Morgunblaðið - 20.03.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997 47
MÚSIKTILRAUNIR
Lokakvöld
undanúrslita
Undanúrslitum Músíktilrauna Tónabæjar lýk-
ur í kvöld. Árni Matthíasson segir að þá
sé jafnan mikið um landsbyggðarsveitir sem
freisti þess að komast í úrslit annað kvöld.
UNDANÚRSLITUM Músíktilrauna
Tónabæjar lýkur í kvöld en þá keppa
níu hljómsveitir hvaðanæva að um
þau sæti sem eftir eru í úrslitum sem
fram fara annað kvöld.
Líkt og jafnan áður er mikið um
landsbyggðarsveitir í kvöld, en þær
grípa gjarnan til þess að fá að leika
síðasta undanúrslitakvöldið til að
vera við öllu búin ef sveitin kemst í
úrslit daginn eftir. Þannig leika í
kvöld tvær Húsavíkursveitir, ein ísf-
irsk, ein kemur austan af Héraði, ein
frá Selfossi, ein frá Blönduósi og ein
úr Stykkishólmi. Þrjár eru svo af
höfuðborgarsvæðinu.
Gestir í kvöld eru hljómsveitin
Stjömukisi, sem sigraði í síðustu
Músíktilraunum og leikur áður en
tilraunimar hefjast, og Páll Óskar
Hjálmtýsson sem treður upp í lok
kvöldsins á meðan atkvæði eru talin.
Úrslit Músíktilrauna eru svo annað
kvöld, en þá leikur Botnleðja áður
en sveitirnar hefja leik sinn og síðan
á meðan atkvæði eru talin. Aðstand-
endur tilraunanna leggja áherslu á
að enginn fær inngöngu úrslitakvöld-
ið sem neytt hefur áfengis.
Frá upphafi hafa verðlaun Músíkt-
ilrauna verið hljóðverstímar. í fýrstu
verðlaun em 25 tímar í Sýrlandi,
fullkomnasta hljóðveri landsins, sem
Skífan gefur. Önnur verðlaun era
25 tímar í Gijótnámunni frá Spori
hf. og þriðju verðlaun era 20 tímar
í Stúdíói Hljóðhamri, sem hljóðverið
gefur.
Til viðbótar eru svo 20 hljóðvers-
tímar í Stúdíói Hellinum, sem hljóð-
verið gefur, en þeir era ætlaðir at-
hyglisverðustu hljómsveitinni að
mati dómnefndar. Aukaverðlaun era
svo gítar frá Hljóðfærabúð Steina
sem besti gítarleikarinn hlýtur, besti
söngvarinn fær hljóðnema frá Tóna-
búðinni, besti bassaleikarinn úttekt
frá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur og
besti tiymbillinn úttekt frá Samspili.
Aðrir styrktaraðilar tilraunanna eru
Hard Rock Café, Flugleiðir, Japís og
Domino’s Pizza.
Mamma hestur
MAMMA HESTUR heitir hljómsveit frá ísafirði. Sveitina skipa Valdimar Jó-
hannsson gítarleikari og söngvari, Ásgeir Sigurðsson, sem leikur á Welson-
skemmtara, G. Örn Gunnarsson tromuleikari, Guðmundur B. Halldórsson gítar-
leikari, Háldán B. Hálfdánsson bassaleikari og Stefán Önundarson sem blæs
í lúður og dansar. Meðalaldur liðsmanna er rétt rúm 20 ár.
Innvortis
ÖNNUR Húsavíkursveit verður með
þetta loka undanúrslitakvöld, sú heitir
Innvortis og leikur pönkað rokk. Liðs-
menn hennar eru Snæbjörn Ragnars-
son gítarleikari og söngvari, Brynjólf-
ur Sigurðsson bassaleikari, Arngrímur
Arnarson trommuleikari og Björgvin
Sigurðsson gítarleikari og öskrari.
