Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Qupperneq 38
RÁÐSTEFNUR
Ráðstefna um öldrunarþjónustu -
rekstur og gæði
Um 150 manns sátu ráðstefnu um öldrunarþjónustu -
rekstur og gæði sem haldin var á Hótel Loftleiðum
föstudaginn 17. mars sl.
Að ráðstefnunni stóðu auk sambandsins Félag stjóm-
enda í öldrunarþjónustu, Félag íslenskra öldrunarlækna,
Öldrunarfræðafélag Islands og Öldrunarráð íslands.
María Gísladóttir, forstöðumaður Seljahlíðar, dvalar-
heimilis aldraðra í Reykjavík og formaður Félags stjóm-
enda í öldrunarþjónustu, setti ráðstefnuna en Páll Gísla-
son, yfirlæknir og formaður Félags eldri borgara í
Reykjavík, stjómaði fundum hennar.
Dagskráin hófst með ávarpi Rannveigar Guðmunds-
dóttur, þáv. félagsmálaráðherra, og er ávarp hennar birt
aftan við þessa frásögn.
Jón Bjömsson, félagsmálastjóri Akureyrarbæjar, flutti
síðan erindi er hann nefndi „Síðbúin andmæli gegn
Steingrími Thorsteinsson“ og Asgeir Jóhannesson, for-
maður samstarfsnefndar um málefni
aldraðra og formaður Sunnuhlíðar-
samtakanna í Kópavogi, flutti erindi
er hann nefndi „Abyrgð og athafnir í
þjónustumálum aldraðra“.
Öldrunarþjónusta til sveit-
arfélaganna?
Eftir kaffihlé flutti Egill Olgeirs-
son, formaður stjómar dvalarheimilis
aldraðra sf. í Þingeyjarsýslum, erindi:
„Öldrunarþjónusta til sveitarfélag-
anna? Tryggir það hagkvæman rekst-
ur og aukin gæði?“ og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður sambands-
ins, ræddi um hlutverk sveitarfélaga í
framtíðarskipan öldrunarþjónustu.
Rekstur og gæöi
Eftir hádegisverðarhlé var tekið til
við nánari umræðu um gæði öldrun-
arþjónustunnar. Sigurbjörg Sigur-
geirsdóttir, yfirmaður öldrunarþjón-
ustudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar,
flutti erindi er hún nefndi „Ævikvöldið: heima, á sjúkra-
húsi eða á hjúkrunarheimili?" og Pálmi V. Jónsson, yfir-
læknir á öldrunarlækningadeild Borgarspítala, sagði frá
öldrunarmati í samfélaginu og á öldrunarstofnunum.
Fjármál og framtíöarfyrirkomulag
Hrafn Pálsson, deildarstjóri málefna aldraðra í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, flutti erindi um
framkvæmdasjóð aldraðra, hlutverk, stöðu sjóðsins og
þróun. Fundum ráðstefnunnar lauk síðan með pall-
borðsumræðum fulltrúa stjómmálaflokkanna. Jón Snæ-
dal, öldrunarlæknir og formaður Öldrunarráðs íslands,
stjómaði umræðunum, en þátttakendur í þeim vom Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, upplýsingafulltrúi hjá
Tryggingastofnun ríkisins og núverandi alþingismaður,
fyrir Þjóðvaka, Ásta B. Þorsteinsdóttir, formaður lands-
samtakanna Þroskahjálp og nú varaþingmaður, fyrir Al-
þýðuflokkinn, Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður,
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og Guðrún Helgadóttir, þáv.
Frá pallborösumræöunum á ráðstefnunni. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Ásta B. Þor-
steinsdóttir, Alþýöuflokki, Ásta Ragnheiöur Jóhannesdóttir, Þjóövaka, Jón Snædal
öldrunarlæknir, sem stjórnaöi umræöunum, Guörún Helgadóttir, Alþýðubandalagi, og
Guömundur Hallvarösson, Sjálfstæöisflokki. Gunnar G. Vigfússon tók myndirnar frá
ráöstefnunni sem birtast meö þessari frásögn og ávarpinu sem birt er aftan viö hana.
1 64