Eimreiðin - 01.01.1974, Blaðsíða 77
EIMREIÐIN
— var ekki altæk kenning. Hún bi-ýtur ekki til mergjar allar
Iiliðar mannlífsins. Á sumum tekur hún stuttlega og yfirborðs-
lega. Marx afneilaði réttilega ósögulegum aðferðum þýzku
heimspekinganna, sem reyndu að laga staðreyndir að fyrir-
fram gerðum kenningum. Jafnafdráttarlaust hafnaði hann vél-
rænni efnishyggju átjándu aldarinnar. Hún útskýrði að vísu
ríkjandi ástand, en sást yfir hið lifandi samhengi sögulegrar
þróunar. Flestir marxistar hafa gleymt fyrstu grein hans um
Feuerbach:* „Hingað til hefur það verið aðalveikleiki allrar
efnishyggju, að litið hefur verið á hlutinn, veruleikann og skyn-
reynsluna einungis sem andlag, eða eitthvað, sem maður skoð-
ar, en hins vegar ekki sem mannlegt skgnreynslustarf, virka
starfsemi, i veru sjálfsins. Þella á einnig við um efnishyggju
Feuerbachs“. Hvað snertir sögu trúarbragðanna hefði Marx
auðvitað túlkað hana sem afsprengi félagslegrar þx-óunar. En
það er ekki sama og lýsa trúarbrögðin ómerk. Og sannarlega
gefur sagan tilefni til gagnstæðrar niðurstöðu. Hún krefst þess,
að við lítum á trúarbrögðin sem félagslega nauðsyn. Aldrei
hefur verið til siðmenning án samsvarandi trúarbragða. Rök-
hyggja og efahj’ggja hafa ávallt verið merki um hnignun.
Rétt er það, að hverl tímabil siðmenningar hefur lagt af
mörkum ákveðin hugarverðmæti i sameiginlegan sjóð. Af
þessu Jeiðir m. a., að maðurinn hefur tamið sér visst sjálf-
stæði gagnvart ríkjandi trúarbrögðum. En þótt í ljós komi, að
fyrirbæri eins og trúarbrögð eigi sér langan sögulegan aðdrag-
anda, sannar það ekki, að þeim sé ofaukið. Öðru nær. Þessi
niðurstaða gefur þeim vísindalega réttlætingu og sýnir, að þau
eru nauðsynlegt „mannlegt skynreynslustarf“. Jafnframt gerir
hún sérhvert það heimspekikerfi tortryggilegt, sem vísar trú á
bug í þeirri þjóðfélagsskipan, sem það boðar.
Eftir að sósíalismi hefur rikt í Rússlandi í 20 ár, er augljóst,
að þjóð, sem enginn boðar nýja trú, snýr sér smátt og smátt
að þeirri, sem hún hafði áður, og revndar hefur rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan* 1 fengið aukið svigrúm í landinu. Ekki þar
fyrir, kommúnisminn liefur sinar trúarlegu hliðar. Til dæmis
hefur Lenin verið tekinn i guðatölu (heilagur grafreitur, helgi-
myndir, goðsagnir — öll grundvallaratriðin eru fyrir hendi).
Hér er á ferðinni vísvituð tilraun til þess að fullnægja trúar-
þörf fólks. Nazistarnir í Þýzkalandi gerðu enn augljósari til-
'„Greinar um Feuerbach“ eru þýddar í Úrvalsritum Marx og Engels
I, 325—328. Fyrsta greinin hefst á ívitnuðum orðum (bls. 325). Þý)5andi
er Brynjólfur Bjarnason.