fram að bank-
inn hefði þar með fjármagnað um
85% af meðallöngum og löngum lán-
tökum sem koma til gjalddaga á
næsta ári.
Landsbankinn gefur út
skuldabréf í Kanada
„Niðurstaðan
kemur á óvart. Í
ljósi þess að sam-
keppnin á þess-
um markaði hef-
ur aldrei verið
meiri er erfitt að
átta sig á því
hvað veldur,“
segir Guðjón
Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja, inntur eftir
viðbrögðum við niðurstöðum
ánægjuvogarinnar.
„Mikil samkeppni á undan-
förnum árum hefur leitt til stórauk-
innar þjónustu og fjölda þjónustu-
liða. Það er því skrýtið að Ísland sé
að dragast aftur úr öðrum ríkjum
hvað þetta varðar,“ segir Guðjón.
Aukin þjónusta og samkeppni
„Það er ástæða til að taka fram að
nýlegar rannsóknir hafa verið að
undirstrika mikilvægi fjármála-
geirans fyrir íslenskan þjóðar-
búskap. T.d. sýnir nýleg rannsókn
Háskóla Reykjavíkur að beinar
skatttekjur ríkisins af fjármála-
starfsemi eru 15 milljarðar króna.
Það er erfitt að sjá hvaða samhengi
er á milli þegar þjónustan og sam-
keppnin eru að aukast en ánægjan
að minnka. Kannski er hætta á því
að álitsgjafar blandi saman þjón-
ustustigi banka og sparisjóða og
háu vaxtastigi, en grunnvextir eru
ákvarðaðir af Seðlabankanum,“
segir Guðjón Rúnarsson að end-
ingu.
Segir niður-
stöðuna
koma á óvart
Guðjón Rúnarsson
''
*++,
-. /01 0/ 0%
2#!3 "40%
% 20%
# #25 # " 5
#" 3 "40%
6!/ 3 "40%
-3 "40%
3# 7 0%
8%
94%1
(4& 7 0%
- 7 0%
, 0%
,"20" 0%
# :6 $$ %
7
0%
; 0%
2 .34&
9<#0%
3 "40%
=2 23 "40%
>?0 0%
@,A6
B C0%
B C #/ 0%
D #/ 0%
5 &&
6
$# %1 !%
789:&
863 0%
84 0%
;&
2
2
2
2
2
8 :
! 4#
B7" ." E
(4
:
:
:
:
:
:
:
D 4#. +
B8
F#0 # /
! 4#
:
:
:
:
:
:
. #
!
!
>G
H5
32
32
I
I
B9
JA
32
32
I
I
KK @,A#"0
32
2
I
I
@,A(0/%
>
32
32
I
I
=K9A J"LM"
32
32
I
I
VÆGI Kaupþings banka í Úrvalsvísitölu Kaup-
hallar Íslands á fyrstu sex mánuðum næsta árs er
svipað og vægi Glitnis, Landsbankans og
Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka til sam-
ans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöll-
inni. Þar er greint frá vægi þeirra 15 félaga á
Aðallista Kauphallarinnar sem mynda Úrvalsvísi-
töluna (ICEX-15) fyrir tímabilið frá 1. janúar til
30. júní á næsta ári.
Í tilkynningunni segir að af þeim félögum sem
eru skráð á Aðallista Kauphallarinnar séu valin
tólf til fimmtán félög eftir ákveðnum reglum.
Tvisvar á ári sé vísitalan endurskoðuð og hefjast
ný tímabil 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Valið í Úr-
valsvísitöluna byggist á gögnum um viðskipti frá
tímabilinu 1. desember 2005 til 30. nóvember
2006.
Vægi Kaupþings banka í Úrvalsvísitölunni er
34,55% af heildinni. Næst kemur Landsbankinn,
en vægi hans er 14,85%, þá Glitnir 13,29%, Actav-
is 9,31% og Straumur-Burðarás 7,45%. Önnur fé-
lög í Úrvalsvísitölunni vega minna í vísitölunni, en
þau eru, eftir vægi þeirra; Bakkavör, FL Group,
Mosaic Fashions, Össur, Atorka, Alfesca. Eim-
skipafélagið, Marel, Atlantic Petroleum og 365.
Fjármálaþjónusta vegur 71%
Þegar litið er á skiptingu Úrvalsvísitölunnar
eftir atvinnugreinum kemur í ljós að fjármála-
þjónusta stendur fyrir um 71% af vægi vísitöl-
unnar. Til fjármálaþjónustu teljast Kaupþing
banki, Landsbankinn, Glitnir, Straumur-Burðar-
ás fjárfestingabanki og Atorka.
Heilbrigðisgeirinn vegur næst mest atvinnu-
greinanna í Úrvalsvísitölunni, eða um 10,5%.
Undir þá atvinnugrein teljast Actavis og Össur.
Aðrar atvinnugreinar vega minna, en þær eru
nauðsynjavörur, iðnaður, neysluvörur og orku-
vinnsla.
Kaupþing vegur um þriðjung í
Úrvalsvísitölunni í Kauphöllinni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti