Morgunblaðið - 12.12.2006, Síða 21
|þriðjudagur|12. 12. 2006| mbl.is
Lítil kerti sem ekki eruljós – heldur fyrst ogfremst gleðigjafar eruómissandi hluti jólaund-
irbúnings Aðalbjargar Erlends-
dóttur, textílhönnuðar. Kertin
fengu synir hennar úr jóladagatöl-
um ömmu sinnar í gegnum tíðina.
„Tengdamamma saumaði jóla-
dagatöl handa barnabörnunum
jafnóðum og þau fæddust,“ út-
skýrir Aðalbjörg. „Síðustu helgina
í nóvember kemur öll fjölskyldan
saman hjá henni og pakkar inn
sælgæti og smádóti í litla pakka til
að hengja á dagatalið. Þann 24.
desember var hefð fyrir því að
börnin fengju lítil kerti úr dagatal-
inu sem var haldið til haga.“
Hún segir kertin ósköp einföld
„og svo sem ekki merkileg. Ein-
hvern vegin æxlaðist það þó þann-
ig að við kveiktum aldrei á þeim
heldur röðuðum þeim upp í eld-
húsgluggana. Þótt nú sé yfir 20 ár
síðan fyrstu kertin komu til sög-
unnar á ég enn stóran hluta þeirra
og raða þeim alltaf út í glugga í
byrjun aðventunnar. Helming-
urinn snýr inn til okkar en hinn
helminginn læt ég snúa út að
gangstétt til að gleðja þá sem
ganga hjá.“
Henti bernskujólunum
Þótt fjölskyldufólk á heimili Að-
albjargar sé búið að slíta barns-
skónum þykja kertin góðu tilheyra
aðventunni og jóla-
haldinu. „Ég held að
þetta sé eitt af því fáa á
jólunum sem er svolítið
ómissandi. Við erum ekki mikið
hefðafólk en þetta verður hrein-
lega að vera. Um daginn var mikið
hlegið að mágkonu minni sem varð
á að henda sínum kertum enda
voru þau orðin gul og gömul og
henni fannst ekki mikið skraut að
þeim. Nú er henni legið á hálsi að
hafa bókstaflega hent bernskujól-
um barnanna,“ segir hún hlæjandi.
Kertin eru ekki eina jólaskraut-
ið í eldhúsi Aðalbjargar. „Ég set
alltaf upp gamalt gervijólatré sem
ég skreyti með pínulitlum eldhús-
áhöldum. Þar undir fara „pakkar –
út“. Núna er ég til
að mynda búin að
kaupa jólagjafir
sem eiga að fara
út úr húsinu og
eru komnar þarna
undir. Þetta jólatré
er því eiginlega eins og
„outbox“ á skrifstofu.“
Synirnir tveir eru
nú orðnir 18 og 23 ára
en fjarri því að vera vaxnir
upp úr jóladagatölunum
sínum. „Um daginn pökk-
uðu þeir samviskusamlega
sjálfir inn 24 pökkum fyr-
ir dagatölin sín,“ segir
Aðalbjörg kímin. „Þannig
að þau virðast enn vera í
fullu gildi.“
ben@mbl.is
Yfir hundrað ólíkir englar prýða nú veggi á Kaffi-húsinu Mokka á Skólavörðustíg og munu gleðjagesti fram til 16. janúar. Höfundar englanna eru
nemendur í Landakotsskóla frá fimm ára bekk og upp í
áttunda bekk. Englasýningin kom þannig til að börn eig-
enda kaffihússins voru í Landakotsskóla á sínum tíma og
nú eru barnabörnin þeirra þar og þau langaði að gera
eitthvað skemmtilegt í tilefni af því að skólinn á hundrað
og tíu ára afmæli á þessu ári. Þau buðu því sýningar-
veggina á Mokka undir verk nemenda.
Krakkarnir gerðu englana í myndmenntartímum og
þeir eru allir búnir til úr pappamassa sem þau sáu sjálf
um að búa til með því að rífa niður pappa, bleyta hann og
hakka. Þessi listsköpun er því líka endurvinnsla.
Litlu myndlistarmennirnir eiga líka boð á Mokka um
að koma þangað í köku og kakó og skoða sýninguna.
Tveir bekkir fara þangað í senn með kennurum sínum
og það gerir skólastarfið á aðventunni enn skemmti-
legra.Vængjahaf Mjög misjafnt er hversu vængir englanna eru stórir.
Englar á
Mokka
Morgunblaðið/Golli
Glaður engill Þeir eru sumir litríkir englar
krakkanna og sérlega glaðlegir.
daglegtlíf
Dagleg neysla ávaxta, græn-
metis og súkkulaðis minnkar
hættuna á fósturláti hjá of
grönnum konum. » 23
heilsa
Fjöldaframleiðsla á úrum höfðar
ekki til þremenninganna sem
standa að fyrirtækinu JS Watch
Company Reykjavík. » 24
hönnun
Minna salt í mat og aukin
ávaxtaneysla minnkar hættuna
á hjartaáfalli og fleiri sjúkdóm-
um. » 22
rannsókn
Gríma Björg Thorarensen er
mikil hundakona enda nýkrýnd-
ur Íslandsmeistari í hundafimi
með litla hunda. » 23
tómstundir
Eldhús Sameinuðu þjóðanna og
Hyde Park matreiðsluskólinn
voru meðal viðkomustaða nema
af matreiðslubraut MK. » 22
matur
Gleðigjafar Kertafígúrurnar eru ómissandi hluti jólanna, að mati Aðalbjargar Erlendsdóttur
textílhönnuðar. Kertin hafa synir hennar fengið úr jóladagatölum ömmu sinnar í gegnum tíðina.
Morgunblaðið/Kristinn
Kerti sem
gleðja í glugga
Eldhúshefðin Gamla gervijólatréð er skreytt með pínulitlum eldhús-
áhöldum, en undir tréð fara pakkar sem eiga að fara út af heimilinu.