Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Síða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Síða 21
FJÁRMÁL Stjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga Á fundi fulltrúaráðs sambandsins 10. júní sl. voru bæj- arstjórarnir Sigurgeir Sigurðsson á Seltjarnarnesi og Snorri Bjöm Sigurðsson á Sauðárkróki kosnir í stjóm Innheimtustofnunar sveitarfélaga til fjögurra ára. Félags- málaráðherra hefur skipað í stjórnina Húnboga Þor- steinsson, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu. Varamenn fulltrúa sambandsins í sömu röð og aðalmenn voru kosnir sveitarstjórarnir Jóhanna Reynisdóttir í Vatnsleysustrandarhreppi og Stefán Gíslason í Hólma- víkurhreppi. Varafulltrúi Húnboga Þorsteinssonar er Sesselja Áma- dóttir, deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu. Sem endurskoðendur Innheimtustofnunar sveitarfé- laga til fjögurra ára vom kosnir bæjarstjóramir Jóhann Sigurjónsson í Mosfellsbæ og Einar Mathiesen í Hvera- gerði og sem varafulltrúar þeirra þau Signður Jensdóttir, forseti bæjarstjórnar á Selfossi, og Jón Pétur Líndal, sveitarstjóri í Kjalameshreppi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þakkaði Sigurjóni Péturs- syni, fráfarandi stjórnarmanni, fyrir vel unnin störf í stjóm Innheimtustofnunarinnar en hann hafði átt sæti í stjórn stofnunarinnar frá ársbyrjun 1989 sem fulltrúi sambandsins. Aðsetur Innheimtustofnunar sveitarfélaga er að Lágmúla 9 í Reykjavík. Forstjóri hennar er Árni Guðjónsson lögfræðingur. Áhugamenn um sveitarstiórnarmál! ✓ Ut eru komnir Sveitarsjóðareikningar 1993 I ritinu er gerð grein fyrir fjárhagslegri afkomu sveitarfélaga árið 1993, bæði í heild og eftir íbúafjölda. Tekjum, gjöldum, eignum og skuldum sveitar- félaga er skipt eftir kjördæmum, kaupstöðum og sýslum. Einnig er fjallað um þjónustu hvers sveitarfélags á sviði dagvistar, félagsmála, fjárhagsaðstoðar o.fl. Ymislegt athyglisvert kemur fram eins og að: Áriðl993 voru gjöld sveitarfélaga 5,7 milljarðar umfram tekjur og er það rösklega tvöfalt meiri halli en árið áður. Heimili sem nutu fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga 1993 voru tæplega 4.800 og hafði fjölgað um 20% frá árinu áður. í árslok 1993 var peningaleg staða sveitarfélaga neikvæðari eftir því sem þau voru fjölmennari. Ritið kemur út árlega, er um 350 bls. og kostar 1.500 kr. Hagstofa íslands, Skuggasundi 3, 150 Reykjavík Sími: 560 9860 Bréfasími: 562 3312 1 47

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.