Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1974, Page 68

Eimreiðin - 01.01.1974, Page 68
EIMREIÐIN ýmsum efnahagslegum markmiðum, stilla kröfum í hóf og fella önnur niður. Þótt margir ýki í þessum umræðum eins og gengur, þá þarf að fara og er þegar farið að taka tillit til margs á þennan hátt. Nýir siðir og ný stefnumið þurfa að ná til alls mannkyns á mörgum sviðum, ef árangur á að nást, þannig að varla ýtir þetta heldur mjög undir sérkenni þjóða. Svo aftur sé vikið að Sigurði Lindal, þá hefur liann verið samkvæmari sjálfum sér í þessum efnum en flestir aðrir. Þeg- ar á árinu 1965 réðist hann í ræðu á lífskjarakapphlaupið og hóflausa kröfugerð einstaklinga og stétta. Síðan hefur hann oft bent á kröfuhörku unga fólksins, þar á meðal háskólastúdenta, sem þykist hafa annað gildismat en hinir eldri, jafnframt þvi sem það er sífellt að heimta þetta eða hitt, sem ekki verður fullnægt nema með peningalegum ávísunum á þjóðarfram- leiðsluna. Allir eru reyndar sjálfum sér ósamkvæmir á einhvern hátt, bæði í orði og gjörðum, en tvöfeldnin er alla jafna miklu meira áberandi hjá hörðu vinstra fólki og þeim unglingum, sem eiga róttæknina sameiginlega með því. Þetta fólk neitar oft að horf- ast í augu við staðreyndir og lifir gjarnan í heimi rósrauðrar rómantíkur (utopiu), sem er í engu samræmi við veröldina, sem við lifum í, eða mannfólkið, sem í henni hrærist. 1 engu er þetta eins áberandi og i „mannúðinni“, sem þetta fólk er sífellt að bera á torg, en lausnir vandans skulu jafnan vera á kostnað allra annarra en þess sjálfs. Á efnahagssviðinu dreym- ir það um steiktar, fljúgandi gæsir í hvers manns munn, ef að- eins „réttir“ menn sitji í valdastólum. Þvi verða vonbrigðin oft milcil, eins og haft er eftir einni lýðskrumshetjunni: hvort ekk- ert væri til ráða annað en gömlu „íhaldsúrræðin". Þetta er gert að umtalsefni hér, af því að margt af róttæka fólkinu þykist vera, og er stundum, leiðandi afl í þjóðernis- málum. Auðvitað getur það stundum haft rétt fyrir sér, en hætt er við, að það stjórnist í þeim efnum mjög af draumór- um, óraunsæi og ósamkvæmni, eins og í öðrum málum. Þetta eru hinir góðviljuðu, en svo eru hinir líka ófáir, sem vita vel, hvað þeir eru að gera. Þeir nota þjóðernishyggju og önnur vin- sæl mál miskunnarlaust í valdabaráttunni. Þótt þeir séu þannig komnir æði langt frá markmiðinu um, að „öreigar allra landa sameinist", þá geta þeir hugsað sem svo, að slík frávik megi alltaf leiðrétta síðar. Misnotkun þjóðernishyggju er svo sem ekkert séreinkenni hjá róttækum vinstrimönnum. Ef svo væri, mundi fasisminn ekki vaða svona uppi í heiminum sem raun ber vitni. Lýð-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.