Morgunblaðið - 12.12.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 49
flugstrákar
eee
V.J.V. Topp5.is
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
THE HOLIDAY kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 8 - 10 LEYFÐ DIGITAL
FLUSHED AWAY
SÝND BÆÐI MEÐ
ÍSKLENSKU OG
ENSKU TALI
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
eeee
S.V. MBL.
HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI
THE GRUDGE 2
BÖLVUNIN 2
ÞORIR ÞÚ
AFTUR?
Martin ShortTim Allen
JÓLASVEININN 3
SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
DEAD OR ALIVE kl. 4 - 6 - 8 - 9 - 10:10 B.i.12 ára
DEAD OR ALIVE VIP kl. 5 - 8 - 10:10
SAW 3 kl. 8 - 10:20 B.i.16 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
THE GRUDGE 2 kl. 5:50 - 10:30 B.i.16 ára
FLY BOYS kl. 8 B.I. 12 ára
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
eeee
Kvikmyndir.is
Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers
leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS.
09.12.2006
2 3 4 5 11
2 9 7 3 1
3 1 0 8 1
31
06.12.2006
1 10 11 20 41 45
1017 18
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn vindur sér beint að efninu,
sem gerir hann að hinni fullkomnu
hindrun fyrir þá sem eiga til að missa
þráðinn. Óþolinmæði þín kemur sér
raunar vel um þessar mundir. Þú
truflar af ákveðni og heldur þínu
striki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nýir vinir sem þú kynnist eru af því
tagi að hægt er að umgangast þá við
hvaða aðstæður sem er. Gott fólk eins
og það er ekki á hverju strái - raun-
verulegt ríkidæmi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Líttu á áhyggjurnar eins og fyrirbæri
sem fór úr tísku í gær. Þú tekur
ákvarðanir, beislar efann og heldur
fram veginn, ekkert hverflyndi. Þegar
þú ert kominn með fast land undir
fætur, skaltu halda þínu striki.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbanum er yfirleitt sama hvort
hann er leiðtoginn í hópnum eða ekki
- hæfasta manneskjan á að halda í
taumana.
En þú átt eftir að sjá einhverjum mis-
takast í dag og getur ekki stillt þig
um að hjálpa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljóninu gengur einstaklega vel í dag.
Núna loksins finnst því sem að eitt-
hvað sé að gerast.
Fjölskyldulífið verður flókið í kvöld,
en ljóninu tekst að sigla milli skers og
báru.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sumir líta á ástina sem leik, aðrir sjá
hana fyrir sér sem dans. Í augum
meyjunnar hefur hún verið eins og
jafna sem þarf að reikna. Ef fyrsta
svarið er rangt bíða þúsund aðrar
lausnir á listanum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er engin ástæða til þess að vera
afbrýðisamur út í vini sem fara í
ferðalög og kanna nýja heimshluta.
Farðu á netið og bókaðu. Það er ekki
jafn dýrt og þú heldur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er afar viðkvæmur en
gæti haft gott af því að herða sig eilít-
ið í dag. Ekki láta neitt á þig fá.
Vertu eins og símasölumaður, þeim er
hafnað í 95% tilvika, en gefast samt
aldrei upp.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn leitar að samböndum
sem styðja hann í þeirri viðleitni að
bæta sig. Uppörvandi tjáskipti við ein-
hvern í merki fisksins eða vogar gætu
verið upphafið að löngu og frjósömu
sambandi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin þarf ekki hundruð valkosta
og ef þeir eru fyrir hendi finnst henni
það fremur pirrandi en hitt. Þú veist
hvað þú vilt. Einn góður möguleiki er
allt og sumt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Himintunglin brosa við vatnsberanum
er hann byggir á einhverju sem geng-
ur sérlega vel í einkalífinu. Hann tek-
ur ekkert sem sjálfsögðum hlut og
þannig dafnar ástin.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er ánægður og sáttur inni í
litlu loftbólunni sinni. Örlitlar breyt-
ingar eða ágreiningur eiga eftir að
gera honum gott. Hristu upp í hlut-
unum.
