Morgunblaðið - 08.12.2007, Side 28
28 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Kjartan Björnsson, hár-
skeri á Selfossi, er mikill áhugamaður
um menningar- og félagsmál ýmis-
konar enda hefur hann verið á fullum
krafti á þeim vettvangi í gegnum árin.
Hann segist ekki hafa neina eina
skýringu á þessu, helst þá að foreldr-
ar sínir og fjölskylda hafi alltaf verið
menningarlega sinnuð, þetta sé þá
bara í genunum. Nú er Kjartan að
undirbúa jólatónleikana Hátíð í bæ
sem verða á Selfossi næstkomandi
miðvikudag.
Kjartan hefur starfað mikið að
íþróttamálum, var annar stofnandi og
formaður Arsenal-klúbbsins á Íslandi
í 20 ár, hefur sungið í kór frá barn-
æsku og söng í hljómsveit lengi svo
eitthvað sé nefnt. Þá segir hann að
starf sitt á rakarastofunni í Miðgarði
á Selfossi síðustu 25 árin hafi líka gert
sig menningarlega sinnaðan og að
þetta frábæra starf geri sig betur
meðvitaðan um samfélag sitt.
„Mér er ekki sama um umhverfi
mitt og svo hefði ég sennilegast verið
greindur ofvirkur á einhverju sviði í
æsku en ég ólst sem betur fer upp
fyrir tíma greininganna í rólegu
sveitaþorpi sem Selfoss var þá,“ sagði
Kjartan.
„Hátíð í bæ“
Kjartan stendur fyrir jólatónleik-
unum „Hátíð í bæ“ í íþróttahúsinu
Iðu á Selfossi miðvikudagskvöldið 12.
desember. „Ég fékk hugmyndina í
haust og kannski fannst mér vanta
stóra og metnaðarfulla tónleika inn á
okkar svæði hér á Suðurlandi líkt og
við sjáum annars staðar á landinu,
með fullri virðingu fyrir öðrum tón-
leikum sem haldnir eru hér á Suður-
landi. Þarna köllum við saman
nokkra af fremstu listamönnum þjóð-
arinnar til þess að skemmta okkur
heima í héraði ásamt listamönnum úr
heimahéraði.
Suðurland er sannarlega upp-
spretta margra stórkostlegra lista-
manna sem teljast meðal þeirra
fremstu hjá þjóðinni. „Hátíð í bæ“
verður sannkölluð hátíð í bæ þar sem
jólastemningin fær notið sín, yfir tón-
leikunum verður ró og jólafriður til að
næra andann í aðdraganda hátíðar-
innar. Þarna koma fram barnakór,
Karlakór Selfoss, Guðrún Gunnars
og Friðrik Ómar, Ragnar Bjarnason
og djásnið okkar Íslendinga hún
Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir, sem
einnig mun syngja með karlakórnum.
Svo er rúsínan í pylsuendanum stór-
kostlegt leyniatriði. Kynnir á tónleik-
unum verður séra Guðbjörg Arnar-
dóttir í Odda á Rangárvöllum,“ sagði
Kjartan spurður um jólatónleikana
og hugmyndina að þeim. Hægt er að
kaupa miða á midi.is.
Orðlaus yfir viðtökunum
Kjartan hefur haldið eitt glæsileg-
asta þorrablót á Suðurlandi í íþrótta-
húsi Vallaskóla síðustu sjö ár, það átt-
unda verður laugardaginn 26. janúar
2008.
„Það hefur vægast sagt gengið
mjög vel með þorrablótin og er ég al-
veg orðlaus aftur og aftur yfir frá-
bærum viðbrögðum sveitunga minna
hér á Selfossi enda frábært fólk. Ég
fékk hins vegar hugmyndina á stór-
glæsilegu þorrablóti í Þorlákshöfn og
hreinlega fékk fyrirmyndina þaðan.
Þorrablót er hverju byggðarlagi
nauðsynlegt enda mikill menningar-
auki,“ sagði Kjartan.
Hann segist vera mjög ánægður
með hvað mikið af nýjum íbúum á
Selfossi sæki þorrablótin og ekki síð-
ur brottfluttir Selfyssingar og aðrir
Sunnlendingar.
Það vakti mikla athygli í haust þeg-
ar Kjartan fór fyrir hópi fólks sem
hélt upp á 60 ára afmæli Selfoss. „Já,
ég var formaður 60 ára afmælis-
nefndar Selfoss með mjög gott fólk
með mér og síðast en ekki síst gríð-
armikla þátttöku bæjarbúanna. Af-
mælishaldið gekk mjög vel og stóð í
þrjá daga með fjölbreyttri dagskrá.
Einhverjum fannst ekki rétt að
halda sérstaklega upp á afmæli Sel-
foss þar sem bærinn sameinaðist
okkar góðu nágrönnum á Stokkseyri,
Eyrarbakka og í Sandvíkurhreppi
fyrir nokkrum árum. En ég var
ásamt öðrum annarrar skoðunar og
ég held að bæjarkjarnar og byggðir
um allt land eigi í raun að grípa hvert
það tækifæri sem býðst til þess að
þjappa íbúunum saman og hressa
upp á bæjarstemninguna. Það er líka
nauðsynlegt að halda vel til haga sögu
og menningu byggðanna og gleyma
aldrei upphafsmönnunum,“ sagði
Kjartan.
