Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 8
174
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
4. mynd. Mögugil. Hellisopið til hægri. — Fig. 4. The gorge Mögugil. Entrance
to the cave on right side.
Ljósm.: Gísli Gestsson 11. okt. 1959.
tekið þarna tvð sýnishorn, og lýsir þeinr svo í Skrá um náttúrugripi
(1. c. bls. 733): „Saxum scoriaceoideum, prædurum, ponderosum,
æquabile, compactum, nigrum, substalactitium". (Þ. e.: berg, sem
líkist gjalli, mjög hart, þungt, einlitt, þétt og svart, eins konar drop-
steinn.)
Ég leyfði mér einnig að taka til varðveizlu í Náttúrugripasafninu
í Reykjavík lítið sýnishorn af ólögulegri lafandi bergtotu niðri við
gólf í innhellinum. Tómas Tryggvason bergfræðingur hefur góðfús-
lega tekið þetta sýnishorn til rannsóknar í Atvinnudeild Háskólans.
Sjálfur athugaði hann þunnsneið af því í smásjá, en Haraldur Ás-
geirsson ákvarðaði eðlisþyngdina.
Þessar athuganir leiddu í ljós, að bergið er blágrýti, að mestu leyti
eða algerlega kristallað (þ. e. ekki glerkennt). Tómas telur stærstu