Hættu að sniðganga símtöl og taktu
áhættu.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Sól í bogmanni spyr, hvers
vegna ekki? er það æðir út
í ævintýri eða óhöpp, ef
þannig ber undir. Tungl í
hinni jarðbundnu meyju
gerir illa skipulagt æv-
intýri að bestu sögu ársins. Maður getur
lifað í villtu taumleysi og munað eftir
ökuskírteininu og seðlaveskinu.
AÐALPERSÓNURNAR í Fríinu,
rómantískri jólamynd eftir Nancy
Meyers, eru tvær konur, flottar og
farsælar frá 9 til 5, en ástamálin og
einkalífið er í ólestri. Kvikmynda-
gerðarkonan Amanda (Diaz), nýtur
mikillar velgengni sem hönnuður
sýnishorna fyrir kvikmyndaiðnaðinn.
Hún býr ríkulega í Los Angeles en er
ofantekin af vinnunni, kynlífið er
gleymt og grafið og þegar myndin
hefst er bóndi hennar farinn að halda
framhjá og er varpað á dyr.
Nú víkur sögunni til London, á rit-
stjórn Daily Telegraph (að mig minn-
ir), þar sér blaðakonan Iris (Winslet),
kærastann ganga sér úr greipum er
hann tilkynnir trúlofun sína og vinnu-
félaga þeirra beggja. Í ofanálag velur
hann til þess jólaskaup fyrirtækisins,
tímasetningin getur ekki verið and-
styggilegri.
Konurnar sjá fram á ömurleg jól
og ákveða, hvor í sínu heimshorninu,
að breyta um umhverfi og prófa
íbúðaskipti yfir hátíðarnar. Fyrir al-
gjöra tilviljun finna þær hvor aðra
fyrir á upplýsingasíðum á netinu og
semja um að víxla eignum fram á ný-
ársdag
Fríið er snotur fyrir augað, auð-
gleymd en þunglamaleg afþreying,
alltof löng og lykilpersónurnar óvilj-
andi gerðar fráhrindandi, þannig að
ástarraunir þeirra snerta mann ekki.
Iris lætur endalaust troða á sér og
það er ekki beint trúverðugt að sá
auli finnist sem dumpar slíku sjarma-
trölli. Diaz er á hinn bóginn afleitlega
skrifaður karakter, svo eigingjarn,
sjálfselskur, sístritandi og leiðinlegur
að það hálfa væri nóg. Diaz tekst ekki
að kreista fram minnstu meðaumkv-
un með persónunni frekar en Wins-
let, grátsöngur þeirra og sjálfsmeð-
aumkun fer langt út fyrir
mannsæmandi takmörk.
Karlpeningurinn er illskárri, Law
leikur bróðir Irisar, sem fellur fyrir
rjómaísgerðinni Amöndu, og gagn-
kvæmt, enda telur hún manninn
„brjálæðislega fallegan“. Black, sem
er óvenju sissí, leikur kokkálaða ást-
arknúsarann sem kemur inn í líf Ir-
isar. Black er bæði fyndinn, músík-
alskur og tekst að sleppa frá klisjunni
líkt og Law.
Til að gera innihaldið ábúðarmeira
er gamla góða Eli Wallach troðið inn í
myndina, fyrst sem gamalmenni
komnu að fótum fram og vafrandi
með göngugrindina sína um stræti og
torg. En með yndisleika Irisar og
hjálp tekst hinni bresku blómarós að
gera kraftaverk á karlinum – sem
kemur í ljós að er heimþekktur hand-
ritshöfundur og Óskarsverðlauna-
aþegi. Iris afvopnar hann stuðnings-
búnaðinum, fær afskrifaðan
gamlingjann nánast til að ganga á
vatni, sitja samkvæmi og semja hjart-
næmar ræður. Aumingja Wallace, sá
held ég að hafi saknað þess að vera
ekki í félagsskap Eastwood, Lee Van
Cleef, og Leone.
