Morgunblaðið - 20.03.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kaupfélag Eyfirðinga kaupir mjólkurkvóta í auknum mæli
Vilji til að aðstoða bændur
við að halda kvóta heima
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur að
undanförnu keypt töluvert magn
af mjólkurkvóta sem það hefur
selt til bænda á félagssvæðinu.
Árni Magnússon fjármálastjóri
KEA segir að ætlunin sé að veija
þann kvóta sem fyrir er í byggð-
inni og stefnt að því að ná til baka
þeim kvóta sem seldur hefur verið
úr héraðinu síðustu ár.
Veija kvóta
í heimahéraði
Fyrirkomulagið er með líku sniði
og hjá Kaupfélagi Skagfirðinga
sem undanfarin misseri hefur
keypt mjólkurkvóta sem deilt hefur
verið út til bænda, en Árni segir
Leikfélag
Akureyrar
Síðasta
sýning á
Kossum og
kúlissum
SÍÐUSTU forvöð eru að sjá
sýningu Leikfélags Akureyrar
og Kórs Akureyrarkirkju á
verkinu Kossum og kúlissum
næstkomandi laugardags-
kvöld, 22. mars.
í verkinu er brugðið upp
skemmtilegum svipmyndum
úr nokkrum vinsælustu verk-
unum sem sett hafa verið á
svið í Samkomuhúsinu, en
sýningin var sett saman í til-
efni af 90 ára afmæli hússins.
Kór Leikfélags Akureyrar
gegnir veigamiklu hlutverki í
sýningunni og margir frægir
og vinsælir söngvar hljóma
af sviðinu. Meðal verkanna,
sem sungið og leikið er úr í
Kossum og kúlissum, eru hin
sígildu íslensku ieikrit Piltur
og stúlka og Skugga-Sveinn
og söngleikirnir Meyjarskem-
mann, Nitouche, Edith Piaf
og My Fair Lady.
Lúðrasveit
Akureyrar 55 ára
Tónleikar 1
Laugaborg
LÚÐRASVEIT Akureyrar
efnir til tónleika undir stjórn
Atla Guðlaugssonar í Lauga-
borg, Eyjafjarðarsveit, á laug-
ardag kl. 15, í tilefni 55 ára
afmælis sveitarinnar. Sér-
stakur gestur verður Lúðra-
sveitin Svanur undir stjórn
Haralds Árna Haraldssonar.
Þá leikur léttsveit Lúðrasveit-
ar Akureyrar.
Nokkrir félagar í sveitun-
um hafa verið með í hálfa
öld, þar á meðal Gísli Ferdin-
andsson skósmiður sem held-
ur upp á 50 ára lúðrasveitar-
afmæli. í tilefni af því leika
sveitirnar saman lúðrasveit-
armarsinn Stars and Stripes
forever eftir marsakónginn
John Philip Sousa, en þar
blæs Gísli einleik á piccolo-
flautu.
Aðgangseyrir er 500 krón-
ur en ókeypis fyrir börn undir
16 ára aldri og eldri borgara.
165 krónur greiddar fyrir lítrann
að lán Kaupfélags Eyfirðinga til
bænda vegna kvótakaupa séu með
markaðsvöxtum.
„Við höfum í auknum mæli ver-
ið að kaupa kvóta og það má segja
að með því séum við að veija kvót-
ann í heimahéraði og helst reyna
að ná einhveiju af því til baka sem
við höfum misst þannig að við
getum haldið okkar stöðu. Mjólkur-
samlögin verða að hafa hráefni til
vinnslunnar, annars standa menn
bara uppi með fjárfestinguna
ónýtta,“ segir Árni.
KEÁ hefur m.a. keypt kvóta af
búum á Suðurlandi, Áusturlandi
og úr Kjósinni, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var
nýlega keyptur 90 þúsund lítra
kvóti þaðan og voru greiddar 165
krónur fyrir lítrann.
