Morgunblaðið - 09.03.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
_______A-------—--------------------
23
Einkunnagjöfin
Njarðvík:
Jóna.s Jnhanncsson 9
Valur Ingimundarsun 8
Árni Lárusson 8
Gunnar Þorvardarson 6
Ingimar 4
Brynjar Sigmundsson 3
Albert Edvaldsson 3
Jón V. Matthíasson 3
ísak Tómasson 3
ÍR:
Hjörtur Oddsson 6
Jón Jörundsson 6
Benedikt Ingþórsson 6
Kristinn Jörundsson 5
Helgi Magnússon 4
Björn Leósson 3
Sigurður 3
• íslandsmeistarar UMFN Marinó Einarsson liðsstjóri. Júlíus Valgeirsson, Valur Ingimundarson, Jón Viðar
Matthíasson, Ingimar Jónsson, Jónas Jóhannesson, Gunnar Þorvarðarson, Hilmar Hafsteinsson, þjálfari. Fremri
röð: Albert Eðvaldsson, ísak Tómasson, Danny Shouse, Brynjar Sigmundsson og Árni Lárusson.
Ljósm. Kristján Einarsson.
ÍR — UMFN
58—86
sök, að Njarðvíkingarmr léku frá-
munalega iNa. Um leið og þeir kkw
vegar fóru f gang kvað við annan
tón. Þeir náðu strax 10 stiga forskoti
og héldu því átakalítið til hlés.
Síðari hálfleikurinn var algert
formsatriði. Um miðjan hálfleik
var munurinn orðinn 20 stig og
einungis spurning um hversu stór
sigur Njarðvíkinga yrði. Spenna
var aldrei í leiknum og vafalítið
má finna ágætis skýringar á því.
ÍR-ingar léku t.d. aldrei allan leik-
inn það sem heitir á körfuknatt-
leiksmáli vörn. Hvað eftir annað
ristu Njarðvíkingar máttlausan
varnarvegg ÍR-liðsins á hol og
opnuðu fyrir hinum lágvaxna en
lunkna Arna Lárussyni. Hann
skoraði líka 17 stig í leiknum, flest
eftir að IR-vörnin hafði galopnast
á miðjunni.
Ekki bætti úr skák, að einn
besti maður IR-liðsins, Benedikt
Ingþórsson, lenti fljótt í villu-
vandræðum og áður en varði var
hann kominn með 4 villur. Þá
fimmtu fékk hann fyrir kjafthátt.
A.m.k. tvær villanna voru út í hött
frá undirrituðum séð. Þá hitti Bob
Stanley ekki í körfuna fyrr en eft-
ir 10 mínútna leik og þá úr víta-
skotum. Jón Jörundsson var hvíld-
ur óeðlilega lengi á bekknum. Þeg-
ar þetta lagðist allt saman var
e.t.v. ekki að undra að IR-vélin
hikstaði mjög. Kristinn Jörunds-
son var ákaflega ólíkur sjálfum
sér og má greinilega muna sinn
fífil fegurri. Hann hefur átt við
meiðsl að stríða í vetur og er
greinilega fjarri sínu besta formi
nú.
Undir lok leiksins gátu Njarð-
víkingar leyft sér að setja alla
varamennina mn á og það breytti
nánast engu. Þeir héldu í við ÍR-
inga, sem voru fyrir lifandi löngu
búnir að missa allan áhuga á
leiknum, enda vonlítil barátta eins
og komið var fyrir þeim. t leikslok
fögnuðu Njarðvíkingar eðlilega
innilega, því titillinn var í höfn.
Vart verður því þó neitað að ekk-
ert lið hefur þurft að hafa eins
lítið fyrir sigri í íslandsmótinu
undanfarin ár og Njarðvík nú. Það
voru aðeins Framarar, sem
ógnuðu þeim um tíma, en urðu svo
fórnarlömb óheppni og klaufa-
skapar í bland. Þar með var
keppnin úti.
Jónas Jóhannesson átti snilld-
arleik með Njarðvik að þessu sinni
og hefur vart í annan tíma leikið
betur. Þá var Valur Ingimundar-
son afar góður og ennfremur Árni
Lárusson. Danny Shouse hafði
hægar um sig en oftast, kannski
vegna þess að hann þurfti ekki að
beita sér eins mikið.
Hjá ÍR var fátt um fína drætti.
