Morgunblaðið - 12.12.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 15
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Hafið hæfilegt bil á milli
kerta, almenn viðmiðun
er að hafa a.m.k. 10 cm
bil á milli kerta.
Munið að
slökkva á
kertunum
i
Berlín. AFP. |
Geislavirka efnið
pólon-210 hefur
greinst í fjórum
mönnum í Þýska-
landi eftir að leif-
ar af efninu fund-
ust í íbúð Dímítrís
Kovtúns, rúss-
nesks kaupsýslu-
manns.
Kovtún hitti Alexander Lítv-
ínenko, fyrrverandi njósnara rúss-
nesku leyniþjónustunnar, á hóteli í
London 1. nóvember áður en Lítv-
ínenko lést af völdum pólon-210 sem
talið er að honum hafi verið byrlað
þann dag.
Lögreglan í Hamborg sagði að
fyrrverandi eiginkona Kovtúns, tvö
ung börn hennar og vinur hennar
hefðu sýnt merki um að hafa fengið
geislavirka efnið í líkamann.
Kovtún fór til Hamborgar daginn
áður en hann hitti Lítvínenko í
London.
Talið er að Kovtún sé nú á sjúkra-
húsi í Moskvu.
Fjórir með
pólon-210 í
Hamborg
Dímítrí Kovtún
Tengjast kaupsýslu-
manninum Kovtún
Ipswich, London. AFP, AP. | Óttast er að
raðmorðingi gangi laus í austurhluta
Englands en þrjár vændiskonur hafa
nýverið fundist myrtar í nágrenni
borgarinnar Ipswich. Fjórðu kon-
unnar er saknað og í gærkvöldi
skýrði sjónvarpsstöðin Sky News frá
því, að lögreglan leitaði þeirrar
fimmtu, sem hafi þó haft samband
við vini síðasta sólarhring. Breska
lögreglan hefur gefið út viðvörun og
ráðleggur konum á svæðinu að vera
ekki einar á ferð eftir myrkur.
Konurnar voru allar allsnaktar
þegar þær fundust látnar en lögregl-
an segir að engir augljósir áverkar
hafi verið á líkunum. „Við getum
ekki með formlegum hætti tengt
þetta [fund þriðja líksins og hvarf
fjórðu vændiskonunnar] morðunum
tveimur en staðreyndirnar tala sínu
máli,“ sagði Stewart Gull yfirlög-
regluþjónn, en hann stýrir morð-
rannsókninni. Spurður að því á
sunnudag hvort raðmorðingi gengi
laus svaraði hann: „Já, það er mögu-
legt.“
Konurnar voru allar um eða yfir
tvítugt. Sú fyrsta, Gemma Adams,
hvarf 15. nóvember og fannst lík
hennar 2. desember; lík Taniu Nicol
fannst hins vegar sl. föstudag í vatni
um 3 km frá þeim stað er lík Adams
fannst. Ekkert hafði spurst til Nicol
síðan 30. október. Lík þriðju kon-
unnar fannst síðan á sunnudag ná-
lægt þorpinu Nacton. Haft var eftir
John Quinton lögregluforingja að
morðin væru „afar svipuð“ en það
gefur mönnum tilefni til að ætla að
raðmorðingi – einn eða fleiri í sam-
starfi – fari nú um og ráðist á konur
sem starfa í kynlífsiðnaðinum.
Óttast raðmorð-
ingja í Ipswich
Lík þriggja ungra vændiskvenna hafa
fundist að undanförnu, tveggja saknað
Í HNOTSKURN
»Lík allra kvennanna fund-ust í nágrenni borgarinnar
Ipswich, um 110 km norð-
austur af London.
»Tilkynnt var í gær að ekk-ert hefði spurst til fjórðu
konunnar, Paulu Clennell, síð-
an á laugardag.
ÞESSIR vinalegu apar voru að baða sig í volgri upp-
sprettu í bænum Yamanouchi í Japan þegar ljósmynd-
ara Reuters-fréttastofunnar bar að garði. Þeir virtust
ekkert kippa sér upp við hinn hnýsna gest, sem mynd-
aði þá í bak og fyrir, heldur héldu áfram að snyrta sig
og snurfusa og hafa það gott í vatninu.
Reuters
Baða sig í volgri uppsprettu
Teheran. AFP. | Margir þekktir Vest-
urlandabúar, sem afneitað hafa hel-
förinni, voru meðal þátttakenda á
ráðstefnu íranskra stjórnvalda um
helförina sem haldin var í Teheran í
gær. Íranar segja ráðstefnuna að-
eins til þess hugsaða að skapa vett-
vang fyrir skoðanaskipti en ráða-
menn á Vesturlöndum hafa fordæmt
frumkvæði þeirra og segja forkast-
anlegt að ýja að því að drápin á sex
milljónum gyðinga í fangabúðum
þýskra nasista í síðari heimsstyrj-
öldinni hafi aldrei átt sér stað.
Manouchehr Mottaki, utanríkis-
ráðherra Írans, setti ráðstefnuna og
sagði um vísindaráðstefnu að ræða
þar sem menn myndu reyna að svara
þeim spurningum sem Mahmoud
Ahmadinejad, forseti Írans, hefði
spurt um helförina. Ekki væri ætl-
unin að sanna eða afsanna helförina,
aðeins veita fræðimönnum tækifæri
til að skiptast á skoðunum.
Meðal þátttakenda á ráðstefnunni
voru Frakkinn Robert Faurisson og
Ástralinn Fredrick Töben, sem
fæddist í Þýskalandi, en Töben hefur
sagt að það sé „helber lygi“ að nas-
istar hafi myrt gyðinga í gasklefum.
Bandaríkjamaðurinn David Duke,
sem áður var í forsvari Ku Klux
Klan-samtakanna, sat einnig ráð-
stefnuna en hann sagði það hneyksli
að í Evrópu skyldi vera hægt að
senda menn í fangelsi fyrir að lýsa
skoðun á helförinni. „Ég tel Ahmad-
inejad afar hugrakkan mann fyrir
það að tala um þessi mál,“ sagði
hann.
Meðal gesta í gær voru einnig
fulltrúar samtaka rétttrúnaðar-gyð-
inga sem hafna tilverurétti Ísraels.
Helfararráðstefna í Íran
Írönsk stjórnvöld segja markmiðið ekki að sanna eða
afsanna að nasistar hafi drepið sex milljónir gyðinga
Reuters
Fulltrúi gyðinga Dovid Weiss,
bandarískur rabbíni, var einn gesta.