Þeir eru allir á nítjánda árinu.
Roð
HUÓMSVEITIN Roð er langt að
komin, frá Húsavík, norðan rokk-
baugs. Roðmenn eru Guðmundur Sva-
varsson bassaleikari, Gunnar Sigurðs-
son trommuleikari, Júlía Sigurðardótt-
ir söngkona, Ragnar Hermansson og
Óskar Valgarðsson gítarleikarar. Með-
alaldur liðsmanna er óræður, en sveit-
in ku leika sláturhúsarokk.
Þórgunnur nakin
ÞÓRGUNNUR nakin heitir hljómsveit
frá Selfossi og reyndar Hólmavík líka.
Sveitina skipa Gunnlaugur Pétursson
og Sigurgrímur Jónsson gítarleikarar,
Rúnar Már Geirsson trommuleikari,
Arnar Snæberg Jónsson söngvari og
Magnús Halldór Pálsson bassaleikari.
Þeir segjast leika hart rokk, en meðal-
aldur liðsmanna er rúm tuttugu ár.
Pistada baba
ALDURSFORSETAR Músíktilrauna
að þessu sinni skipa Reykjavíkursveit-
ina Pistada baba. Þeir eru Baldvin
Snæland trommuleikari, Lúðvík Þóris-
son söngvari, Ómar Sævar Gíslason
og Björgvin Sævarsson gítarleikarar
og Þröstur Hafdísarson bassaleikari.
Meðalaldur þeirra félaga er rúm 27
ár en þeir segjast leika gítarpopp.
Köngurlóarbandið
KÖNGURLÓARBANDIÐ er hljómsveit frá Egilsstöðum sem
leikur allrahanda gleðitónlist. Sveitina skipa Logi Helguson
sem leikur á bassa og syngur, Ágúst Magnússon sem leikur
á gítar, Sigurður Þorbergsson sem leikur á trommur og
Bjöm Ingi Vilhjálmsson sem syngur og leikur á gítar.
Lagleysa
LAGLEYSA er úr Reykjavík og leikur melódískt rokk.
Liðsmenn eru Friðrik R. Garðarsson bassaleikari, Markús
Máni Mikaelsson söngvari, Arnar Hallgrímsson trommu-
leikari og Einar Þór Egilsson gítarleikari. Meðalaldur þeirra
félaga er rétt rúm sextán ár.
Vatn
ÚR STYKKISHÓLMI kemur hljóm-
sveitin Vatn. Hana skipa Þorsteinn
Eyþórsson bassaleikari, Eiríkur Páls-
son trommuleikari, Kári Bergsson gít-
arleikari og söngvari og Svanur Már
Grétarsson gítarleikari. Sveitin leikur
kröftugt rokk, en meðalaldur sveitar-
manna er rúm átján ár.
0101
PÖNKROKKSVEITIN 0101 kemur
frá Blönduósi og er skipuð Steindóri
Sighvatssyni bassaleikara, Ólafi Tóm-
asi Guðbjartssyni trommuleikara,
Regvi Snorrasen gítarleikara og Ás-
geiri Erni Jóhannssyni söngvara. Með-
alaldur þeirra félaga er hálft átjánda
ár.
Soðin fiðla
SOÐIN FIÐLA heitir hljómsveit úr
Reykjavík sem skipuð er Arnari Snæ
Davíðssyni og Agli Tómassyni
gítarleikurum, en Egill syngur að auki,
Gunnari Erni Svavarssyni bassaleikara
og Ara Þorgeiri Steinarssyni trommu-
leikara. Þeir segjast leika nýrokk en
meðalaldur þeirra er tæpt 21 ár.
Utivistardaaar
hjá 66’N
Afslátturinn gildir í verslunum 66°IT í Reykjavík
og á Ákureyri, einnig í Utilíf í G-lœsibæ
og versluninni Tákn á Húsavík.