Morgunblaðið - 08.12.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 51
Fleiri minningargreinar um Birgi
Guðlaugsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu á næstu dögum.
mörgu kostir hans nýttust líka vel við
rekstur fyrirtækis hans, en Birgir
hefur í tugi ára rekið stærsta bygg-
ingafyrirtæki okkar Siglfirðinga og
byggt tugi húsa og mannvirkja í bæn-
um með sínum góðu starfsmönnum.
Birgir var mjög virkur í félagslífi
Siglufjarðar og starfaði í fjölmörgum
félögum og valdist oft til forystu í
þeim. Oft dáðist ég að störfum hans
og þeim tíma sem hann lagði í þau vel
studdur af eiginkonu sinni, Erlu
Svanbergsdóttur, sem alltaf var
traustur bakhjarl hans.
Birgir var mikill jafnaðarmaður og
vel vinnandi í okkar röðum. Ég átti
því láni að fagna að eiga þau hjón að
sem ötula stuðningsmenn ekki aðeins
í prófkjörum og kosningum, heldur
einnig sem álitsgjafa og ráðgjafa.
Fyrir þetta þakka ég sérstaklega. Við
Birgir ræddum oft um þá óheillavæn-
legu þróun sem hefur orðið víða á
landsbyggðinni, fækkun atvinnutæki-
færa og fækkun íbúa, og alveg sér-
staklega tókum við út fyrir þá miklu
fækkun sem orðið hefur í okkar fal-
lega heimabæ, Siglufirði. Fráfall
Birgis skilur þar eftir sig vandfyllt
skarð.
Við hjónin færum Birgi kærar
þakkir fyrir allar okkar ánægjustund-
ir og mikinn stuðning og hvatningu í
gegnum árin.
Eftirlifandi eiginkonu hans og
börnum þeirra hjóna svo og öllum
ættingjum færum við okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Blessuð sé minning
Birgis Guðlaugssonar. Ljúf er minn-
ing um góðan og traustan vin.
Kristján L. Möller.
Siglufjörður hefur nú misst einn af
sínum bestu sonum, bærinn okkar var
hljóður þegar fánar voru dregnir í
hálfa stöng er fréttist af andláti þínu.
Í litlum kaupstað verða einstak-
lingarnir meira áberandi þar sem ná-
lægðin er og hver og einn fylgist með
nágranna sínum, högum hans og líð-
an.
Það var erfitt að sjá þig berjast við
illvígan ólæknandi sjúkdóm.
Þú varst oft fremstur í flokki þeirra
vösku drengja sem fóru frá Siglufirði
til að etja kappi á skíðamótum á veg-
um Skíðafélags Siglufjarðar og knatt-
spyrnuleikjum víða um land á vegum
KS. Þú varst margfaldur Íslands-
meistari á skíðalandsmótum og hélst
á lofti nafni Siglufjarðar.
Eftir eitt slíkt mót á Ísafirði
komstu með eignkonu þína Erlu
Svanbergsdóttur. Hjónaband ykkar
var farsælt og áttuð þið barnaláni að
fagna.
Strákarnir okkar, Gulli og Sveinn,
fylgdust að í íþróttum og deildu her-
bergi í heimavist þegar þeir voru í
Menntaskólanum á Akureyri.
Þú lærðir trésmíði hjá Þórarni Vil-
bergssyni og eignaðist síðar Bygg-
ingafélagið Berg með honum. Ég man
að leiðir okkar lágu saman við bygg-
ingu Ráðhússins, þá sá ég strax á
vinnubrögðum þínum að þú varst á
réttri leið.
Síðasta verk okkar hjá Raflýsingu
var að leggja rafmagn í húsið ykkar á
Hlíðarvegi 43, þar sem heimili ykkar
stóð alla tíð og síðasta verk þitt sem
tengdist mér var að byggja hús fyrir
starfsemi Rarik á Siglufirði 30 árum
seinna.
