Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 7
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
175
væri fróðlegt að brjóta einn í sundur til að fá samanbuið við aðra
bergbólstra, en það væru of hörmuleg spjöll á fagurri náttúrusmíð.
Lögulegustu dropsteinarnir í Mögugilshelli hanga niður úr bólstr-
um í innhellinum.
Á nokkrum stöðum sér þess merki, að rnenn hafa brotið eða
kvarnað lítið eitt nr veggjum og gólfi í hellinum. Allt hlýtur það að
vera gert með verkfærum, því að öðru vísi verður ekki unnið á
hinni hörðu bræðsluskán. Þetta eru vitaskuld spellvirki, sem ekki
verður bót mælt, nema þau séu gerð í rannsóknarskyni og sýnishorn
tekið þar sem minnst ber á. Sveinn Pálsson getur þess, að hann hafi
2. mynd.Langsnið af Mögugilshelli eftir línu AB á l.mynd. 1: berg; 2: lausagrjót;
3: sandur. 1----1: hæð lækjaraursins í gilinu fyrir utan; op: hellismunni. —
Fig. 2. Section AB on jig. 1. 1, rock; 2, stones; 3, sand. I-Z, level of the
hrook; op, mouth of the cave.
3. mynd. Þversnið af Mögugilshelli eftir
línu CD á 1. mynd. Merki eins og á 2.
mynd. 1., 2. og 3. mynd eru allar í sama
mælikvarða. — Fig. 3. Seclion CD on fig. 1.
Legend as on fig. 2; Itekur, hrook.