„Það er fullur vilji fyrir því að
aðstoða bændur við að halda sínum
kvóta hér og styrkja þannig stöðu
þeirra," segir Árni.
Verðið of hátt
Benedikt Hjaltason bóndi á
Hrafnagili segir að verð á mjólkur-
kvótanum, 160-170 krónursé allt-
of hátt og það taki bændur 7-8
ár að greiða hann upp. Með því
að auka framleiðslugetuna sé
bóndinn hins vegar að ná fram
betri nýtingu á sína ijárfestingu
og vinnu. Að hans mati er eðlilegt
verð á mjólkurkvóta um 100-110
krónur. „Skagfirðingar riðu á vað-
ið með þessi kvótakaup og það fór
kvóti héðan af svæðinu vestur. Það
hefur hins vegar orðið vakning hér
á samlagssvæðinu og okkur hefur
tekist að ná til baka því sem við
misstum,“ segir Benedikt.
Hann segir að með þessari til-
færslu sé mjólkurframleiðendum
að fækka en þeir um leið að
stækka. Einnig sé framleiðslan í
flestum tilfellum að færast nær
afurðastöðvunum.
Halastjaman
gleður augað
HALASTJARNAN Hale-Bopp
hefur sést vel hér á landi í heið-
skýru veðri að undanförnu og
hafa áhugamenn um stjörnu-
fræði notað hvert tækifæri sem
gefst til að beija hana augum.
Halasljarnan er ein sú bjartasta
sem sögur fara af og með tvo
hala. Hörður Geirsson, ljós-
myndari á Akureyri brá sér upp
fyrir bæinn aðfararnótt laugar-
dags og tók þessa mynd af Hale-
Bopp. Fremst á myndinni er
malbikunarstöð Akureyrarbæj-
ar og svo ljósin frá bænum.
Hörður notaði 3200 asa
svart/hvíta Kodak filmu og
pressaði hana eins og kallað er
upp í 25000 asa.
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
SNÆDÍS Lilja Ingadóttir,
Skautafélagi Reykjavíkur, á
svellinu, en hún varð í öðru
sæti í flokki 14 til 15 ára.
Islandsmót
í listhlaupi
UM fjörutíu þátttakendur tóku þátt
í Islandsmóti í listhlaupi sem haldið
var á Akureyri um síðustu helgi.
Veðrið var eins og best verður á
kosið, bjart og stillt, en þó nokkurt
frost.
Jódís Eiríksdóttir, Skautafélagi
Akureyrar, varð í fyrsta sæti í flokki
11 ára og yngri. Hildur Ómarsdótt-
ir og Sólveig Gunnarsdóttir urðu í
öðru og þriðja sæti en þær keppa
báðar fyrir Skautafélag Reykjavík-
ur._
í flokki 12 til 13 ára varð Sigur-
laug Árnadóttir, Skautafélagi
Reykjavíkur, hlutskörpust, Rakei
Þorsteinsdóttir, Skautafélagi Akur-
eyrar, varð í öðru sæti og Vigdís
Ósk Sveinsdóttir, Skautafélagi
Reykjavíkur, í því þriðja.
Linda Viðarsdóttir, Skautafélagi
Reykjavíkur, varð í fyrsta sæti í
flokki 14 til 15 ára, Snædís Lilja
Ingadóttir, Skautafélagi Reykjavík-
ur, varð í öðru sæti og Svanhildur
Hafliðadóttir, Skautafélagi Akur-
eyrar, í þriðja sæti.
í kvennaflokki varð Ólöf Ólafs-
dóttir í fyrsta sæti og Rósa Ásgeirs-
dóttir í öðru sæti, en báðar koma
úr röðum Skautafélags Reykjavík-
ur.
Skip ÚA veiddu mest af þorski í fyrra
Mest aukning í út-
hafskarfa og rækju
Samsetning afla breyttist milli ára
FISKISKIP Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. komu með alls 19.782
tonn af fiski á síðasta ári. Mest
veiddist af þorki eða rúmlega 5.400
tonn, tæp 5.300 tonn af karfa,
2.500 tonn af ýsu, 2.300 tonn af
úthafskarfa, tæp 2.000 tonn af
grálúðu og tæp 500 tonn af öðrum
afurðum.