Þessi tími spannar nánast alla
starfsævi þína, þar sem verk þín er að
líta hvarvetna í Siglufirði og bera vitni
um hagleik þinn og hæfileika.
Það var eftirtektarvert hvað þér
hélst vel á starfsmönnum og hvað var
góður starfsandi hjá ykkur. Ég
harma að þér tókst ekki að ljúka við-
byggingu Heilsugæslu Siglufjarðar,
sú bygging verður viðbót við þær
byggingar sem þú hefir staðið fyrir og
munu halda á lofti nafni þínu.
Eins og ég sagði áður hefur Siglu-
fjörður misst einn af sínum ástsæl-
ustu sonum sem bærinn okkar mátti
síst við að missa.
Hans er nú sárt saknað.
Elsku Erla,við Auður sendum þér,
börnunum og öðrum aðstandendum
innlegar samúðarkveðjur og biðjum
góðan guð að styrkja ykkur.
Auður og Sverrir Sveinsson.
Það er verðugt rannsóknarefni að
kanna hvernig á því stendur að slíkur
fjöldi fólks, sem búið hefur á Siglufirði
á árunum 1940–1960, hefur orðið
krabbameini að bráð.
Þegar maður elst upp með svo
traustum og sterkum persónuleika
eins og Biggi var, þá heldur maður að
það sé ekkert óvenjulegt. Við vorum
ákaflega samrýmdir og góðir vinir frá
fyrstu barnæsku fram á síðasta dag.
Þrátt fyrir fjarvistir og á löngum
drjúgan spöl á milli vina bar aldrei á
skugga eða tómlæti. Þessi vinátta var
alla tíð einlæg, sterk og fölskvalaus
eins og Biggi sjálfur.
Báðir lékum við saman knatt-
spyrnu frá yngstu aldursflokkum KS
upp í meistaraflokk. Sögurnar af
þeirri samveru voru jafnan rifjaðar
upp þegar við hittumst og þar naut
sín hnyttin frásagnargáfa Bigga til
fullnustu.
Ógleymanleg eru öll þau skipti sem
við lékum á móti sterkari liðum á suð-
urmarkið á gamla vellinum á Siglu-
firði. Vinstra megin á norðurhelmingi
malarvallarins var oft stór pollur sem
myndaðist um leið og eitthvað rigndi.
Þegar sókn mótherjanna tók að
þyngjast um of plataði Biggi þá út í
pollinn. Enginn kunni að nýta sér
tregðulögmál boltans í vatninu eins
og hann. Hinir fræknustu knatt-
spyrnumenn, sem sóttu okkur heim,
urðu allir að láta í minni pokann þegar
Biggi var búinn að taka með þeim
nokkra snúninga í pollinum.
Biggi og Erla kona hans voru
lengst af duglegust að mæta í morg-
unsund, en það ásamt öllum fjallgöng-
unum hefur sennilega gert að þau
hjón hafa haldist ótrúlega ungleg alla
tíð. Ímyndir hreysti og æsku.
Sú umhyggja verður seint full-
þökkuð sem þau hjón sýndu öldruð-
um foreldrum mínum heima á Siglu-
firði með tíðum heimsóknum og ætíð
réttandi hjálparhönd. Það var sama
umhyggjan og þau sýndu þegar við
Bigga heimsóttum Siglufjörð. Þar var
alltaf opið hús og málin rædd í þaula
langt fram eftir nóttu.
Við Biggi vorum samherjar í póli-
tíkinni. Við vorum aðeins smápjakkar
þegar við fórum saman á fyrstu fund-
ina þar sem stórkarlar í stjórnmál-
unum leiddu saman hesta sína. Og
það var fjörugt landslagið á Siglufirði
í þeim efnum í þá daga. Ætíð fannst
okkur kratarnir bera af í þeim leik og
þurfti mikið til að sannfæra okkur um
eitthvað annað. Þegar ég var sjálfur
farinn að taka þátt í landsmálunum,
þá var enginn traustari stuðnings-
maður til en Biggi Guðlaugs. Sjálfur
tók hann þátt í bæjarpólitíkinni eins
og hann mátti vera að. Nú er skarð
fyrir skildi þegar Biggi hverfur úr
bæjarlífinu, hvernig sem á það er litið.