„Ég elska væmni,“ segir Iris við
Óskarshafann, og við fáum yfrið nóg
af þeirri ómissandi tilfinningu í jóla-
mynd frá Hollywood. Musterisridd-
ararnir þrír, óvænt ekkilsmál, fimm-
tán ára augnþurrkur sem linnir með
táraflóði, best að fara ekki nánar út í
þá sálma.
Jólin eru hátíð ljóss, friðar og við-
skipta, kvikmyndaiðnaðurinn ekki
undanskilinn. Fríið er skrautlega inn-
pökkuð jólagjöf, löng og glysgjörn.
Hún virkar örugglega vel á kvenfólk,
ekki síst ungt, rómantískt og ást-
fangið. Persónulega vona ég að næsta
mynd hinnar laghentu Meyers verði í
ætt við hina bráðskemmtilegu So-
mething’s Gotta Give.
Æ, æ, ó, ó, aumingja ég
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Laugarásbíó,
Smárabíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri:Nancy Meyers. Aðalleikendur:
Cameron Diaz, Kate Winslet, Jack Black,
Eli Wallach, Edward Burns, Rufus Sewell.
130 mín. Bandaríkin 2006.
Fríið – The Holiday Sæbjörn Valdimarsson
Fríið „Er snotur fyrir augað, auðgleymd en þunglamaleg afþreying.“
tvær milljónir og stóll úr sjónvarps-
þáttunum Big Brother á rúmar 700
þúsund krónur.
Að sögn starfsmanns ChildLine
safnaðist mun hærri upphæð en bú-
ist hafði verið við, svo há að hægt er
að svara allt að 100 fleiri símtölum á
dag frá bágstöddum börnum.
hama-eyjum
fór fram í
þriðja sinn nú
um helgina.
„Ég er að
hugsa um að
taka mér
lengra frí á
milli kvik-
mynda,“ seg-
ir Cage. „Mér
líður eins og
ég hafi þegar
leikið í fjölmörgum kvikmyndum og
mig langar til að kanna önnur svið
sem ég get tileinkað mér, hvort sem
það er að skrifa eða einhver önnur
áhugamál sem ég get þróað með
mér.“
Nicolas Cage ætlar að aðstoðaóháða kvikmyndageirann á
Bahama-eyjum og íhugar leikarinn
nú að taka að sér færri kvikmynda-
hlutverk. Cage, sem er búsettur á
Bahama-eyjum, fékk afhent Chop-
ard-verðlaunin fyrir starf sitt á sviði
leiklistarinnar þegar árlega Al-
þjóðlega kvikmyndahátíðin á Ba-
við Reuters-fréttastof-
una. Mary Carey tók
upp sviðsnafnið fyrir
fjórum árum og bauð
sig fram til ríkisstjóra
Kaliforníu. Nú ætlar
klámstjarnan að senda
frá sér hljóð- og mynd-
bandsupptökur og verja
þær höfundarrétti und-
ir sviðsnafninu.
Lögfræðingur Mary
Carey efast um að Mar-
iuh muni takast að
banna klámstjörnunni
að nota nafnið. Hann
furðar sig einnig á því að söngkonan
haldi að fólk muni fara mannavillt.
BBC segir frá þessu.
Poppsöngkonan Mar-iah Carey hefur
hótað klámmynda-
stjörnu lögsókn, hætti
hún ekki að kalla sig
Mary Carey. Mary
þessi Carey heitir í
raun Mary Cook. Mar-
iah Carey telur þetta
tökunafn klámstjörn-
unnar geta ruglað aðdá-
endur sína í ríminu en
klámstjarnan er
óhrædd við söngkon-
una.
„Þetta er hálffyndið
því ég er klámstjarna og hef verið ég
sjálf í nokkuð langan tíma. Hún er
með kjánalæti,“ sagði Mary Carey