Morgunblaðið - 08.04.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, JFÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
41
Hróf írá \ osiur-luskahindi
A5 hugsa sér!
Brúður í átveislu undir vegg ( kaþólskri kirkju ( Bamberg.
Ekki er vitað með vissu hvar Þyrnirós svaf f eina öld eða vonda drottn-
ingin spjallaði við spegilinn. Hvort tveggja hlýtur þó að hafa átt sér stað í
höll ekki ósvipaðri Hohenzollern-kasUlanum í suðvestur Þýskalandi. Hann
stendur hár og tignarlegur með marga turna uppi á hæð og setur ævintýra-
blæ á umhverfið allt í kring. Vegurinn upp að honum er mjór og hlykkjótt-
ur, en síðasta spölinn innan kastalaveggjanna verður að fara fótgangandi.
Steinlagður vegur liggur í hring eftir hring að tveimur kapellum og inn-
ganginum inn í kastalann og gengið er yfir nokkrar dragbrýr. Hohenzoll-
ern-höfðingjarnir sem stjórnuðu m.a. Prússlandi frá 1618, vildu augsýni-
lega ekki fá óboðna gesti í heimsókn á sínum tíma. Nú eru skoðunarferðir
farnar um kastalann og brýrnar ekki einu sinni dregnar upp þegar hann er
lokaður gestum. En heldur var óhuggulegt að ganga síðasta spölinn upp að
honum í hálfrökkri síðast í febrúar og heyra illskulegt ýlfur í einum
turninum. Það kom ímyndunaraflinu af stað og skuggi af innilokaðri
prinsessu í öðrum turni hefði ekki komið á óvart.
Warner Jany og skólabörn við nýuppgerða byrgið með gluggunum.
Grimms-bræður söfnuðu
gömlum sögum og ævintýr-
um í Þýskalandi á síðustu öld.
Varla gerast jafn ævintýralegir
hlutir þar enn í dag, en kostuleg
atvik eiga sér stað. Friðarhreyf-
ingin í Vestur-Þýskalandi er stór
og hávær og fyrirhuguð staðsetn-
ing meðaldrægra kjarnorkueld-
flauga í landinu á nú hug hennar
allan. Stjórnvöld vilja ekki gefa
uppi hvar eldflaugunum verður
komið fyrir, en líklegt þykir að
það verði á svæði í kringum
Schwábish Gmiind, ekki langt frá
Stuttgart.
Warner Jany, 29 ára blaðamað-
ur og friðarsinni (græningi) í húð
og hár, er meðal þeirra sem hafa
lesið sér til um og kannað þessi
mál. Hann býr rétt utan við
Schwábisch Gmund og þykir
heldur miður að eiga von á þess-
um nýju vopnum í nágrennið.
Hann hefur gaman af að ganga í
skógunum í kringum borgina og
hefur fylgst með framkvæmdum
Bandaríkjamanna á svæðinu að
undanförnu. Að fylgjast með
honum á einni slíkri gönguferð
minnti mjög á „leyniferðir" um
Öskjuhlíðina fyrir mörgum árum
þegar gömlu byrgin frá stríðsár-
unum voru afgirt og ekkert var
eins spennandi og að skríða undir
girðinguna og „njósna" um byrg-
in. Svæði í skóginum við Schwáb-
ish Gmund er afgirt á sama hátt,
og þar fyrir innan eru einnig
gömul byrgi. Flest þeirra eru lok-
uð og læst, en innan úr einu barst
dynjandi diskómúsík. Þar voru
tveir bandarískir hermenn við
framkvæmdastörf. Þeir voru
smiðir frá Chicago, en höfðu ver-
ið í V-Þýskalandi í hálft ár og
sögðust ekki hafa gert neitt
merkilegra en smíða svokölluð
„picnicborð" þarna í byrginu.
