Morgunblaðið - 08.03.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 8. MARZ 1985
„B^inar falsanir til að
blekkja húsbyggjendur"
— segir Víglundur Þorsteinsson hjá BM Vallá um
verðsamanburð talsmanns Steypustöðvarinnar Óss hf.
„Talsmaður Steypustöðvarinnar
Oss beitir beinum föisunum í viðtal-
inu til að blekkja húsbyggjendur.
Hann ber verðskrár okkar án allra
staðgreiðsluafslátta saman við verð
að frádregnum staðgreiðsluafslætti
hjá Ósi, en eins og fra m hefur kom-
ið í Mbl. er staðgreiðsluafsláttur BM
Vallá hf. að minnsta kosti eins hár
og hjá Ó8i,“ sagði Víglundur Þor-
steinsson, forstjóri Steypustöðvar-
innar BM Vallá hf. í samtali við
blaðamann í gær þegar hann var
inntur álits á verðsamanburði sem
Kristján Guðjónssom markaðsstjóri
Steypustöðvarinnar Óss, gerði í við-
tali sem birtist í Morgunblaðinu í
gær. Hann komst þar að þeirri ■
niðurstöðu að húsbyggjandi gæti
sparað sér 72 þúsund kr. með því að
kaupa steypu af Ósi í stað BM Vallá
hf. miðað við kaup á 150 rúmmetnim
af steypu.
„Þetta er þó ekki eina blekking-
in í þessu viðtali," sagði Víglund-
ur, „hann heldur því fram að ós
hf. sé með mjög strangt innra og
ytra gæðaeftirlit. Verkfræðingur
fyrirtækisins stjórni innra eftir-
litinu og Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins hafi eftirlit með
ytra gæðaeftirlitinu. í samtali
sem ég átti í dag við Hákon
Ólafsson, forstöðumann Rann-
sóknastofnunar byggingariðnað-
arins, kom fram að sú stofnun
annast ekkert ytra eftirlit fyrir Ós
Kjartan Jóhannsson, um samskipti Jóns Baldvins
og krataflokka á Norðurlöndum:
„Er um samsafnaðan
misskilning að ræða“
„ÉG HELD að það sé mikilvægt
fyrir okkur að hafa mikii samskipti
við aðrar þjóðir, og þá ekki síst
Norðurlandaþjóðirnar. Ég lít ekki
þannig á að það hefði verið íhlutun
í innanríkismál okkar, ef Anker
Jfgensen hefði talað á fundi hér á
landi, ekki síst með það í huga að
við þurfum líka að fá tækifæri til
þess að koma skoðunum okkar á
framfæri erlendis,“ sagði Kjartan
Jóhannsson fyrrverandi formaður
Alþýðuflokksins, er hann var
spurður álits á þeirri snurðu sem
virðist hafa hlaupið á þráðinn í
samskiptum Alþýðuflokksins á ís-
landi undir forystu Jóns Baldvins
Hannibalssonar, við aðra krata-
flokka á Norðurlöndum.
„Varðandi umræðu um Norð-
urlöndin sem kjarnorkuvopna-
laust svæði, þá hefur það verið
skoðun okkar í Alþýðuflokknum
að við ættum að taka þátt í
þeirri umræðu, vegna þess að
þetta skiptir máli fyrir okkur,“
sagði Kjartan. Kjartan sagðist
líta svo á að umræðan um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum væri eins konar tilboð
um það að Norðurlöndin yrðu
áfram kjarnorkuvopnalaus, svo
framarlega sem það yrði til þess
að draga úr spennu og hefði þau
áhrif að Sovétríkin drægju úr
vígbúnaði sínum á jöðrum þessa
svæðis. Þetta sagði Kjartan að
hefði verið skoðun alþýðu-
flokksmanna og hann sagði auk
þess að þetta væri skoðun jafn-
aðarmannaflokkanna í Noregi og
Danmörku. „Það hefur aldrei
komið til umræðu í þeirra hóp,
að hér yrði um einhliða yfirlýs-
ingu að ræða,“ sagði Kjartan.
Kjartan sagðist telja að þetta
væri einnig skoðun Jóns Bald-
vins, þannig að hann sæi ekki
hvar stefnubreyting ætti að hafa
orðið hjá einum eða neinum.
„Virðist mér sem hér sé um sam-
safnaðan misskilning að ræða,“
sagði Kjartan.
Kjartan var spurður hvort
hann teldi að ádrepur þær sem
Jón Baldvin hefur sent krata-
flokkum á Norðurlöndum, ættu
eftir að hafa í för með sér
minnkandi samstarf og kólnandi
sambúð: „Ég ætla að vona að það
verði ekki og ég vil ekki trúa því
að það gerist. Við höfum átt
ágæta samvinnu við þessa aðila.