Jón Jör. og Benedikt, svo og Hjört-
ur komust ágætlega frá sínu án
þess þó að sýna einhverja úrvals-
deildartakta. Aðrir stóðu þessum
langt að baki og með slakan Kana,
eins og Bob Stanley, er ekki við
neinum afrekum að búast.
Stig UMFN: Valur Ingimund-
arson 25, Danny Shouse 19, Árni
Lárusson 17, Gunnar Þorvarðar-
son 8, Jónas Jóhannesson 7, Ing-
imar Jónsson 6, Brynjar Sig-
mundsson og Albert Eðvaldsson 2
hvor.
Stig ÍR: Bob Stanley 20, Jón Jör-
undsson 12, Hjörtur Oddsson 8,
Kristinn Jörundsson 6, Benedikt
Ingþórsson 6, Helgi Magnússon,
Björn Leósson og Sigurður 2 stig
hver. — SSV.
• Jónas fær „tolleringu“ hjá félögum sínum eftir aö
íslandsmeistaratitillinn er í höfn annaö áriö í röö.
Ljósm. Kristján Einarsson.
Hilmar Hafsteinsson:
„Átti alltaf von á því að
viö myndum verða meistarar“
„Ég tel að það hafi komið okkur
mjög til góða, að við byrjuðum okkar
undirbúning snemma og vorum
komnir almennilega í gang þegar
hin liðin voru varla byrjuð almenni-
legan undirbúning. Enda unnum við
fyrstu sex leikina okkar,“ sagði
Hilmar Hafsteinsson, þjálfari Njarð-
víkinganna, en ég spjallaði við hann
að leikslokum.
„Þetta er góður árangur hjá lið-
inu, en innst inni átti ég alltaf von
á því að við ynnum titilinn. Það
má ekki gleyma því að við höfum
misst 6 landsliðsmenn undanfarið.
Þetta er atriði, sem virðist hafa
gleymst. Við erum með ungt lið,
sem á framtíðina fyrir sér.“
— Ertu ekki hræddur um að lið-
ið hrapi niður við það að missa
Danny Shouse?
„Nei, í sjálfu sér ekki. Það er til
fullt af góðum leikmönnum. Við
höfum gott að því að losna við
Danny og hann hefur gott af því
að komast eitthvað annað. Sjálfur
er ég þeirrar skoðunar að Kanarn-
ir eigi ekki að vera hérna lengur
en svona eitt ár í einu.“
— Hvernig leggst hugsanlegt
bann á útlendinga í körfunni í
þig?
„Eg er á móti því eins og ætlun-
in er að framkvæma það. Það er
ekki nóg að setja bara bann á út-
lendingana. Það verður þá um leið
að auka menntun þjálfara og laga
dómaramálin heil ósköp. Þau hafa
verið verulegur höfuðverkur og ég
held að dómararnir viðurkenni
það sjálfir. Þá er ég þeirrar skoð-
unar, að við eigum að hafa erlend-
an dómara og láta hann dæma
alla úrvals- og 1. deildarleiki á
móti íslenskum dómurum. Það
myndi ekki vera svo ýkja dýrt
fyrirtæki fyrir liðin, en skilaði sér
vafalítið."
— Þegar þú lítur yfir mótið,
sem nú er að ljúka hvað finnst þér
þá vera minnisstæðasti leikurinn?
„Tvímælalaust Njarðvík:Fram
fyrir sunnan, þ.e. seinni leikur lið-
anna þar. Ef ég ætti hins vegar að
útnefna leikmann mótsins væri ég
ekki í nokkrum vafa. Fyrir mér er
Jónas Jóhannesson maðurinn á
bak við sigur Njarðvíkurliðsins í
vetur.“
• Hmn bráöefnilegi Valur
Ingimundaraon halur hik-
iö mjög vel meö UMFN í
vetur. Hér er Valur á fuHri
terö í leiknum gegn ÍR.
NJARÐVfKINGAR tryggðu sér fs-
landsmeistaratitilinii í körfuknatt-
leik annað árið í röð með auðveldum
og fyrirhafnarlitlum sigri yfir ÍR-
íngum í íþróttahúsi Hagaskólans i
sunnudag. Lokatölur urðu 86—58
Njarðvík í vil eftir að staðan hafði
verið 39-28 í hálfleik.
Það var efcki nema fyrstu 5 minút-
ur leiksias að eittbvert jafnræði var
með liðunum. Og þi mest fyrir þi
Kðrtuknattlelkur
Njarðvík tryggói sér titil-
inn með átakalausum sigri
- yfirburðirnir voru miklir er þeir unnu ÍR á sunnudag í Hagaskóla