Eins og ég sagði í upphafi glapti ná-
lægðin sýn. Síðan á æsku- og ung-
lingsárunum hef ég kynnst fjölda
fólks um víða veröld og stundað
íþróttir í Þýskalandi og víðar. Í sam-
anburðinum við allt þetta fólk finnst
mér sífellt meira til Bigga koma. Guð-
irnir höfðu gefið honum hæfileika af
rausn þeirra sem elska. Ókosturinn
er að guðirnir taka þá allt of fljótt til
sín aftur. Þeir sem guðirnir elska,
deyja ungir. Í lok ljóðsins „Einstak-
ur“ eftir Terry Fernandez eru orð
sem passa svo vel við Bigga vin minn:
„Einstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
Elsku Erla, Birgitta, Bryndís og
Guðlaugur. Hugur okkar Biggu og
Öggu og alls fermingarárgangsins
1941 er hjá ykkur og fjölskyldum ykk-
ar þessa dagana. Við vitum, að Biggi
er á besta stað og við elskum hann öll,
ekki síður en guðirnir.
Jón Sæmundur.
Kveðja frá félögum
í Blakklúbbnum Hyrnunni
Hann var einn af frumkvöðlunum í
öldungablaki á Íslandi. Allt frá árinu
1971 tók hann þátt ásamt félögum sín-
um á Siglufirði, í þessari íþrótt sem
vaxið hefur stöðugt undanfarna ára-
tugi.
Rólegur, sama hvað gekk á og það
var oft ekkert lítið, enda Hyrnumenn
þekktir fyrir flest annað en logn-
mollu. En Birgir var sá sem náði
mönnum niður á jörðina af rósemi og
yfirvegun en þó með brosglampa í
augum.
Það er stórt skarð hoggið í hópinn,
skarð sem aldrei verður fyllt. Við fé-
lagarnir í Hyrnunni munum af alefli
halda á lofti minningu góðs félaga,
minningu sem er og verður jákvæð og
hlý.
Við sendum Erlu, eiginkonu Birgis
og fjölskyldu innilegar kveðjur, hugur
okkar er með þeim.
Fyrir hönd Hyrnumanna,
Sigurður Jóhannesson.
Bognar aldrei – brotnar í
bylnum stóra seinast.
Þessar línur úr kvæði Stephans G.
Stephanssonar, Greniskógurinn,
koma mér í hug þegar ég minnist
æskuvinar míns, Birgis Guðlaugsson-
ar. Við vorum sessunautar síðustu 2
veturna í Barnaskóla Siglufjarðar og
þá lærðum við þetta magnaða kvæði
og ég er ekki frá því að við hefðum
viljað gera lokaorð þess að einkunn-
arorðum okkar í lífinu.
Þegar leið að próflestri á þessum
árum lásum við stundum saman undir
próf eða kennslustundir. Oftast fór ég
til hans og sátum við þá á efri hæðinni
á heimili hans og komum okkur nota-
lega fyrir undir brattri súðinni. Við
slógum ekki slöku við lesturinn en
gáfum okkur einnig tíma til að taka
eina og eina skák eða tala um eitthvað
skemmtilegt. Ekki spillti það ánægj-
unni þegar Þóra, móðir Birgis, birtist
með einhverja góða hressingu handa
okkur og spjallaði hún þá gjarnan við
okkur um leið. Mér fannst ég alltaf
fullorðnast ofurlítið eftir slíkar sam-
ræður.