Það getur verið að misskilningur
af þessu tagi sé erfiður um
stundarsakir, en ég ætla að vona
að það verði aðeins skamma
hríð, ef svo verður."
Bjarni P. Magnússon:
„Stunda það ekki að
rægja félaga mína“
„ÉG HEF skriflega yfirlýsingu um
það að Sjónvarpið sagði þetta aldr-
ei, enda gerði ég þetta ekki,“ sagði
Bjarni P. Magnússon, fyrrverandi
formaður framkvæmdastjórnar Al-
þýðuflokksins er blm. Mbl. spurði
hann hvað hefði búið að baki hjá
honum er hann fékk útskrift af
sjónvarpsþætti frá 11. desember sl.
þar sem Jón Baldvin Hannibals-
son formaður Alþýðuflokksins not-
aði orðið „Finlandisering". í
Morgunblaðinu í gær er haft eftir
Jóni Baldvin að hann hafi fengið
upplýsingar í Sjónvarpinu þess efn-
is að Bjarni hafi með ofangreind-
um hætti komið útskrift þáttarins
frá í desember á framfæri við
Finna.
Bjarni sagði að sl. þriðju-
dagskvöld hefðu verið gestir
hans framkvæmdastjóri Menn-
ingar- og fræðslusambands al-
þýðu á Norðurlöndum og núver-
andi framkvæmdastjóri Nor-
rænu jafnaðarmannahreyf-
ingarinnar og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri sömu hreyfingar.
Þeir hefðu farið þess á leit við
sig að hann útvegaði þeim út-
skrift Kastljóssþáttarins sem
var á dagskrá sjónvarpsins þá
um kvöldið, en þá voru þeir Ank-
er Jorgensen og Jón Baldvin
Hannibalsson gestir þáttarins.
Það hefði hann gert, og væri sú
útskrift með öllu óviðkomandi
þættinum frá 11. desember sl.
þar sem títtnefnd ummæli Jóns
Baldvins um „Finlandiseringu"
hefðu komið fram.
„Fyrir mér vakti ekkert annað
en það, að verða við ósk þessara
vina minna. Ég ástunda það ekki
að rægja félaga mína og vil það
ekki,“ sagði Bjarni.
vegna þess að þeir geta ekki hafið
það fyrr en Os hefur komið sér
upp innra gæðaeftirliti, sem þeir
hafa enn ekki gert. Þeir eru því að
hlaupa á undan sjálfum sér í
þessu efni.
Fyrst verið er að tala um gæða-
eftirlit get ég nefnt að við rekum
okkar eigin rannsóknarstofu sem
annast allt gæðaeftirlit fyrirtæk-
isins. Þar er verkfræðingur í fullu
starfi og með honum starfar að-
stoðarmaður. Að auki erum við í
samvinnu við ráðgjafarverkfræði-
stofu hér í bæ sem hefur eftirlit
með okkar eigin innra eftirliti."
Kristján segir í viðtalinu að ós
telji sig vera með betri steypu en
hingað til hafi verið í boði. Víg-
lundur sagði um þá fullyrðingu:
„Þetta eru stór orð eða gífuryrði
sem þeir geta ekki staðið við.
Meira að segja er verið að ýja að
því að við seljum steypu með al-
kalívirkni. Öll okkar framleiðsla
byggir á steypublöndun sem er
viðurkennd af byggingaryfirvöld-
um og er öruggt að engin hætta er
á alkalívirkni í henni. Þá er öll
steypuframleiðsla skv. gæðakröf-
um í íslenskum staðli. Þar eru
ákveðnar kröfur til eiginleika og
styrks steypunnar, allt eftir því til
hvers á að nota hana. Við uppfyll-
um ekki aðeins lágmarkskröfurn-
ar, heldur gerum betur. í því efni
má geta þess að okkar steypa er
með loftinnihaldi umfram kröfur
sem eykur frost- og veðrunarþol
hennar.
Samkeppnin í þessari grein hef-
ur alltaf verið hörð og þann tíma
sem ég hef starfað við þetta fyrir-
tæki hefur svo alltaf verið,“ sagði
Víglundur þegar hann var spurður
hvort aukin harka væri að færast
í samkeppni steypustöðvanna.