Ekki sögðust þeir vita neitt um
neinar eldflaugar, en höfðu heyrt
að Schwábish Gmund ætti að
vera eitthvað óvenjuspennandi
staður.
að sem Jany leist verst á
inni á þessu svæði var nýr
vegur sem hafði verið lagður
þangað og eitt nýuppgert byrgi.
Stórir gluggar hafa verið settir á
það og stórum járnhlerum komið
fyrir svohægt sé að loka þeim.
Jany dró þá ályktun að þarna
inni ætluðu bandarískir herfor-
ingjar að sitja við sólarljós á
meðan þeir biðu þess að
kjarnorkugeislar og eiturefni
hjöðnuðu niður fyrir utan eftir að
stórveldin hefðu skiptst á eld-
flaugum. Börn, sem voru á skól-
agöngu eins og ísaksskólinn fer í
Öskjuhlíð, voru ekki eins neikvæð
í garð byrgjanna og bandarísku
hermannanna í V-Þýskalandi.
Þau sögðu þá bestu menn og voru
viss um að nýuppgerða byrgið
væri eldhús fyrir þá — hvemig
sem þau komust að þeirri niður-
stöðu. En girðingar og gömul
byrgi geta komið ímyndunarafl-
inu á sömu fleygiferð og ýlfur
Hohenzollern-hundsins í hálf-
rökkrinu.
Hallir og hermál eru ekki hið
eina ævintýralega í
Vestur-Þýskalandi. Steiktar pyls-
ur sem eru seldar í öllum miðbæj-
um eru t.d. ævintýralega góðar.
Þær fylla loftið lokkandi ilmi og
ekki einu sinni fullsaddar frúr í
vetrarpelsum geta staðist freist-
inguna og fá sér eins og eina í
kuldanum. Sumar kirkjur lands-
ins kunna einnig að meta pyls-
urnar. Um jólin er algengt að
kirkjur og heimili séu skreytt litl-
um brúðum og styttum sem
minna á fæðingu Krists. Allir
hafa séð litla Jesúbarnið í jötunni
og Maríu, Jósef, virtingana og
jafnvel nokkrar kindur standa
hjá. En í kaþólskri kirkju í gamla
dómkirkjubænum Bamberg er
þeirrar stundar minnst þegar
Jesús breytti vatni í vín og tveim-
ur fiskum í gnægð matar. Undir
einum vegg kirkjunnar sitja upp-
áklæddar brúður við líniklætt
langborð sem er hlaðið brauði og
pylsum. Við hliðina skemmtir
vinnufólkið sér við át, drykk,
dans og músík. Pylsur, brauð og
bjór standa á borðum og enn
fleiri pylsur skreyta veggi og loft
í heimi brúðanna. Loftið er fyllt
gleði og nautn en Marteinn Lúth-
er hefði ekki verið hress með
þessa sýn í kirkju landa sinna —
og það meira að segja á hans eig-
in ári.
ab
Sæluvika Skagfirðinga hefst á sunnudag
SauAárkróki, 4. apríl.
8/ELlIVIKA Skagfirðinga hefst hér á
Sauðárkróki um næstu helgi og lýkur
sunnudaginn 17. apríl. Keyndar er far-
ið að togna nokkuð úr þessari sér-
stæðu viku því hún telur að þessu
sinni 10 daga samkvæmt prentaðri
dagskrá, sem félagsheimilið Bifröst
gefur út og Árni Egilsson og Tómas
Helgason framkvæmdastjórar félags-
heimilisins ritstýra. Þetta mun vera í
29. sinn sem Sæluvikudagskráin er
gefin út, myndskreytt rit í litlu broti
með fjölda auglýsinga frá fyrirtækjum
og einstaklingum auk yfirliLs um
dagskrá hvers dags Sæluvikunnar.
Björn Egilsson frá Sveinsstöðum ritar
grein í dagskrána og þar kemur fram
að „Sæluvika Skagfirðinga er nú Ifk-
lega níutíu ára gömul".
