Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Blaðsíða 12
AFMÆLI
Feröafélagarnir viö Gunnarshólma, taliö frá vinstri, Anna Porvaröardóttir, kona Vals, Valur Pórarinsson, Guörún S. Hilmisdóttir og
maöur hennar, Gunnar Sigurjónsson, Guömundur Bjarnason, Herdís Eggertsdóttir, kona Ólafs Kristjánssonar, Klara ívarsdóttir, kona
Guömundar, Ólafur Kristjánsson, Vilborg Pétursdóttir, kona Valgarös, Valgaröur Hilmarsson, Bára M. Eiríksdóttir, framar, Elín Þor-
móösdóttir, kona Póröar, Lúövík Hjalti Jónsson, Ingibjörg Hinriksdóttir, Geröur Gústafsdóttir, sambýliskona Lúövíks, Eirikur K.
Nielsson, maöur Jónínu, Jónina Eggertsdóttir, María Ólafsdóttir, kona Unnars Stefánssonar, Garöar Jónsson og kona hans, Hulda
Óskarsdóttir, Rannveig Lilja Pétursdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Jón Böövarsson, Áslaug Steingrimsdóttir, kona Birgis, Birgir L.
Blöndal, Sturla Einarsson, Ásgeir Porvaldsson, maöur Ástu Torfadóttur, Sigurbjörg Bjarnadóttir, kona Einars, Inga Lára Baldvins-
dóttir, kona Magnúsar Karels, Magnús Karel Hannesson, Einar Njálsson, Póröur Skúlason og Lárus Lárusson, bifreiöarstóri hjá Vest-
fjaröaleiö, sem ók hópnum af miklu öryggi.
Á söguslóðum Njálu
í tilefni af fimmtíu ára afmæli sambandsins ákvað
stjóm þess að efna til kynnisferðar á söguslóðir Njálu.
Til ferðarinnar var boðið stjómarmönnum og starfsfólki
ásamt mökum. Fararstjóri og leiðsögumaður var Jón
Böðvarsson sagnfræðingur en hann er kunnur af þekk-
ingu sinni á söguslóðum íslendingasagna.
Farið var laugardaginn 8. júlí. Ekið var um Hellu upp
Rangárvelli og hjá Gunnarsholti að Gunnarssteini við
Eystri-Rangá, norðan við bæinn Keldur, þar sem Njála
segir að Gunnar á Hlíðarenda og tveir bræður hans haft
barist við lið þrjátíu manna eftir fyrirsát við Knafahóla.
Þar var áð og nesti snætt.
Á Keldum tók á móti hópnum Drífa Hjartardóttir,
húsfreyja á Keldum og hreppsnefndarmaður í Rangár-
vallahreppi, og sagði frá gamla bænum, sem nú er
minjasafn. Einnig lýsti hún kirkjunni, sem er frá 1875
og jarðgöngum sem talin eru geta verið frá söguöld.
Áf vestri bakka Eystri-Rangár, við bæinn Minna-Hof,
er góð yfirsýn yfir ýmsa sögustaði Njálu. Þar benti Jón í
átt að Þorgeirsvaði og á bæinn Völl og þaðan blasa við
fjöllin Þríhymingur og Vatnsdalsfjall. Einnig lýsti Jón
leiðinni suðvestan Þríhymings og um Vatnsdal frá Rang-
árvöllum til Fljótshlíðar og benti á að ferðaleiðir á sögu-
öld hafi almennt legið innar í landinu en á okkar tímum.
Á Hlíðarenda hafði hópurinn gott útsýni yfir Markar-
fljót og til Stóra-Dímons, þar sem em Rauðuskriður enda
var bjart og fagurt veður allan daginn.
Frá Hlíðarenda var farið á Gunnarshólma, þar sem við
blasti fegurð Fljótshlíðar, Þórólfsfell í austri og Merkur-
bæimir undir Eyjafjöllum.
Á Bergþórshvoli stóð í varpa Eggert Haukdal, oddviti
Vestur-Landeyjahrepps, og lýsti kennileitum. Oddvitinn
og Guðrún Bogadóttir, sambýliskona hans, buðu síðan til
stofu þar sem gestimir þáðu góðgerðir.
Á heimleiðinni var komið við á Eyrarbakka, þar sem
Magnús Karel Hannesson, oddviti Eyrarbakkahrepps,
1 38