Morgunblaðið - 04.02.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1982
15
Hér sést greinilega að búið er að friða háásinn og nær friðunin alveg niður
að götubrún Vesturbrúnarmegin gegnt Áskirkju. Spurningin er: Hvar eiga
bifreiðastæði kirkjunnar að koma?
NÁTTÚRUVÆ.TTI Á
LAUGARÁSI
'jÉSL \
400r
hn:v
pkt
1
í' .;CKTANNA:
X
»9155.59
; 0 1 44.09
■19149.?;
]91 '!9.
. ?<3
19017.75
19037.16
17852.
17855.
17885.30
17029.27
17916.55
17842.99
17769.37
17745.2P
hús niður á þessari fallegu hæð.
Við íbúar húsanna í nágrenninu
bárum ugg í brjósti og ekki að
ástæðulausu. Langan tíma vor og
haust kasta þessir risar köldum
skuggum niður yfir íbúðahverfin
vesturundan og byrgja sólarsýn.
Ég sleppi því hér að fjölyrða um
samræmi þessara hús og byggðar-
innar í næsta nágrenni. Éinu sinni
var áætlað að byggja fimm slík
háhýsi á háhæðinni, en einhver
mér óþekktur aðili hlýtur að hafa
komist í spilið og haft vit fyrir
mönnum, því skyndilega var
ákveðið að reisa ekki fleiri háhýsi
þarna en þessi þrjú sem þegar
voru risin. Nú viðurkenna margir
arkitektar og sumir skipuleggj-
endur að bygging háhýsa á þess-
um stað hafi verið misskilningur
og segja að nú verði að bjarga því
sem bjargað verður með þeirri
byggð sem nú á að rísa á háholt-
inu, sunnan þessara þriggja
steinbákna. Nú er sagt að það eigi
að hanna hús sem verði til þess að
þarna skapist nokkurt jafnvægi á
móti þessum stóru húsum sem
standa þarna eins og nátttröll sem
hafa dagað uppi.
Auðvitað væri best að ekki yrði
byggt meira á háásnum, en nú
hafa ráðandi öfl í borginni á
stefnuskrá sinni að „þétta" byggð-
ina og þá er oft ekki annað fyrir
hendi en svokölluð græn svæði og
sérstæðir staðir.
Miðað við þá stefnu er illskárra
að þarna komi nokkur lítil fallega
hönnuð hús en tvö háhýsi til við-
bótar.
En í ljósi fenginnar reynslu sem
hér hefur stuttlega verið lýst er
það ef til vill ekki undarlegt þó að
ég óttist að nú sé að hefjast loka-
atlagan að þessum fallega stað og
hann endanlega eyðilagður.
— Og þá kem ég loks að því at-
riðinu sem varð þess valdandi að
ég fór að skipta mér af þessu máli
og reyna að setja skoðanir mínar
fram, en það var auglýsing frá
Náttúruverndarráði um náttúru-
vætti á Laugarási. Um leið og ég
leit á teikninguna sem fylgdi aug-
lýsingunni brá mér. Var það
raunverulegt að ekki ætti að friða
stærra svæði en þetta? Ótrúlegt!
En ekki bætti úr skák þegar ég fór
að athuga málið betur. — í suður-
hlíð Laugarássins er risin kirkja
Ássóknar. Nokkuð umdeilt hús á
þessum stað, en þarna er kirkjan
okkar risin. Var það sem mér
sýndist á teikningu og auglýsingu
um náttúruvætti á Laugarási að
hvergi væri gert ráð fyrir bif-
reiðastæðum við kirkjuna og fé-
lagsheimilið?
Þarna var sýnt með svörtu á
hvítu að háhæð Laugarássins var
friðuð niður að götubrún (það er
engin gangstétt þeim megin göt-
unnar) á nokkur hundruð metra
kafla andspænis kirkjubygging-
unni. Ég spyr — hvar eiga bif-
reiðastæðin að vera? Við sjálfa
kirkjuna eru þau óhugsandi eins
og allir vita sem til þekkja.
Kirkjubygging sem þessi hlýtur að
þurfa um eitt hundrað bifreiða-
stæði ef gert er ráð fyrir sæmi-
legri kirkjusókn. Vesturbrún er
mjó tvístefnugata. Stórhætta
skapast ef bifreiðum er lagt við
báðar vegbrúnir og hafa orðið af
því slys þarna. íbúðarhús eru ná-
lægt kirkjunni á báða vegu. Svig-
rúm er því ekki fyrir hendi
brekkumegin götunnar og alls
ekki á götunni sjálfri. Bifreiða-
stæði verður kirkjan að fá og hiýt-
ur að fá en þau verða hvergi tekin
nema úr hinu friðlýsta svæði.
