Eimreiðin - 01.01.1974, Side 50
EIMREIÐIN
meðan mælistika réttlætis er ekki jafnlöng um allan heim, er
ófriðar von.
Vér hinir kristnu höfum siður en svo hergt á öllum þeim
lindum, sem streyma frá guðsorði, sem vér prédikum þó. Þeir,
sem sannfærðir eru um, að allir séum við bræður, vegna þess
að vér eigum hinn sama föður, sem er drottinn vor i upphæð-
um, þeir, sem trúa því, að hlutverk kirkjunnar sé að halda
áfram starfi Krists, þá er orð guðs tók sér búsetu á meðal
mannanna, þeir, sem trúa því, að það sé vilji guðs, að maður-
inn gerist þátttakandi i sköpunarverkinu, taki í sínar hendur
að ráða rás sögunnar og fullkomni verk drottins, — allir þeir
húa yfir ómælanlegum mætti, sem þeir gætu heitt til eflingar
bræðralags með mönnunum og til jarðneskrar frelsunar þeirra,
er varðar veginn til eilífrar frelsunar.
Ef fjölmiðlar fylktu liði með háskólum og trúarleiðtogum,
ef atvinnurekendur og verkalýðsleiðtogar, herforingjar og
stjórnmálamenn slægjust í hópinn, væri ég þess fullviss, að í
ljós kæmi máttur menntunar og styrkur lýðræðislegra stjórn-
arhátta.
Bölsýnismenn munu segja, að háskólar séu bundnir á klafa
ríkisvalds eða einkasjóða með mjög afmörkuð markmið, að
trúarleiðtogar, sem njóta gjafa voldugra og auðugra góðgerða-
manna, séu drepnir i dróma óþekktra afla, sem voldugri séu
en flesta gruni. Þeir munu enn fremur hreyfa þeirri mótbáru,
að fjölmiðlar séu háðir hagsmunahópum, sem bindi hendur
blaðamanna, sjálfstæði þeirra séu þau takmörk sett, er auð-
hringunum sé hentast. Þeir munu segja, að atvinnurekendur
ánetjist kerfinu, vefjist fjötrum markaðslögmála, þótt þeir séu
e. t. v. kristnir menn og góðviljaðir. Einnig munu þessir svart-
sýnismenn segja, að verkamenn í þriðja heiminum séu ekki
frjálsir gerða sinna, bundnir á klafa þrælsótta, jafnframt þvi
sem byltingarglóð verkamanna í iðnríkjum dofni, er lífskjör
þeirra batni. Að lokum munu þeir klykkja út með því, að
stjórnmálamenn séu um of háðir flokksvélum og herforingjar
hundnir erfðavenjum.
Abraham var sagður hafa lialdið áfram að vona, er öll von
var úti. Ég set traust mitt ekki eingöngu á guð, sem ekki mun
ofurselja sköpunarverkið eyðingaröflum, heldur líka á menn-
ina, á gáfur þeirra og skynsemi.
Þegar allir jarðarbúar fá vitneskju um það, sem sérfræð-
ingar vorir vita nú þegar, að maðurinn hefur á valdi sínu
jafnt að eyða mannkyni öllu sem og að búa öllum mannsæm-
andi lifskjör, þá eru dagar eigingirninnar taldir. Mannleg
50