Nú, eins og jafnan áður, verður
margt til fróðleiks og skemmtunar í
Sæluviku. Leikfélag Sauðárkróks
sem löngum hefur verið einn af
burðarásum vikunnar, frumsýnir
sunnudaginn 10. apríl skopleikinn
Gripið í tómt eftir Derek Benfield,
leikstjóri er Guðjón Ingi Sigurðs-
son. Ungmennafélagið Tindastóll
frumsýnir kvöldið eftir glænýja
revíu, Hinn þögli meirihluti, „lítið
alvarlegt leikverk um höfuðverk
hins þögla meirihluta", eins og segir
í undirtitli. Höfundur er Hilmir Jó-
hannesson. Leikritið og revían verða
sýnd alla daga vikunnar og ástæða
er til að vekja athygli á sýningu
leikfélagsins kl. 17 fimmtudaginn
14. apríl, þá fá ellilífeyrisþegar 50%
afslátt á aðgöngumiðaverði. Kirkju-
kvöld verða í Sauðárkrókskirkju 11.
og 12. apríl. Þar syngur kirkju-
kórinn undir stjórn Jóns Björnsson-
ar tónskálds. Jóhann Már Jóhanns-
son og Þorbergur Jósefsson syngja
við undirleik Gróu Hreinsdóttur og
Jiri Hlavacék leikur á oregl. Ræðu-
maður bæði kvöldin verður Andrés
Björnsson útvarpsstjóri. Nemendur
Gagnfræðaskólans halda skemmtun
með söng og leikþáttum í Bifróst
laugardaginn 9. apríl og um kvöldið
verða dansleikir fyrir börn og ungl-
inga. Þar leikur hljómsveitin Týról,
en á öðrum dansleikjum Sæluvik-
unnar spilar hljómsveit Geirmund-
ar Valtýssonar. Sauðárkróksbíó
sýnir valdar kvikmyndir alla daga
vikunnar. Það hefur færst í vöxt á
seinni árum að aðkomufólk hefur
lagt efni til Sæluviku en lengi voru
það heimamenn, sem alfarið sáu um
skemmtiefnið. Að þessu sinni eru
gestirnir margir. Brúðuleikhús
Helgu Steffensen og Sigríðar Hann-
esdóttur sýnir á laugardag 9. apríl,
en laugardaginn 16. apríl spilar
Lúðrasveit Akraness í heimavist
Fjölbrautaskólans undir stjórn Lár-
usar Sighvatssonar.
Ijokadag Sæluviku, sunnudaginn
17. apríl, heldur Skólakór Kárs-
nesskóla í Kópavogi söngskemmtun
í Bifröst kl. 14. Stjórnandi er Þór-
unn Björnsdóttir. Sama dag kl. 16
heldur Marteinn H. Friðriksson,
dómorganisti, orgeltónleika í Sauð-
árkrókskirkju og um kvöldið kl. 22
verður jazzkvöld í Bifröst á vegum
nýstofnaðs Jazzklúbbs Skaga-
fjarðar. Þar leikur kvartett Guð-
mundar Ingólfssonar.
1 Safnahúsi Skagfirðinga verður
opnuð myndlistarsýnig sunnudag-
inn 10. apríl kl. 16. Þar sýnir í boði
Listasafns Skagfirðinga Katrín H.
Ágústsdóttir myndir unnar með
batik-aðferð, vatnslitamyndir og
teikningar.
í öllum þessum glaumi og gleði er
svo rétt að minna á guðsþjónustu í
Sauðárkrókskirkju sunnudaginn 10.
apríl kl. 14. Þar messar sókarprest-
urinn séra Hjálmar Jónsson. Og að
lokum má vekja athygli þeirra, sem
hug hafa á að koma á Sæluviku og
eru búsettir fjarri Sauðárkróki, að
Flugleiðir veita 30% afslátt á far-
gjaldi í tilefni vikunnar.
- KÁRI.