„Þessi blaðaskrif nú segja þá sögu
að nýtt fyrirtæki er að reyna að
komast inn á markaðinn, en það
hefur reynst því erfitt og er það
því að reyna að vekja athygli á
sér. En almennt um það þegar fólk
er að bera saman framleiðslu
fyrirtækjanna verður að hafa af-
kastagetu þeirra í huga enda getur
lítil afkasta geta stóraukið kostn-
að kaupendanna í biðtíma við
framkvæmdir. I þessu sambandi
er rétt að hafa það í huga að af-
kastageta BM Vallá hf. á klukku-
stund er meira en tvöfalt meira en
það sem Steypustöðin Ós getur af-
kastað á hverri klukkustund,"
sagði Víglundur ennfremur.
0
INNLENT
Þingi Norðurlandaráðs lýkur í dag
33. þingi Norðurlandaráðs lýkur í dag, föstudag. Þingið hefur staðið yfir frá
því sl. mánudag og fjölmörg raál verið rædd og afgreidd. Efnahags- og
atvinnumál hefur borið hvað hæst. Mynd þessa tók Ölafur K. Magnússon
Ijósm. Mbl. í rokinu og rigningunni í gær, en þá lá við að fánaborg ráðsins
fyrir utan Þjóðleikhúsið fyki á brott.
„Hryllileg mistök aö
rjúfa samstöðu kvenna“
— segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
„ÞAÐ ERU hryllileg mistök að
rjúfa samstöðu kvenna," sagði Að-
alheiður Bjarnfreðsdóttir, formað-
ur Starfsstúlknafélagsins Sóknar, í
samtali við Mbl. um ákvörðun
Samtaka kvenna á vinnumarkaði,
Kvennaframboðsins í Keykjavík,
Kvennafylkingar Alþýðubanda-
lagsins og Kvennalistans að taka
ekki þátt í hvatningarfundi Fram-
kvæmdanefndar '85 þann 8. marz í
Háskólabíói, en í þess stað efna til
fundar í Félagsstofnun stúdenta
sama dag.
„Konur stóðu dyggilega saman
að Kvennadeginum 1975. Þá
komu saman konur úr fjölmörg-
um pólitískum samtökum og
störfuðu saman, þó ekki hafi það
alltaf verið auðvelt. Útkoman
var einhver minnisstæðasti dag-
ur í sögu lýðveldisins þegar kon-
ur fylktu liði þúsundum saman á
Lækjartorg.
Nú taka nokkrar konur sig út
úr nefndinni og afleiðingin er sú,
að við höldum tvo fundi. Ég vona
að þetta sé aðeins brestur, sem
hægt verði að bæta og hvet kon-
ur eindregið konur til að standa
saman, því það er forsenda þess
að árangur náist i launa- og
jafnréttisbaráttu kvenna," sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
Sigrún
Svanhildur
Lilja
Baráttufundur kvenna
í Háskólabíói í kvöld
JAFNRKTTI, framþróun, friður — eru kjörorð fundar, sem svokölluð '85
nefnd — samstarfsnefnd í lok kvennaáratugar efnir til í Háskólabíói í kvöld
kl. 20.30. Ennfremur er kjörorð fundarins „Tökum höndum saman", en
ávörp á fundinum verða tileinkuð baráttunni um launakjör kvenna og sam-
stöðu um jafnrétti kynjanna.
Á fundinum verður flutt ávarp
Láru Júlíusdóttur og Anna Júlí-
ana Sveinsdóttir syngur. Þá verð-
ur flutt dagskrá: Launabaráttan,
nokkrar staðreyndir í stöðunni
fyrr og nú í launamálum kvenna.
Leikkonurnar Helga Jónsdóttir,
Kristín Anna Þórarinsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Margrét Áka-
dóttir og Sigrún Valbergsdóttir
flytja. Síðan verður dagskrárat-
riði sem nefnist „Ákall um frið“.
Ávörp flytja síðan um baráttu-
mál dagsins: Guðríður Elíasdóttir,
2. varaforseti ASÍ, Margrét S.
Einarsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags Islands, Sigrún Elías-
dóttir, forseti Alþýðusambands
Vesturlands, Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, varaformaður Verzl-
unarmannafélgs Reykjavíkur,
Svanhildur Kaaber, formaður
Bandalags kennarafélaga, og Að-
alheiður Bjarnfreðsdóttir, for-
maður Starfsmannafélagsins
Sóknar. Lokaávarp flytur siðan
Sesselja Kristjánsdóttir iðn-
verkakona.
Þá verður lesið upp úr bók Önnu
Sigurðardóttur um störf og kjör
kvenna og fjöldasöngur verður.
Fundarstjóri verður Lilja ólafs-
dóttir. Húsið verður opnað klukk-
an 20.