Svona vinnubrögð eru ekki til
fyrirmyndar. Það er greinilegt að
tillagan um náttúruvætti sem
teiknuð var hjá Borgarskipulagi í
janúar 1980 fær ekki staðist en
hún er þó samþykkt athugasemda-
laust af Náttúruverndarráði í nóv-
ember 1981 og síðar af ráðuneyti.
Nema að þarna eigi að vera frið-
lýst bifreiðastæði. Það myndi
ábyggilega vekja mikla athygli og
staðurinn yrði fjölsóttur af ferða-
mönnum.
Ef vinnubrögð sem þessi eru
skoðuð í ljósi fenginnar reynslu
vona ég að það sé skiljanlegt að
ekki er hægt að þegja lengur. Nú
lítur út fyrir að eina lausnin sé,
eins og komið er, að skerða að
nokkru leyti þann blett sem Nátt-
úruverndarráð hefur ákveðið að
friða. Best væri að komast hjá því.
Ekki verður hægt að bæta að
fullu fyrir þau spjöll sem verða ef
bifreiðastæðin verða tekin af hinu
friðlýsta svæði. Ég legg til að frið-
aða svæðið verði stækkað til norð-
urs um leið og auglýsing um nátt-
úruvætti á Laugarási verður
endurskoðuð og af byggt verður
meira á ásnum að syðsta húsaröð-
in sem nú er áætlað að byggja
Vesturbrúnarmegin, verði ekki
leyfð. Einnig þyrfti að minnka
umfang húsaþyrpingarinnar við
Austurbrún. Húsin eru of mörg.
Okkur hefur lengi grunað að það
ætti að byggja í holtinu og varla
trúum við lengur á það kraftaverk
að það fái að vera að mestu í friði.
Ég vona að skipulagsnefnd og
borgaryfirvöld láti ekki það sama
henda og í byggingarsögu Vestur-
brúnar að þarna rísi í raun hús af
ýmsum gerðum, tilbrigðum og
hæðum. Ef byggja á verður að
halda fast við þau ákvæði að reist
verði fallega hönnuð tveggja hæða
hús, alls samræmis sé gætt og
reynt á allan hátt að forðast þau
mistök sem gerð hafa verið þarna
í nágrenninu.
Um holtið sjálft, hinn óbyggða
hluta þess, mætti skrifa langt mál.
Ég vona að skipuleggjendur og
ráðamenn fari varfærnum hönd-
um um þann gróður og náttúru
sem þar er að finna svo að það geti
í framtíðinni orðið til gagns og
gleði fyrir íbúana. Þá er ég ekki
síst með í huga börnin á svæðinu
og gamla fólkið á Dvalarheimili
aldraðra sjómanna sem mikið
stundar göngur um Vesturbrún
sér til hressingar og okkur til án-
ægju. Á friðaða svæðinu þarf að
skapa þessu fólki aöstöðu þar sem
það getur á gönguferðum sinum
tyllt sér niður og notið útivistar og
fagurs útsýnis.
— Að lokum þetta. Borgararnir
treysta á Náttúruverndarráð og
vel menntaða skipuleggjendur.
Þeirra ábyrgð er mikil. Þeir verða
ætíð að gera sér grein fyrir því að
þeir eru að fara höndum um nátt-
úru, lífríki og umhverfi og þeir
þurfa alltaf að hugsa til langrar
framtíðar. Framkvæmdir sem
gerðar eru út frá ákvarðanatöku
þeirra hafa varanleg áhrif á um-
hverfi og lífríki landsins.
Þórir Nigurðsson,
Vesturbrún 6,
Reykjavík.
GÓÐU
MYNDIRNAR
ÞÍNAR EIGA STÆKKUN
SKILIÐ, KOMDU MEÐ KODAK
FILMUNAI FRAMKÖLLUN
OG NÝTTU ÞÉR
STÆKKUNARTILBOÐIÐ
HflNS PETERSEN HF
TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK
ytsala
Utsala
20 »150% afsláttur.
Geriö kjarakaup.
Skóbúðin Mílanó,
Laugavegi 20.
Lengi getur
gott batnað
Nú er bragðgóða Libby’s
tómatsósan komin í nýjar og
betri umbúðir; handhægar
flöskur með víðum hálsi.
Auðveldara að hella úr og
halda á.
Libby>:
l.flokks tómatsósa í
Lflokks umbúðum
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR HF 80 23
...auðvitaö
GRUnDIG
|92 <ir. j ÍÍ£ [ I í ilív Stíp/ i'l I. S< ( ÖS 1 J
I J O II >1> t 1
LJ
n
LaugavegilO, sími 27788
sj m'nt iill'ti sii/jgi'i/ 115í etrs"5'Lt> nili'ni;;