Síðar á ævinni var ég svo heppinn
að eiga við hann gott og gefandi sam-
starf við ýmis verk, svo sem innrétt-
ingu á Safnaðarheimili Siglufjarðar-
kirkju, byggingu sýsluskrifstofu á
Siglufirði og nú síðast endurbætur og
viðbyggingu við Heilbrigðisstofn-
unina á Siglufirði. Ætíð var faglegur
metnaður og vandvirkni í fyrirrúmi
hjá honum og lærði ég mikið af sam-
vinnunni við hann. Eftir að ferming-
arárgangurinn okkar tók upp á því að
hittast reglulega til þess að rækta
æskuvináttuna var Birgir þar fremst-
ur í flokki. Það var alltaf gott að vera í
návist hans og alla tíð dáðist ég að því
hve vel hann var af guði gerður og
vandfundið var betra dæmi um
hraustan og heilbrigðan mann. Því
var erfitt að trúa því að hann hefði
ekki betur í baráttunni við hinn erfiða
sjúkdóm sem hann barðist við af
miklu æðruleysi. Hann bognaði ekki í
þeirri glímu en varð um síðir að lúta í
lægra fyrir þeim stóra byl sem fellir
okkur öll að lokum. Eftir sitjum við
með trega í hjarta en erum jafnframt
full af þakklæti fyrir að hafa átt þenn-
an góða dreng að vini.
Hugurinn er hjá Erlu og fjölskyld-
unni allri. Missir þeirra er mikill og
við Maggý biðjum þeim blessunar í
sorg þeirra.
Helgi Hafliðason.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og
mágur,
BJARNE PETTERSEN,
Tromöy,
Noregi
lést á sjúkrahúsinu í Arendal, Noregi, miðvikudaginn 5. desember sl.
Jarðsett verður frá Tromöy kirka miðvikudaginn 12. desember kl. 12:30.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Linda Antonsdóttir Pettersen,
Dan Pettersen, Lene Pettersen og Atle Pettersen.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
HJARTAR HJARTARSONAR,
Professorsgatan 2b,
215-53 Malmö,
Svíþjóð.
Vilborg Arinbjarnar,
Hjörtur Hjartarson, Geirþrúður María Kjartansdóttir,
Matthías Hjartarson,
Eygló Arinbjarnar, Christopher John Kerr,
Sigurður Arinbjarnar,
Kristbjörg Karen Hjartardóttir,
Matthías Hjörtur Hjartarson,
Hjörtur Hjartarson, Jensína Guðmundsdóttir,
Drífa Hjartardóttir, Skúli Lýðsson,
Ingibjörg Hjartardóttir, Sigurður Ólafsson,
Anna Ásta Khan Hjartardóttir, Hrafn Sabir Khan,
Björn Grétar Hjartarson,
Guðmundur Ingi Hjartarson, Sigríður Sigmarsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÖLDU BJARKAR KONRÁÐSDÓTTUR,
Hásæti 11a á Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Sauðárkróki, Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og krabbameinsdeildar Landspítalans við
Hringbraut.
Trausti Pálsson,
Linda Traustadóttir, Hjalti Vésteinsson,
Edda Traustadóttir, Björn Jóhann Björnsson,
Páll Rúnar Traustason,
Aron Trausti, Tinna Birna, Erna og Atli.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
BJARNA EYVINDSSONAR,
Hveragerði.
Starfsfólki á Hjúkrunarheimili Áss í Hveragerði eru
færðar hjartans þakkir fyrir frábæra umönnun.
Gunnhildur Þórmundsdóttir og aðstandendur.
✝
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts og við útför elskulegs eigin-
manns, föður, tengdaföður og afa,
MARTEINS VIGFÚSSONAR
frá Sunnuhvoli,
Vopnafirði.
Bergþóra Friðbjörnsdóttir,
Friðbjörn Marteinsson, Þórunn Björnsdóttir
og barnabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn
10. desember kl. 15.00.
Jón Ásgeir Eyjólfsson, Margrét Teitsdóttir,
Atli G. Eyjólfsson, Lára Friðjónsdóttir,
Hafsteinn Eyjólfsson, Linda Ólafsdóttir,
Haukur Eyjólfsson,
Kristín Eyjólfsdóttir, Gunnar Þorláksson,
barnabörn og barnabarnabörn.