Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Page 28

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Page 28
VERKASKIPTI RIKIS OG SyEITARFELAGA Hlutverk Sambands íslenskra sveitar- félaga vegna undirbúnings og yíirtöku sveitarfélaga á öllum rekstrarkostnaði grunnskóla Þórður Skúlason framkvœmdastjóri Framsöguerindi á 51 ■ fundi fidlti'úaráðs sambandsins 10. júní sl. Fundarstjóri, góðir fundarmenn. Yfirtaka sveitarfélaga á öllum rekstrar- kostnaði grunnskóla er yfirgripsmesta og vandasamasta verkefni sem sveitarfélögin standa nú frammi fyrir. Því er eðlilegt að taka hér til umfjöllunar hvert hlutverk sam- bandsins eigi að vera í undirbúningi þess máls og þó enn frekar hvaða sameiginlegu verkefnum sambandið eigi að sinna fyrir sveitarfélögin á sviði grunnskólamála í kjöl- far þess að yfirtakan hefur átt sér stað. Starfsemi sambandsins Um árabil hefur starfsemi sambandsins miðast við stefnumótun í einstökum málum og hagsmunagæslu fyr- ir sveitarfélögin sem heild eftir því sem við verður kom- ið og fræðslustarfsemi, útgáfumál o.fl. þ.h. en ekki sér- fræðiþjónustu við sveitarfélög varðandi einstaka mála- flokka. Undantekning frá þessu er Tölvuþjónusta sveitarfé- laga sem selur þjónustu sína til einstakra sveitarfélaga. Einnig hefur einn starfsmaður sérhæft sig í launamálum og unnið með öðrum störfum að kjarasamningagerð fyr- ir Launanefnd sveitarfélaga, sem einstök sveitarfélög eiga aðild að. Hjá sambandinu og samstarfsstofnunum þess, Lána- sjóði og Bjargráðasjóði, vinna nú samtals 11 starfs- menn, þó ekki allir í fullu starfi, auk þess sem þrír starfsmenn vinna við Tölvuþjónustu sveitarfélaga. Það hefur verið stefna sambandsins að halda starfseminni innan þessara marka enda leyfir fjárhagur þess ekki meiri umsvif og ætla má að í flestum tilvikum hafi sá háttur nægt til þess að sinna því hlutverki sem sveitarfé- lögin hafa ætlað sambandinu að gegna. Yfirfærslan - lög og reglugeróir Varðandi það yfirgripsmikla verkefni, sem yfnfærsla alls grunnskólakostnaðar til sveitarfélaga er, getur hlut- verk sambandsins því að óbreyttu ekki orð- ið mjög umfangsmikið. I aðdraganda máls- ins hefur sambandið þó gegnt þýðingar- miklu hlutverki og segja má að stefnu- mörkun þess hafi ráðið úrslitum um fram- gang þess. Stjórnarmenn hafa setið í nefndum er unnið hafa að rnálinu og einstakir starfs- menn aðstoðað nefndirnar varðandi út- reikninga og öflun ýmiss konar upplýsinga bæði frá sveitarfélögum og landshlutasam- tökum, skólum og menntamálaráðuneyti. Þeirri vinnu er hægt að halda áfram með sama hætti og verið hefur. Öðru máli gegnir ef krafist er umfangsmeiri sérfræðivinnu varðandi skólamál og kjara- samningagerð við grunnskólakennara og skólastjómend- ur. í nýjum grunnskólalögum er gert ráð fyrir að settur verði fjöldinn allur af reglugerðum og innihald þeirra varðar sveitarfélögin í mörgum tilvikum rnjög miklu. T.d. er í 20. gr. laganna ákvæði þess efnis að við undir- búning að nýbyggingu eða endurbótum á grunnskólahús- næði skuli farið eftir reglugerð er menntamálaráðherra setur í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um lágmarksaðstöðu og búnað. Að mínu mati er mikilvægt fyrir sveitarfélögin að grannt sé fylgst með því hvemig reglugerðarvaldinu er beitt og þá ekki einvörðungu varðandi þessa tilvitnuðu grein um skólahúsnæðið heldur ýmis önnur atriði er setja á reglugerðir eða nánari reglur um. Sama á við um hugs- anlegar breytingar á grunnskólalögum og framkvæmd þeirra og hvaða áhrif slíkar breytingar og gildistaka ein- stakra þátta grunnskólalaganna eins og einsetning skóla hefur á hag sveitarfélaganna. Námsleyfasjóóur - námsmatskerfi f nýju grunnskólalögunum eru ákvæði þess efnis að sveitarfélögin skuli greiða 1% af dagvinnulaunum kenn- 1 54

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.