Heildaraflinn
dróst saman
Samsetning aflans breyttist
nokkuð milli ára, þorskaflinn jókst
nokkuð og er sú tegund sem mest
var veitt af. Þá varð mikil aukning
í rækjuveiði miðað við árið 1995.
Rækjuaflinn jókst um rúm 900
tonn eða tæp 85% og þá jókst
veiði á úthafskarfa verulega.
Þetta kemur fram í nýjasta frétta-
bréfi ÚA.
Heildaraflinn dróst aðeins sam-
an milli ára og á það sér eðlilegar
skýringar að sögn Sæmundar Frið-
rikssonar, útgerðarstjóra. Meiri
áhersla var lögð á rækjuveiðar og
þar tekur lengri tíma að veiða hvert
tonn. Minni grálúðuveiði tengist
þessu einnig en þau skip sem áður
stunduðu grálúðuveiðar voru á
rækjuveiðum stóran hluta af árinu.
Minni karfaveiði skýrist af sam-
drætti í aflaheimildum.
Sem fyrr sóttu ÚA-skipin tals-
vert á úthafið. Af tæplega 2.000
tonna rækjuafla, komu rúmlega
1.300 tonn af Flæmska hattinum.
Veiði á úthafskarfa jókst úrtæpum
1.300 tonnum árið 1995 í 2.300
tonn í fyrra. Úr Smugunni í Bar-
entshafi komu 650 tonn og í heild
jukust því úthafsveiðarnar milli
ára.
Marel opnar skrif-
stofu á Akureyri
MAREL hf. hefur formlega opnað
skrifstofu á Akureyri. Hún er að
Hjalteyrargötu 20, í húsnæði
Slippstöðvarinnar á Akureyri og
veitir Guðjón Stefánsson fiskiðnað-
armaður henni forstöðu.
Fram kom í máli Geirs A. Gunn-
laugssonar framkvæmdastjóra
Marels við opnunina að viðræður
stæðu yfir við Rafeyri um að fyrir-
tækið taki að sér viðgerðir og við-
hald á tækjum Marels á Norður-
og Austurlandi, en starfssvæði
skrifstofunnar er í þeim landshlut-
um. í kjölfar þess eykst þjónusta
fyrirtækisins við viðskiptavini sína
í landshlutunum.
Marel og Slippstöðin hafa átt
samstarf undanfarin misseri og
vænti Ingi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar,
þess að í framtíðinni gæti það orð-
ið enn meira. Um þessar mundir
vinna fyrirtækin að endurbótum á
rússneskum togara.
Guðjón Stefánsson sagði að á
Norður- og Austurlandi væru fjöl-
margir viðskiptavinir Marels og
tæki frá fyrirtækinu væru í flestum
skipum og fiskvinnslum á svæðinu.
Aukin hlutdeild innanlands
Starfsemi Marels hefur á undan-
förnum árum verið að þróast úr
því að framleiða vogir eða stök
tæki til fiskvinnslu í að hanna og
framleiða heildstæð tölvustýrð
vinnslukerfi fyrir matvælaiðnað.
Fyrirtækið jók mjög hlutdeild sína
á innanlandsmarkaði á síðasta ári,
eða nánast um helming frá árinu
á undan, en kerfi í fiskvinnslu og
vinnsludekk um borð í skipum eiga
þar verulegan hlut að máli. Gert
er ráð fyrir enn frekari aukningu
í sölu á Islandi á þessu ári. Ráðnir
voru starfsmenn til að sinna heima-
markaði auk annarra starfsmanna
Marels. Óskar Óskarsson sinnir
Suður- og Vesturlandi og Guðjón
Stefánsson sem fyrr segir Norður-
og Austurlandi.