Félagsbréf - 01.05.1959, Blaðsíða 46
SIGURÐUR HALLUR STEFÁNSSON
Höfundurinn er 18 ára
Hafnfirðingur,
sem hefur í vetur
stundað nám í 6. bekk
Menntaskólans
T V ö T eí Ö ÍÐ í Reykjavík
SAXXLEIKIIt
Ég jós á hann sandi og aur.
Ég kastaði til hans hnullungum,
en allir sveigðu af leið.
Ég varpaði að honum eiturspjótum,
skaut á hann úr fallbyssum,
færði honum geislavirkar kjarnasprengjur;
þær sökuðu einhvern annan, ekki hann.
Ég sá ekki, að ég minnkaði sífellt.
Nú er ég örlítið sandkorn.
Á morgun kemur hann og stígur á mig.
KIMIVER
Ég er ræðumaðurinn á torginu,
leikarinn á leiksviðinu,
spilarinn í hljómlistarhöllinni.
Þegar ég tala, heyrið þið skoðanir ykkar og málróm,
þegar ég leik, sjáið þið svipbrigði ykkar og limaburð,
þegar ég spila, skynjið þið tilfinningar ykkar og hjarta.
é
Ég er maðurinn, sem þið sjáið alls staðar, en þekkið hvergi,
og þegar þið ræðið um mig, segið þið:
einhver sagði
einhver gerði
einhver fann til.