130 útvarpsviðtöl
„Það sem er framundan hjá mér,
fyrir utan tónleikana 12. desember,
er jólatraffíkin í vinnunni og svo að
halda jólin með fjölskyldunni. Ég er
mikið jólabarn og elska þann tíma og
mun reyna að njóta hans til hins ýtr-
asta.
Einnig er ég að klára verkefni sem
ég hef unnið að í nokkurn tíma sem er
varðveisla og endurgerð um 130 út-
varpsviðtala við Sunnlendinga sem
ég tók fyrir Útvarp Suðurlands á ár-
unum 1997 til 2002 en ég ætla að af-
henda þættina héraðskjalasöfnum
Árnesinga, Rangæinga og Vest-
mannaeyja til eignar. Ég spái svo lítið
í hlutina fyrr en kannski í febrúar eða
mars en þá stefni ég á að hafa uppá-
komu á Selfossi sem nánar verður
kynnt síðar,“ sagði Kjartan rakari.
Ekki sama um umhverfi mitt
Starfið Margir ráðherrar hafa komið við hjá Kjartani og fengið sérstaka
ráðherraklippingu. Geir H. Haarde forsætisráðherra þakkar Kjartani.
Heldur mikla
jólatónleika fyrir
Sunnlendinga
Selfoss | Atlantsolía hefur opnað
nýja bensínstöð Selfossi en þetta er
tólfta stöðin sem fyrirtækið opnar
frá því að það hóf að selja bensín 8.
janúar 2004.
Bensínstöðin er við hlið Toyota-
umboðsins, rétt áður en komið er
að Ölfusárbrúnni á austurleið. Með
tilkomu Atlantsolíu á Selfoss hefur
bensínverð lækkað og er það lægsta
á landinu eða um 126 kr. lítrinn.
Það kom í hlut Ragnheiðar Her-
geirsdóttur, bæjarstjóra í Árborg,
að dæla fyrstu lítrunum en með
henni á myndinni er Albert Þór
Magnússon, framkvæmdastjóri
Atlantsolíu.
Atlantsolía
á Selfossi
Selfoss | Kvenfélag Selfoss hélt í vikunni sinn
árlega jólagjafafund þar sem félagið afhenti
gjafir að andvirði 700.000 krónur fyrir jólin.
Hjálparsjóður Selfosskirkju fékk t.d.
200.000 krónur, Kvennaathvarfið 100.000
krónur, sérdeild Sunnulækjarskóla 50.000
krónur, sambýlið Vallholti 9 fékk sjónvarp,
Strókur fékk útvarpstæki og geislaspilara og
vinnustofan í Gagnheiðinni fékk tölvu að gjöf.
Aðal fjáröflunartekjur kvenfélagsins er sala
á dagbókinni Jóru, sem félagið selur nú 16.
árið í röð. Í félaginu eru 122 konur og það
fagnar 60 ára afmæli sínu í mars á næsta ári.
Formaður félagsins er Guðrún Þóranna Jóns-
dóttir.
Kvenfélag-
ið úthlutar
Gjafir Fulltrúar Kvenfélags Selfoss og þeirra sem fengu gjafir á árlegum jólagjafafundi félagsins.
Þorlákshöfn | Bæjarstjórn Sveitar-
félagsins Ölfuss hefur samþykkt
stefnu í menningarmálum. Stefnan
er til þriggja ára og er ætlunin að
endurskoða hana á árinu 2010.
Menningarstefnan hefur verið í
undirbúningi síðustu árin, á vegum
menningarnefndar sveitarfélagsins.
Meðal annars hefur verið gerð könn-
un meðal íbúa og málið rætt á íbúa-
fundum. Á vef sveitarfélagsins kem-
ur fram að íbúar eru almennt
ánægðir með framboð viðburða.
Helst er að ungu fólki finnist ekki
nægilega mikið komið til móts við
óskir þess og gagnrýnt að ekki var
meira um viðburði í dreifbýlinu.
Tilgangur menningarstefnunnar
er að gera menningarstarf á vegum
sveitarfélagsins markvissara. Stefn-
unni er ætlað að auðvelda þeim sem
starfa að menningarmálum að skipu-
leggja starfið betur og vinna að
ákveðnum markmiðum til lengri
tíma. Þá er talið að fjármunir sveit-
arfélagsins nýtist betur.
Stefna í
menningar-
málum
♦♦♦
NORÐURBAKKA 23 - 25, HAFNARFIRÐI
MIKLABORG KYNNIR
Vetur, sumar, vor og haust
Er þetta útsýnið þitt?
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
M E Ð Þ É R A L L A L E I Ð
S . 5 6 9 7 0 0 0
w w w . m i k l a b o r g . i s
ÁBYRGJUMST TRAUST, GÆÐI
OG ÁREIÐANLEIKA Í VIÐSKIPTUM