Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Qupperneq 10
AFMÆLI
Gömul íslandskort færð Landsbókasafni
Islands — Háskólabókasafni að gjöf
Frá afhendingu kortagjafarinnar 9. júní sl. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Birgir L. Blöndal,
Magnús Karel Hannesson, Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, varafulltrúi Sigríöar Stefáns-
dóttur í stjórn sambandsins, Ingvar Viktorsson, Kristín Bragadóttir, forstööumaöur þjóödeildar
Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns, Einar Sigurösson, yfirbókavöröur safnsins, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Guömundur Bjarnason, Ólafur Kristjánsson, Guörún Ögmundsdóttir,
borgarfulltrúi i Reykjavik, varafulltrúi Sigrúnar Magnúsdóttur i stjórn sambandsins, Ólafur
Hilmar Sverrisson, Þóröur Skúlason og Unnar Stefánsson. Edda Sigurjónsdóttir tók myndina.
í tilefni af 50 ára afmæli sambandsins ákvað stjórn
sambandsins að færa Landsbókasafni Islands - Háskóla-
bókasafni að gjöf gömul landakort af Islandi sem vænt-
anlega verður stofn að landakortasafni í safninu.
Gjöfin var afhent að loknum fundi í stjóm sambands-
ins 9. júní að viðstöddum forustumönnum sambandsins
og safnsins ásamt nokkrum öðrum gestum, s.s. Kjartani
Gunnarssyni lyfsala, sem safnað hafði kortunum, og
Haraldi Sigurðssyni, höfundi ritsins „Kortasögu Islands".
Vilhjálmur Þ. Villtjálmsson, fonnaður sambandsins,
afhenti gjöfina og flutti við það tækifæri ávarp. Fer það
hér á eftir:
„Það var mikill viðburður þegar Landsbókasafn ís-
lands - Háskólabókasafn var opnað hér í Þjóðarbók-
hlöðunni 1. desember á síðasta ári. Merkum áfanga var
náð og lagður enn frekari gmnnur að því að sú stofnun,
sem sérstaklega er helguð fortíðar-, nútíðar- og framtíð-
armenntun þjóðarinnar, geti þjónað hlutverki sínu með
reisn.
I tilefni af 50 ára afmæli Sambands íslenskra sveitar-
félaga þann 11. júní nk. fannst stjóm þess viðeigandi að
minnast þeirra tímamóta meðal annars með því að gefa
Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni einhverja þá
gjöf sem komið gæti að gagni fyrir safnið.
Sú mennta- og menningarstarfsemi sem fram fer í
þessari stofnun er með einum eða öðrum hætti samofin
sögu og starfi sveitarfélaganna í landinu. Sú saga hefur
fært okkar kynslóð fróðleik m.a. um hið merka hlutverk
hreppanna á árdögum íslenskrar þjóðmenningar.
A þeim tímamótum er við stöndum nú, þegar sveitar-
félögin eru í þann mund að taka við öllum grunnskóla-
rekstri, minnir þetta okkur á mikilvægi þess að þau ræki
það hlutverk þannig að íslensk menning dafni í framtíð
ekki síður en á þeim tímun er skapaður var sá bók-
menntaarfur sem hér er varðveittur.
í samráði við Einar Sigurðsson, yfirbókavörð safnsins,
og Kristínu Bragadóttur, forstöðumann þjóðdeildar þess,
var ákveðið að sambandið gæfi 12 Islandskort, það elsta
frá árinu 1596 og það yngsta frá 1825. Þessi Islandskort
eru úr safni Kjartans Gunnarssonar lyfsala, sem hóf
1 36